Fréttablaðið - 16.12.2009, Qupperneq 68
60 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
16
16
L
L
16
10
SAW 6 kl. 3.40 - 8 - 10.10
SAW 6 LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10
JULIE AND JULIA kl. 5.20 - 8 - 10.35
ARTÚR 2 kl. 4 - 6
THE BOX kl. 8
2012 kl. 4.45 - 10.30
SÍMI 462 3500
2012 kl. 8
THE BOX kl. 10.15
LOVE HAPPENS kl. 6
9 kl. 6
CAPITALISM kl. 8
10
16
L
7
L
7
7
12
10
ANVIL kl. 6 - 8 - 10
WHATEVER WORKS kl. 5.50 - 8 - 10.10
A SERIOUS MAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
DESEMBER kl. 6 - 8 - 10
SÍMI 530 1919
16
L
16
10
L
BAD LIEUTENANT kl. 5.30 - 8 - 10.30
JULIE AND JULIA kl. 5.20 - 8 - 10.35
PARANORMAL ACTIVITY kl. 10.30
2012 kl. 6 - 9.15
LOVE HAPPENS kl. 5.30 - 8
SÍMI 551 9000
.com/smarabio
AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ,
BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL.
30.000 MANNS!
FRÁBÆR
ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16
16
16
16
16
16
16
16
12
12
V I P
V I P
7
7
7
7
7
OLD DOGS kl. 6 - 8D - 10:10D
OLD DOGS kl. 8 - 10:10
SORORITY ROW kl. 8 - 10:20
NINJA ASSASSIN kl. 8 - 10:10
TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:30 - 8 - 10:30
TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:30
A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 5:50(3D) Ótextuð
A CHRISTMAS CAROL M/ ísl. Tali kl. 5:50
A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 8
PANDORUM kl. 5:50
LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:10
OLD DOGS kl. 6 - 8 - 10
SORORITY ROW kl. 8 - 10:20
NINJA ASSASSIN kl. 10:40
TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:30 - 8
A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 5:50(3D) Ótextuð
OLD DOGS kl. 6 - 8 - 10
THE TWILIGHT SAGA kl. 8
NINJA ASSASSIN kl. 10:30
L L
L
Frá leikstjóra Wild Hogs John Travolta og Robin
Williams fara á kostum í þessari sprenghlæginlegu
mynd. Tveir vinir taka að sér 7 ára tvíbura með
ákaflega fyndum afleiðingum.
FRÁBÆR SPENNUMYND Í ANDA
SCREAM OG I KNOW WHAT YOU
DID LAST SUMMER
ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA YFIR LEYNDARMÁLI
DAUÐANS! BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
- bara lúxus
Sími: 553 2075
BAD LIEUTENANT kl. 8 og 10.20 16
EXTRACT kl. 6 og 10.10 12
ARTÚR 2 - Íslenskt tal kl. 6 L
COCO BEFORE CHANEL kl. 8 L
HUGLJÚF OG HEILLANDI
MYND UM ÆVI COCO CHANEL
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Tónlist ★★★
Dikta
Get It Together
Tær og flottur söngur
Fjögur ár eru liðin síðan önnur plata
Diktu, Hunting For Happiness, kom
út við góðar undirtektir. Sú plata festi
Diktu í sessi sem eina af efnilegustu
hljómsveitum landsins og í framhald-
inu hefur hún reynt töluvert að koma
sér á framfæri erlendis, sem eðlilegt
er.
Get It Together er heldur rólegri en
undanfarin verk Diktu og er ég ekki
frá því að það fari sveitinni betur en
rokkið. Sönghæfileikar Hauks Heiðars
fá fyrir vikið að njóta sín betur. Rödd
hans er tær og flott eins og heyra má
helstu ballöðum plötunnar og greini-
legt að hann hefur bætt sig töluvert sem söngvari.
