Fréttablaðið - 16.12.2009, Síða 56

Fréttablaðið - 16.12.2009, Síða 56
48 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR menning@frettabladid.is BESTU BÆKUR ÁRSINS AÐ VALI STARFSFÓLKS BÓKAVERSLANA BESTA ÍSLENSKA SKÁLDSAGAN 1. Harmur englanna Jón Kalman Stefánsson 2. Síðustu dagar móður minnar Sölvi Björn Sigurðsson 3. Karlsvagninn Kristín Marja Baldursdóttir 4-5. Auður Vilborg Davíðsdóttir 4-5. Svörtuloft Arnaldur Indriðason BESTA ERLENDA ÞÝDDA SKÁLDSAGAN 1. Leikur engilsins Carlos Ruiz Zafón Þýðing: Sigrún Á. Eiríksdóttir 2-3. Kirkja hafsins Ildefonso Falcones Þýðing: María Rán Guðjónsdóttir 2-3. Loftkastalinn sem hrundi Stieg Larsson Þýðing: Halla Kjartansdóttir 4. Ummyndanir Óvíd Þýðing: Kristján Árnason 5. Málavextir Kate Atkinsson Þýðing: Elísa Björg Þorsteinsdóttir BARNABÆKUR ÍSLENSKRA HÖFUNDA 1. Köttur út í mýri Þjóðsögur valdar af Silju Aðalsteinsdóttur 2. Ef væri ég söngvari Ragnheiður Gestsdóttir valdi 3. Bókasafn ömmu Huldar Þórarinn Leifsson 4. Finnur finnur rúsínu Sigrún Eldjárn 5. Aþena Margrét Örnólfsdóttir BARNABÆKUR ÞÝDDAR Á ÍSLENSKU 1. Hver er sterkastur? Mario Ramos Þýðing: Guðrún Vilmundardóttir 2. Gullgerðarmaðurinn Michael Scott Þýðing: Guðni Kolbeinsson 3. Aftur til Pompei Kim M. Kimselius Þýðing: Elín Guðmundsdóttir 4. Húsið á Bangsahorni A. A. Milne Þýðing: Guðmundur Andri Thorsson 5. Stórskemmtilega stelpubókin Andrea J. Buchanan og Miriam Peskowitz. Þýðing: Halla Sverrisdóttir ÆVISÖGUR 1. Vigdís Páll Valsson 2. Mynd af Ragnari í Smára Jón Karl Helgason 3. Snorri Óskar Guðmundsson 4. Söknuður Jón Ólafsson 5-6. Jón Leifs Árni Heimir Ingólfsson 5-6. Sjúddirarí rei Sólmundur Hólm FRÆÐIRIT 1. Jöklar á Íslandi Helgi Björnsson 2. Sagan Adam Hart-Davis Þýðing: Karl Emil Gunnarsson og Guðni Kolbeinsson 3. Heitar laugar á Íslandi Jón G. Snæland og Þóra Sigurbjörnsdóttir 4. Allir í leik Una Margret Jónsdóttir 5. Ísland í aldanna rás – 18. öld Bjarki Bjarnason LJÓÐABÆKUR 1. Nokkur orð um kulnun sólar Gyrðir Elíasson 2. Hundgá úr annarri sveit Eyþór Árnason 3. Komin til að vera, nóttin Ingunn Snædal Niðurstöður í árlegri verð- launaveitingu starfsfólks í bókaverslunum voru til- kynntar í gær og er það í tíunda sinn sem starfsmenn bókaverslana safna saman áiti sínu um mikilvægustu útgáfuverk, ekki aðeins í einum flokki heldur sjö. Verðlaunin eru veitt í flokkun- um íslensk skáldverk, þýdd skáld- verk, íslenskar barnabækur, þýdd- ar barnabækur, ævisögur, ljóð og fræði- og handbækur. Sextíu bóksalar tóku þátt þetta árið og var mjótt á munum í mörg- um flokkum, til dæmis skildu tvö atkvæði að fyrsta og annað sætið í skáldsögunum. Verðlaunaféð er 0 kr. og hefur ekkert breyst frá upphafi. Hins vegar láta aðstand- endur prenta límmiða sem gjarn- an skreyta þær bækur sem valdar eru. Verðlaunabækur bóksölufólks hafa oft reynst hafa sterkari stöðu er frá líður en þau verk sem til- nefnd eru eða verðlaunuð í verð- launarekstri Félags íslenskra bókaútgefenda og embættis for- seta Íslands, til dæmis völdu bók- sölumenn Öxina og jörðina og Himnaríki og helvíti bestu bækur sinna útgáfuára – en hvorug þeirra var tilnefnd eða hlaut hin Íslensku bókmenntaverðlaun. Upplýsingar um hvaða bækur bóksalar hafa valið síðastliðin níu ár má nálgast á vef Borgarbóka- safnsins: http://www.borgarboka- safn.is/desktopdefault.aspx/tabid- 3449//5529_read-13458/. Í dálknum hér til hliðar má