Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 72
64 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdótt-
ir átti magnaða viku með TCU
í bandaríska háskólaboltanum.
Hún var valin besti leikmaður
vikunnar eftir að hafa leitt sitt lið
til tveggja flottra sigra á SMU og
Texas A&M sem var fyrir leikinn
talið vera fimmta besta kvennahá-
skólalið Bandaríkjanna.
„Þetta var svona stærsti leikur-
inn í „non-conference“ hjá okkur
þannig að við erum búnar að bíða
eftir þessu lengi og það var æðis-
legt að koma út með sigur,“ sagði
Helena kát með sigurinn. Helena
var líka ánægð með eigin frammi-
stöðu en hún var með 20 stig, 8
fráköst og 7 stoðsendingar í leikn-
um.
„Það vantaði einhvern til að taka
af skarið í seinni hálfleik. Skotin
mín voru að detta og ég var ákveð-
in í að keyra upp að körfunni og ná
að spila uppi skotmennina okkar,
og það gekk vel,“ segir Helena sem
sagði að leikurinn hafi verið harð-
ur.
Þurfti að taka af skarið
Helena var allt í öllu í seinni hálf-
leik þegar hún skoraði 18 stig og
leiddi endurkomu TCU-liðsins en
liðið lenti mest ellefu stigum undir.
„Ég var óheppin með villur í fyrri
hálfleik og sat mikið á bekknum út
af því. Ég skaut líka bara einu skoti
á körfuna. Ég vissi að ég þyrfti að
taka af skarið í sóknarleiknum í
seinni hálfleik,“ segir Helena.
Það er ekki langt síðan að þjálf-
arinn, Jeff Mittie, tók Helenu í
gegn, tók hana út úr byrjunarlið-
inu og setti hana af sem fyrirliða í
einum leik. Hún var gerð að blóra-
böggli eftir slakan leik en Helena
tók þessu án mótmæla og var þess
í stað staðráðin í að svara fyrir sig
inni á vellinum. Það hefur held-
ur betur tekist upp á síðkastið og
þjálfarinn var að þessu sinni grát-
klökkur eftir leikinn.
Þjálfarinn klökkur inni í klefa
„Mittie sagðist vera gífurlega
stoltur af okkur og sagði að þótt
við hefðum tapað þá hefði hann
samt verið stoltur, því við lögðum
okkur svo mikið fram. En hann var
bara rosalega ánægður með okkur
og maður sá það alveg á honum, en
hann er þekktur fyrir það hér að
vera ekki að sýna of miklar tilfinn-
ingar, en hann missti þær allar út
inni í klefa eftir leikinn,“ segir
Helena.
Helena var einnig í aðalhlut-
verki í tveimur eftirminnilegustu
sigrum TCU á sterkum skólum
í fyrravetur. Helena var þá með
18 stig og 7 stoðsendingar þegar
liðið vann Maryland 80-68 í fyrsta
leik en Maryland var þá í 3. sæti
styrkleikalistans. TCU-liðið endur-
tók síðan leikinn með því að vinna
þriðja besta liðið á útivelli þegar
liðið vann 82-73 sigur á CAL og
tryggði sérsigur á Collers Inter-
national Classic-mótinu. Helena
var með 17 stig og 10 stoðsending-
ar í þessum leik og var valin besti
leikmaður mótsins.
„Ég held að það sé hægt að segja
það að þetta hafi verið flottasti
leikurinn minn með TCU. Í fyrra
unnum við líka tvo risasigra, en
mér finnst þessi vera sérstaklega
stór vegna þess að við erum úr
sama ríki, og það er smá rígur á
milli. Við spiluðum líka svo svaka-
lega flottan körfubolta síðustu tíu
mínúturnar, vorum virkilega að
leggja okkur allar fram og upp-
skárum eftir því,“ segir Helena.
Það gerði þessa viku enn þá sér-
stakari að hún var með pabba og
mömmu sína í heimsókn. Sverrir
Hjörleifsson og Svanhildur Guð-
laugsdóttir sáu stelpuna sína eiga
tvo stórleiki og blómstra þegar
spennan var hvað mest í leikj-
unum. „Þau fengu að vera part-
ur af þessu. Það voru um 4.000
TCU áhorfendur á leiknum og það
tók ekki nema um klukkutíma að
komast frá íþróttahúsinu, eftir að
heilsa upp á fólkið og gefa eigin-
handaráritanir. Mér fannst frá-
bært að hafa þau og það gefur mér
alltaf aukaorku að vita að þau séu
að horfa,“ segir Helena og hún er
bjartsýn á framhaldið.
Það sem liðið þurfti
„Ég held að þetta hafi verið ein-
mitt það sem liðið mitt þurfti. Við
erum með gríðarlega hæfileikaríkt
lið og ég held að það sem við höfum
lært seinustu tvær vikur hafi
kennt okkur og sýnt okkur hversu
góðar við getum verið. Markmið-
ið er að tapa ekki fleiri leikjum í
ár þannig að við erum bara gríðar-
lega spenntar fyrir framhaldinu,“
segir Helena en hún segir að sigrar
á liðum í 5. og 18. sæti styrkleika-
listans eigi eftir að hjálpa liðinu að
komast inn í úrslitakeppnina í vor.
Það verður því fróðlegt að fylgjast
með frekari ævintýrum og afrek-
um Helenu í bandaríska háskóla-
boltanum á næstunni.
ooj@frettabladid.is
Besti leikurinn minn með TCU-liðinu
Helena Sverrisdóttir komst aftur á forsíðu vefsíðu ESPN eftir frábæra frammistöðu í 56-54 sigri TCU á fimmta besta liði bandaríska
háskólaboltans. „Það gefur mér alltaf aukaorku að vita að þau séu að horfa,“ segir Helena um það að pabbi og mamma hennar voru í
heimsókn hjá henni og sáu hana fara á kostum í tveimur leikjum sem gerði hana að leikmanni vikunnar í Mountain West deildinni.
SIGUR Í HÖFN Sigurgleðin leyndi sér ekki hjá Helenu Sverrisdóttur í leikslok.
MYND/AP
Staðreyndir um dagblaðalestur
Íslendingar yngri en 55 ára verja lengri tíma á virkum dögum
til að lesa síður Fréttablaðsins en síður Morgunblaðsins.
Allt sem þú þarft...
Heimild: Lestrarkönnun Capacent maí-okt 2009.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu yngri en 60 ára sem búa á
áskriftarheimilum Morgunblaðsins
lesa frekar Fréttablaðið.