Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 6
6 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
Helgar
tilboð
12.995
9.995
LAROUSSE GASTRONOMIQUE
Ný útgáfa
FLÓTTAMENN Íraski flóttamaðurinn
Nour Al-din Al-Azzawi snýr aftur
til Íslands á ellefta tímanum í
kvöld eftir tveggja mánaða dvöl í
Grikklandi. Hann var sem kunn-
ugt er sendur þangað á grundvelli
Dyflinnarsam-
komulagsins, við
mótmæli Rauða
krossins og ýmissa
einstaklinga.
Strax og Nour
kom til Grikklands
byrjuðu vinir hans
á Íslandi að safna
fyrir uppihaldi
hans og hugsan-
legri heimkomu.
Helena Stefáns-
dóttir leikstjóri stofnaði fyrir hann
reikning og söfnuðust hátt í fjögur
hundruð þúsund krónur. Hún getur
því borgað flugið til landsins.
Á Grikklandi féll Nour frá
umsókn sinni um pólitískt hæli,
sem er mjög erfitt að fá, og bað
þess í stað um að fá atvinnu- og
dvalarleyfi á Íslandi.
„Hann fær að vera hér á meðan
á grundvelli þess hvað hann er
ungur [fæddur 1990] og þar sem
hann er búinn að mynda tengsl hér
á landi. Hann á hér kærustu og
er með vinnu,“ segir Helena
Stefánsdóttir.
Nour sjálfur segist feginn að fá
að koma til Íslands, ekki sem hælis-
leitandi heldur sem frjáls maður.
Hann hafi farið til margra Evrópu-
landa, en á Íslandi vilji hann vera.
Hér sé hans heimili, atvinna og
vinir. Spurður um dvölina í Grikk-
landi segir Nour:
„Nei, ég hef ekki verið í flótta-
mannabúðum. Fyrstu nóttina
stungu þeir mér í fangelsi á flug-
vellinum og töluðu við mig í fimm
mínútur daginn eftir. Ég sagði
þeim að ég vildi ekki vera hælis-
leitandi í Grikklandi. Þeir létu mig
þá skrifa undir eitthvað á grísku og
sögðu mér að ég væri frjáls. Síðan
hef ég verið á götunni, og
svaf til dæmis í kirkju í
nótt.“
Kristrún Kristinsdóttir, skrif-
stofustjóri í dóms- og mann-
réttindaráðuneytinu, segir máli
Nours lokið hjá ráðuneytinu
og hann sé nú alfarið á vegum
Útlendingastofnunar.
„Ráðuneytið kemur ekkert að
þessari ákvörðun, enda er það
kærustig í slíkum málum og skiptir
það sér ekki af þeim, til að viðhalda
hlutleysi sínu,“ segir hún. Ekki sé
því hægt að tala um stefnubreyt-
ingu í málefnum flóttamanna, í það
minnsta ekki hjá ráðuneytinu.
Rósa Dögg Flosadóttir, settur
forstjóri Útlendingastofnunar, neit-
ar því einnig að um stefnubreyt-
ingu sé að ræða, að því leyt-
inu til að Nour fái að dvelja
hér á meðan umsóknin er til
umsagnar.
„Þetta kemur alloft fyrir.
Það er heimild í lögum til
þess að víkja frá megin-
reglunni um að umsækj-
andinn skuli dveljast erlend-
is á meðan umsókn hans er til
skoðunar. Það var óskað eftir
undanþágu frá þessu og á
þá ósk var fallist,“ segir
hún.
klemens@ frettabladid.is
Nour kemur aftur
til landsins í kvöld
Hælisleitandinn Nour frá Írak fær að dvelja hér á meðan umsókn um atvinnu-
og dvalarleyfi er skoðuð. Vinir á Íslandi greiða ferðakostnaðinn. Hefur verið á
götunni í Aþenu og svaf í kirkju í nótt. Ekki breytt um stefnu í ráðuneytinu.
RÓSA DÖGG
FLOSADÓTTIR
HELENA STEFÁNSDÓTTIR
Hátt í fjögur hundruð
þúsund kríonur söfnuðust
til styrktar Nour á reikning
sem Helena stofnaði. Fyrir
það fé var hægt að kaupa
fyrir hann farseðil.
NOUR AL-DIN-AZZ-
AWI Íraski flóttamað-
urinn fór út með
íslenskar krónur
einungis og þurfti
því að lifa spart
í Aþenu. Hann
hefur fengið að
sofa í kirkju einni
síðustu daga.