sjá hvernig tókst til um valið, ekki aðeins hvaða titlar settust í fyrstu sætin, heldur líka hverjir komu þar á eftir, í nokkrum flokkum allt að fimm titlar. Skáldsaga Jóns Kalm- ans, Harmur englanna sem Bjart- ur gefur út er talin besta skáldsag- an, en Leikur engilsins eftir Carlos Ruiz Zafón besta þýdda skáldsag- an, en útgefandi er Mál og menn- ing – Forlagið. Í fræðiritum var Jöklasaga Helga Björnssonar í mestum metum, en hún er frá for- laginu Opnu. Gyrðir Elíasson er talinn hafa sent frá sér markverð- ustu ljóðabókina, Nokkur orð um kulnun sólar sem Uppheimar gefa út. Besta barnabókin er talin vera útgáfa Máls og menningar á úrvali Silju Aðalsteinsdóttur á sögum, þjóðsögum og ævintýrum, úr safni Jóns Árnasonar og fleiri, en bók- ina myndskreytir Halldór Bald- ursson. Besta þýdda barnabókin er valin Hver er sterkastur eftir Mario Ramos sem Bjartur gefur út. Af góðu úrvali ævisagna velja bóksölumenn ævisögu Vigdísar sem Páll Valsson skráði. pbb@frettabladid.is Harmur englanna bestur Saga – tímarit Sögufélagsins er nýkomið út og efnið er fjölbreytt að vanda. Ritstjóri er Sigrún Páls- dóttir. Hvaða lærdóm má draga af hagþróun og hagstjórn á Íslandi á 20. öld, er spurning heftisins og svara henni þrettán sérfræðingar. Erla Hulda Halldórs- dóttir ræðir við Judith M. Bennett. Guðni Th. Jóhannesson skrifar um land- ráð í sögulegu samhengi og Svanur Kristjánsson skrifar um kvennahreyfinguna 1907- 1927. Guðni Elísson skrifar um hrun- ið, Már Jónsson um textaútgáfur eða öllu heldur skort á þeim, Guðmundur Hálfdánarson um „okkur“ og „hin“ í umræðunni, Þór Whitehead heldur áfram deilu þeirra Jóns Ólafssonar um hreyfingar kommúnista hér á landi. Helgi Skúli Kjartansson birtir ítardóm um útgáfur tengdar Sigurði Helga Magnússyni, en að auki eru tíu aðrir ritdómar í heftinu sem skartar forsíðumynd af Stjörnu stórriddara- kross hinnar íslensku fálkaorðu en Goddur gerir grein fyrir því fyrirbæri. Heftið er 148 síður. NÝ TÍMARIT > Ekki missa af Leitinni af jólunum – nýju aðventuævintýri eftir Þorvald Þorsteinsson, með tónlist Árna Egilssonar í Þjóðleikhúsinu. Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum fléttast inn í ævintýrið. Tveir skrítnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum við aðalinn- gang Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæra- leikarar og saman leiða þeir börnin með leik og söng um leikhúsið. ath. á morgun kl. 21. Jólafuglabúr í Fríkirkjunni með Gunnari Þórðar- syni og Svavari Knúti. Þá mun hirðtónskáld þjóð- arinnar, Gunnar Þórðarson, og trúbadorinn vina- legi, Svavar Knútur, leiða saman hesta sína og flytja ásamt strengjasveit sérlega hátíðardagskrá í einum besta tónleikasal landsins. Áhorfendum verður gef- inn kostur á að kynnast list þessara listamanna í afslöppuðu umhverfi. Fríkirkjan opnar kl. 20 en tón- leikarnir hefjast stundvíslega kl. 21. Athugið að tak- markaður fjöldi sæta er í boði. BÓKMENNING Helgi Björnsson tekur við viðurkenningu frá tveimur þaulvönum bóksölukonum, Kristínu Gísladóttur frá Bóksölu stúdenta og Bryndísi Loftsdóttur frá Eymundsson Pennanum, á Aragötunni í gær. MYND FRETTABLADID/GVA w w w .h ir zl an .i s Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040 OMEGA Veggsamstæður á tilboði: 79.900,- Verð áður 104.500,- mál: b.208 cm; h.190 cm kirsuber coffee

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.