Fréttablaðið - 18.12.2009, Síða 16
16 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
BYLTINGARAFMÆLI FAGNAÐ Íbúar
Rúmeníu fagna þessa dagana því að
20 ár eru liðin frá því harðstjóranum
Nicolae Ceausescu var steypt af stóli.
Í bænum Timisoara þar sem átökin
við lögregluna hófust var raðað upp
kertum sem mynda kross. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ryksugur
- fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir.
Hátúni 6a . 105 Reykjavík
Sími 552 4420 . www.fonix.is
MEXÍKÓ, AP Fall glæpaforingjans
Arturo Beltran Leyva þykir einn
stærsti sigurinn til þessa í stríði
Felipe Calderon forseta gegn
eiturlyfjaglæpum.
Leyva beið bana ásamt þremur
félögum sínum á miðvikudagsmorg-
un þegar tvö hundruð hermenn
réðust til inngöngu í íbúðahótel í
bænum Guerna-
vaca. Fimmti
félaginn framdi
sjálfsvíg meðan
á átökunum stóð.
Glæpamenn-
irnir vörðust
meðal annars
með sprengjum
og tókst að særa
þrjá hermenn.
Calderon for-
seti var stadd-
ur í Kaupmannahöfn meðan árás-
in var gerð, þar sem hann sótti
loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna. Hann fagnaði árásinni
og sagði hana mikilvægan
áfanga fyrir bæði stjórn og íbúa
landsins.
Allt frá því að Calderon komst
til valda árið 2006 hefur hann
lagt mikla áherslu á baráttu gegn
eiturlyfjum. Í þessu stríði hefur
hann beitt 45 þúsund hermönnum
og stundum sjóhernum að auki.
Beltran Leyva var einn fimm
bræðra sem sögðu fyrir nokkr-
um árum skilið við glæpaklíku
fíkniefnabarónsins Joaquin „El
Chapo“ Guzman frá bænum Sina-
loa og gengu til liðs við Los Zetas,
hóp fyrrverandi hermanna sem
önnur glæpaklíka notaði til leigu-
morða. Til þessa klofnings er talið
að rekja megi upphafið að blóðug-
um innbyrðis átökum í fíkniefna-
heimi Mexíkó síðustu árin. Þau
átök hafa kostað fjórtán þúsund
manns lífið.
Bræðurnir lögðu fljótlega undir
sig helstu smyglleiðir fíkniefna í
norðaustanverðu landinu. Samtök
þeirra hafa framið fjöldann allan
af morðum. Þeim hefur einnig tek-
ist að múta embættismönnum, lög-
reglumönnum og öðrum til að hlífa
starfsemi sinni.
Einn bræðranna, Alfredo Bel-
tran Leyva, var handtekinn á
síðasta ári.
Beltran Leyva klíkan er nú talin
ein af sex stærstu fíkniefnaklík-
um Mexíkó. Bandarísk stjórnvöld
segja að hún dreifi fleiri tonnum af
kókaíni í Bandaríkjunum ár hvert,
ásamt miklu magni af heróíni.
Sjö ár eru liðin síðan stjórnvöld-
um í Mexíkó tókst síðast að fella
hátt settan fíkniefnaforingja. Það
gerðist þegar lögregluforingi í
Sinaloa skaut Ramon Arellano
Felix, foringja Tijuana-klíkunnar.
Lögreglan hefur náð töluverðum
árangri undanfarið ár í að þrengja
að Beltran Leyva.
gudsteinn@frettabladid.is
Mexíkóskur fíkni-
efnabarón drepinn
Arturo Beltran Leyva var foringi einnar stærstu eiturlyfjaklíkunnar í Mexíkó.
Felipe Calderon forseti segir fall hans mikilvægan áfanga. Fíkniefnastyrjaldir
glæpahópa í Mexíkó hafa kostað fjórtán þúsund manns lífið síðustu árin.
ARTURO BELTRAN
LEYVA
SJÓHERINN RÆÐST TIL INNGÖNGU Hermennirnir þræddu húsið frá íbúð til íbúðar og
skipuðu fólki að fara niður í matsal. NORDICPHOTOS/AFP
SAMGÖNGUR „Við íbúar Fjarðabyggðar gerum
þá eindregnu kröfu til þingmanna kjördæmis-
ins og ráðamanna í samgöngumálum að herða
sem aldrei fyrr baráttuna fyrir því að fram-
kvæmdir við Norðfjarðargöng hefjist strax að
loknum Héðinsfjarðargöngum,“ segir í ályktun
borgarafundar á Eskifirði á mánudagskvöld.