MYND/VÍKURFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Fullvíst er talið að
karlmaður, sem um það bil tíu þús-
und evrum var rænt af í Súðarvogi
síðastliðið þriðjudagskvöld, hafi
verið leiddur í gildru.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins hafði maðurinn, sem er
rétt rúmlega tvítugur, boðið evru-
sjóðinn til sölu á netinu og feng-
ið viðbrögð þar. Síðan var hringt í
hann úr leyninúmeri. Hringjand-
inn kvaðst vera tilbúinn að kaupa
evrurnar af honum ásamt öðrum
manni. Mælti hann sér mót við
manninn í Súðarvogi um tíuleytið
um kvöldið til að gera viðskiptin.
Þegar maðurinn mætti á staðinn
hitti hann fyrir tvo grímuklædda
menn. Þeir heimtuðu af honum
evrurnar og sögðu honum að
hann skyldi hafa verra af ef
hann afhenti þær ekki mótþróa-
laust. Maðurinn taldi sig ekki eiga
nema einn kost í stöðunni og lét
hann því ræningjana hafa sjóð-
inn, sem nemur tveimur milljón-
um íslenskra króna. Þeir hurfu á
braut að því loknu.
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu fer með rannsókn máls-
ins. Meðal annars er mannanna
tveggja leitað, en þar sem evrueig-
andinn þekkti hvorki haus né sporð
á þeim og þeir voru grímuklæddir
liggur ekki fyrir lýsing á þeim.
- jss
Lögregla leitar enn tveggja grímuklæddra ræningja úr Súðarvogi:
Evrumaður var leiddur í gildru
EVRUSJÓÐUR Maðurinn var rændur
evrum, sem námu um tveimur milljón-
um að verðmæti.
DÓMSMÁL Eugenio Daudo Silva Chipa hefur verið
dæmdur í Hæstarétti í fjögurra ára og sex mánaða
fangelsi fyrir hrottalega nauðgun. Að auki var
honum gert að greiða fórnarlambinu 1,8 milljónir
króna.
Maðurinn réðst á konuna í húsasundi í iðnaðar-
hverfi og hafði samræði við hana með því að beita
hana ofbeldi. Hann notfærði sér að hún gat ekki
spornað við samræðinu sökum ölvunar. Við atlög-
una hlaut konan fjölmarga áverka á líkama og höfði.
Framburður mannsins var að mati dómsins ótrú-
verðugur um tiltekin atriði málsins, en framburð-
ur konunnar þótti hins vegar hafa verið trúverðug-
ur, að því leyti sem hún mundi atvik. Rannsókn á
áfengismagni í blóði hennar sýndi að hún hefði verið
undir miklum áhrifum áfengis.
Loks gaf framburður vitna sem afskipti höfðu af
konunni um morguninn eftir athæfi mannsins og
framburður sálfræðings til kynna að eitthvað mjög
alvarlegt hefði komið fyrir hana þennan morgun. Þá
var talið fullvíst af hinum miklu líkamlegu áverk-
um sem konan bar eftir atburðinn að maðurinn
hefði þurft að yfirvinna líkamlega mótspyrnu til að
hafa samræði við hana. - jss
Hæstiréttur staðfestir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur:
Fjögurra og hálfs árs fangelsi
fyrir hrottalega nauðgun
HÆSTIRÉTTUR Staðfesti dóm héraðsdóms.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
dæmt karlmann í fjögurra mán-
aða fangelsi fyrir vörslu og með-
ferð á rúmlega kílói af marijúana
í félagi við tvo aðra menn.
Hann hafði farið ásamt sam-
verkamönnum sínum á ákveðinn
stað í Kópavogi til að taka á móti
sendingu frá Póllandi. Pakinn
sem þeir tóku á móti innihélt hins
vegar aðeins matvæli og lögleg
efni þar sem lögregla hafði skipt
fíkniefnunum út án vitneskju
þeirra.
Maðurinn á þó nokkurn brota-
feril að baki samkvæmt skrá
Interpol, en hafði ekki áður kom-
ist í kast við lögin hér á landi. - jss
Fjögurra mánaða fangelsi:
Með kíló af
maríjúana
Auglýsingasími
– Mest lesið
Á ríkið að fara í skaðabótamál
við einstaklinga vegna banka-
hrunsins?
Já 95,1%
Nei 4,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er hægt að ráða við fjárþörf
þjóðarbúsins án þess að breyta
skattkerfinu?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
KJÖRKASSINN