Bestu lög plötunnar eru kraftballaðan Thank You, Hotel Feelings, þar sem
rödd Hauks nýtur sín einkar vel, og lokalagið From Now On, sem er sérlega
einfalt og gott. Aftur á móti eru lög á borð við Start to Finish og The Story of
Roscoe Gray ekki í sama gæðaflokki og ná aldrei að grípa mann heljartök-
um. Trompetkaflarnir í Just Getting Started eru síðan góðir en útsetningin
hefði mátt vera töluvert hófstilltari. Lagið lofar góðu en er því miður ofhlað-
ið.
Í heildina séð er Get It Together góð plata en hún er ekki gallalaus. Ef
Dikta ætlar að ná árangri erlendis þarf hún að einbeita sér að skotheldum
ballöðum og Haukur Heiðar er tvímælalaust rétti maðurinn til að syngja
þær. Rokkið má hins vegar alveg liggja á milli hluta. Freyr Bjarnason
Niðurstaða: Fín plata frá Diktu en nær ekki að halda athygli allan tímann.
Rödd Hauks Heiðars er eftirminnileg í ballöðunum.
Leik- og söngvararnir Sigga
Eyrún og Bjarni Snæbjörnsson
halda tónleika í Laugarneskirkju
í kvöld klukkan 20.30. Þar munu
þau flytja sígild jólalög með hjálp
Árna Heiðars Karlssonar djass-
píanista. „Þetta verða ofsalega
ljúf, amerísk Hollywood-lög,“
segir Bjarni. Á tónleikunum ætla
þau að feta í fótspor Bing Crosby,
Judy Garland, Dean Martin og
fleiri Hollywood-stjarna. „Það er
til svo ofsalega mikið af falleg-
um jólalögum. Við ákváðum að fá
góðan undirleikara með okkur og
stofna til veislu.“ Miðaverð á tón-
leikana er 1.500 krónur og lofar
Bjarni silkimjúkri og fallegri
kvöldstund.
Jólalög frá
Hollywood
SIGGA OG BJARNI Sigga Eyrún og Bjarni
Snæbjörnsson halda tónleika í Laugar-
neskirkju í kvöld.
Útvarpsmaðurinn Ólafur
Páll Gunnarsson stjórnar
þættinum Rokkland í 700.
sinn á sunnudaginn. Hann
vonar að þættirnir verði
alla vega eitt þúsund.
„Mér finnst þetta alltaf jafn-
skemmtilegt,“ segir Ólafur Páll
Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás
2. Útvarpsþátturinn hans, Rokkl-
and, fer í loftið í 700. sinn næst-
komandi sunnudag. Sá þáttur
verður tileinkaður sjaldheyrðum
jólalögum eins og venjan hefur
verið á þessum tíma undanfar-
in ár.
Óli Palli byrjaði með þátt-
inn um miðjan síðasta áratug
og hefur allar götur síðan hald-
ið sínu striki með fjölbreytnina
að leiðarljósi. „Ég kynntist fólki
frá BBC á Glastonbury sumarið
1995 sem var að kynna hráefni
í útvarpsþætti. Ég kom heim,
sagði þeim frá þessu og vildi
fá að spreyta mig,“ segir hann
og á þar við Magnús Einarsson
sem var tónlistarstjóri á Rás 2
og Sigurð G. Tómasson sem var
dagskrárstjóri. „Mér til mikillar
ánægju sögðu þeir ókei.“
Undanfarin fjögur ár hefur
Óli Palli tekið þáttinn upp einn
heima hjá sér í Hafnarfirðin-
um en ekki í útvarpshúsinu við
Efstaleiti eins og margir kynnu
að halda. „Þetta er herbergi með
góðu sándi og teppi á gólfinu.
Síðan er þarna ekkert annað en
tölva, hljóðkort og míkrafónn,
fyrir utan allt plötu- og bókasafn-
ið mitt. Þetta er algjör draumur
í dós og það besta sem fyrir mig
gat komið,“ segir hann. Í hverri
viku eyðir hann fimmtán til þrjá-
tíu klukkustundum í þáttinn áður
en hann sendir hann fullunninn
til Rásar 2.
