Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 62
54 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Stærstu nöfnin í tískuheiminum komu saman í
London í síðustu viku á tískuverðlaunahátíðinni
British fashion awards. Cristopher Bailey var
kjörinn hönnuður ársins og Burberry var valið
hönnunarmerki ársins eftir glæsilega endur-
komu á tískuvikunni í London. Georgia May
Jagger var kjörin fyrirsæta ársins, en Kate Moss
hlaut London 25-verðlaunin sem voru veitt ein-
staklingi sem fangað hefur tískuandann í Lond-
on í tilefni af 25 ára afmæli tískuvikunnar þar
í borg. Þá hlaut John Galliano British fashion
council-verðlaun fyrir framúrskarandi árang-
ur í fatahönnun. - ag
EVA HERZIGOVA
Fyrirsætan Eva
Herzigova var
meðal gesta á
tískuverðlaunahá-
tíðinni í London.
CLAUDIA SCHIFFER Ofurfyrirsætan Claudia Schiffer lét
sig ekki vanta á bresku tískuverðlaunahátíðina.
DAISY LOWE Fyrirsætan Daisy Lowe var
tilnefnd sem fyrirsæta ársins á verð-
launahátíðinni.
GEORGIA MAY JAGGER Unga fyrirsætan
Georgia May Jagger var kjörin fyrirsæta
ársins.
KATE MOSS Fyrirsætan Kate Moss mætti
í Christian Dior-kjól á bresku tískuhá-
tíðina þar sem hún tók við London
25-verðlaununum. MYNDIR/GETTY
BRESKU TÍSKUVERÐ-
LAUNIN AFHENT
VICTORIA BECKHAM Tísku-
drottningin Victoria Beckham
afhenti Cristopher Bailey verð-
launin þegar hann var kjörinn
hönnuður ársins.
Nicole Richie frumsýndi nýja
skartgripalínu sína, House of
Harlow, fyrir stuttu. Á kynning-
arkvöldinu skartaði Richie að
auki nýrri hárgreiðslu og dekkri
háralit en áður. „Ég lita á mér
hárið reglulega, en hafði ekki
gert það í nokkurn tíma núna af
því það er einfaldlega of mikið að
gera hjá mér núna þegar börnin
eru orðin tvö,“ útskýrði Richie
sem ætlar að halda jólin hátíðleg
með fjölskyldu sinni. „Við erum
ekki með margar fjölskylduhefð-
ir. En undanfarið hef ég keypt
eitt jólaskraut árlega og ég ætla
að halda mig við það. Mér finnst
eggjapúns líka mjög gott, þannig
að ég mun búa það til. Ég hef
komist að því að flestum finnst
eggjapúns vont, en mér finnst
það æði.“
Elskar
eggjapúns
Nýjar fregnir herma að leikarinn
Orlando Bloom hafi beðið kær-
ustu sinnar til þriggja ára. Leik-
arinn hefur átt í sambandi við
áströlsku fyrirsætuna Miröndu
Kerr undanfarin ár og á hann að
hafa beðið hennar á meðan þau
dvöldu í Marokkó.
Eldri bróðir Kerr hefur stað-
fest orðróminn, en þó eru sum
slúðurrit sem vilja meina að
sagan sé ekki sönn. „Hann hefur
loksins beðið hennar. Þau ætla
að gifta sig,“ á bróðirinn að hafa
sagt.
Orlando Bloom var áður með
leikkonunni Kate Bosworth, en
þau hættu saman árið 2006.
Trúlofuð
TRÚLOFUÐ Orlando Bloom á að hafa
beðið Miröndu Kerr.
Hjartaknúsarinn Johnny Depp
segist alltaf eiga jafn erfitt með
að venjast því að fá leiklistar-
verðlaun. Depp fékk verðlaun
fyrir æviframlag sitt til leik-
listarinnar á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni á Bahamaeyj-
um. „Þegar einhver segir við mig
að ég eigi að fá verðlaun finnst
mér það alltaf jafn undarlegt.
Það fyrsta sem mér dettur í hug
er „af hverju?“ sagði Depp. „Ég
fer bara í vinnuna eins og hver
annar, nema að það vill þannig til
að vinnan mín er aðeins skrítn-
ari.“ Það var leikarinn Sean
Connery sem afhenti Depp verð-
launin á Bahamaeyjum.
Undarlegt að
fá verðlaun
JOHNNY DEPP Depp getur ekki vanist því
að fá leiklistarverðlaun.
Söngkonan LeAnn Rimes hefur
baðað kærasta sinn, leikarann
Eddie Cibrian, í gjöfum frá því
þau tóku saman. Samkvæmt vini
Rimes hefur hún keypt handa
honum armbandsúr frá Hermes,
armbönd, flíkur og annað slíkt
til að gleðja sinn heittelskaða
á erfiðum tímum. Annar vinur
söngkonunnar segir samband-
ið ganga vel en eitt skyggi þó á
gleði þeirra. „LeAnn vildi halda
stórt fjölskylduboð um jólin en
foreldrar Eddies neita að koma.
Þeim finnst það henni að kenna
að hjónaband Eddies og fyrrum
eiginkonu hans fór í
vaskinn. Það hjálp-
ar ekki heldur að
Eddie tekur ekki
upp hanskann fyrir
hana. Hann segir
henni að gefa
þeim tíma en
LeAnn er afskap-
lega sár.“
LeAnn er sár
SÁR LeAnn Rimes
vildi halda stórt
jólaboð en fær ekki
þá ósk uppfyllta.
NÝTT ÚTLIT Nicole Richie skartaði nýrri
hárgreiðslu á frumsýningu skartgripalínu
sinnar.
LÚR - BETRI HVÍLD
HLÍÐASMÁRI 1
201 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6969
FAX 554 3100
WWW.LUR.IS
LUR@LUR.IS
www.lur.is
Úrval rúma, sófa og hvíldarstóla
10:00 – 18:00mánfös
Opið:
lau 11:00 – 16:00
Margir litir í boði – Frábær verð í gangi