Að sögn Óla Palla er árið sem er
að líða eitt öflugasta Rokklands-
árið til þessa. „Ég hef líklega
aldrei fengið eins mikil viðbrögð
við einstökum þáttum,“ segir hann
en á þessu ári hefur hann fjall-
að ítarlega bæði um Bítlana og
U2. Einnig hefur hann útvarpað
afmælistónleikum Eiríks Hauks-
sonar, upptökum Damiens Rice úr
Sundlauginni og stórtónleikunum
á menningarnótt. Sömuleiðis hefur
hann fjallað um Airwaves-hátíðina
og útvarpað beint frá Hróarskeldu
eins og undanfarin ár.
Óli Palli vonast til að halda
áfram með Rokklandið um ókom-
in ár. „Ég tek eitt skref í einu en
þættirnir verða alla vega 750. Ég
vona að þeir verði eitt þúsund og
vonandi miklu fleiri.“
freyr@frettabladid.is
Stefnir á eitt þúsund þætti
FÉKK LEYFI FRÁ MAGGA EINARS Ólafur Páll Gunnarsson fékk leyfi Magnúsar Einars-
sonar, þáverandi tónlistarstjóra Rásar 2, til að gera útvarpsþáttinn Rokkland. Síðan
eru liðnir sjö hundruð þættir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mugison þræðir nú búllur í Evr-
ópu, er einn á ferð með áttatíu
kílóa hljóðfæri sem hann hannaði
með Páli Einarssyni uppfinninga-
manni.
„Þetta er tækniundur, eiginlega
vasaleikhús,“ segir Mugison frá
Danmörku. „Ég er aðallega að fara
þennan hring til að prófa tækið.
Ég vona að það bili sem mest því
ég ætla að gera plötu á það. Þegar
ég fer að fylgja þeirri plötu eftir
væri glatað ef draslið væri alltaf
að bila. Það hefur bilað á hverju
einasta kvöldi hingað til, svo túr-
inn er að virka sem skyldi. Ég hef
sem betur fer náð að gera við það
til þessa.“
Ekki er komið nafn á hljóðfærið
enn þá en Mugison er opinn fyrir
góðum hugmyndum. „Guðni bassa-
leikari vill að ég kalli það saxófón
og vill að saxófónn verði kallaður
saurop djöfulsins í staðinn,“ segir
hann og hlær.
Mugison hefur ekki ferðast án
hljómsveitar síðan 2004 og segir
þetta mikið hark. „Ég kaupi ferskar
nærbuxur annan hvern dag en ann-
ars er þetta bara ég og tækið. Ég
ferðast um í lestum á Interrail-
passa. Ég var í Hamborg á mánu-
dagskvöldið. Það er mikil ógæfa
yfir þessum Molotow-klúbbi sem
ég spilaði á. Ég var þarna líka
fyrir fimm árum með Kippa Kan-
ínus. Þeir eru með dýnur inni á
ókyntri skrifstofu fyrir poppar-
ana og Kippi lagðist í torkennilega
slettu síðan kvöldinu áður. Ég var
búinn að segja bókaranum að ég
myndi aldrei gista þarna aftur en
eins og oft áður heyrði hann ekkert
í mér. Það er hommateknóklúbbur
undir staðnum og þar var bullandi
stuð til klukkan fimm um nóttina.
Ég gat ekkert sofið og var orðin
eins og móðursjúk amma, sturlað-
ur af reiði. Missti svo af lestinni og
er hér skröltandi á síðustu stundu
áleiðis í næsta klúbb í Óðinsvéum.“
- drg
Þræðir helstu búllur Evrópu
FERSKAR NÆRBUXUR ANNAN HVERN
DAG Mugison með „saxófóninn“ í Ham-
borg. MYND/ANTON KRAMER