„Á undanförnum misserum hafa náðst mikil-
vægir áfangar í samgöngum innan Fjarða-
byggðar. Enn stendur versti farartálminn þó
eftir – einbreið göng í meira en 600 metra hæð
í Oddsskarði milli Eskifjarðar og Norðfjarðar,“
segir í ályktunni. „Við gerum þá kröfu til sam-
gönguyfirvalda að löngu gefin fyrirheit um
Norðfjarðargöng verði efnd, enda er alls ekki
hægt að líta svo á að sveitarfélagið sé að fullu
sameinað fyrr en göngin hafa verið tekin í
notkun.“
Þá er minnt á að í Fjarðabyggð, norðan Odds-
skarðs, séu meðal annars Fjórðungssjúkrahús
Austurlands, Verkmenntaskóli Austurlands og
eitt stærsta útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki
landsins. „Sunnan Oddsskarðs við Mjóeyrar-
höfn er 700 til 800 manna vinnustaður, sá
stærsti á Austurlandi. Um þann erfiða fjallveg,
sem Oddsskarð er, fara fram gífurlegir flutn-
ingar á fólki, vörum og gjaldeyrisskapandi
sjávarafurðum til útflutnings,“ segir í ályktun-
inni og þess er krafist að upphaf framkvæmda
við Norðfjarðargöng verði strax að loknum
Héðinsfjarðargöngum á næsta eða þar næsta
ári. - gar
Borgarafundur í Fjarðabyggð segir sveitarfélagið enn ekki að fullu sameinað:
Vilja Norðfjarðargöng strax eftir Héðinsfjörð
GANGAMUNNI Í ODDSSKARÐI Íbúar í Fjarðabyggð vilja
að boruð verði ný göng í stað einbreiðra ganga í sex
hundruð metra hæð í Oddsskarði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍSRAEL, AP Ehud Olmert, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ísraels,
bauð Palestínumönnum 5,8 pró-
sent af landsvæði Ísraels, bæði við
Gasasvæðið og Vesturbakkann, í
skiptum fyrir 6,3 prósent af land-
svæði Vesturbakkans.
Á svæðunum sem Olmert vildi
fá frá Palestínumönnum búa 75
prósent þeirra landtökumanna sem
lagt hafa undir sig palestínskt land
á Vesturbakkanum.
Frá þessu er skýrt á vefsíðu ísra-
elska dagblaðsins Haaretz. Þar er
einnig haft eftir Mahmoud Abbas,
forseta Palestínustjórnar, að samn-
inganefnd Ísraela hafi lagt fram
margvísleg tilboð.
Þetta tiltekna tilboð er sagt hafa
verið sett fram hinn 16. september
árið 2008, þegar Olmert átti erfitt
með að bjóða trúverðuga samninga
vegna spillingarmála sem höfðu
veikt stöðu hans mjög. Daginn
eftir tapaði Olmert í leiðtogakjöri
stjórnmálaflokks síns, Kadima.
Palestínumenn svöruðu ekki til-
boðinu og viðræðurnar náðu engu
skriði, þótt stefnt hafi verið að því
að ljúka þeim fyrir árslok. Endan-
lega slitnaði síðan upp úr viðræð-
um þegar Ísraelar hófu innrás sína
á Gasasvæðið í lok desember.
Undanfarna mánuði hefur
strandað á því að Ísraelar neita að
stöðva framkvæmdir á landtöku-
svæðum á Vesturbakkanum og í
austanverðri Jerúsalem. - gb
Abbas hafnaði tilboði frá Olmert um að skiptast á landsvæðum:
Olmert vildi landtökusvæðin
MAHMOUD ABBAS Ítrekaði í gær kröfur um að Austur-Jerúsalem yrði höfuðborg
Palestínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GRÆNLAND Grænlenska heima-
stjórnin vill að Danir hreinsi til
í kringum Thule-herstöðina á
Grænlandi.
Stjórnin hefur krafið danska
umhverfisráðherrann, Toels Lund
Poulsen, um þetta. Grænlands-
pósturinn telur það geta kostað
milli 20 og 120 milljónir danskra
króna eða um þrjá milljarða
íslenskra króna, að hreinsa Dund-
as-svæðið í Thule, eftir því hvern-
ig það er gert. Þegar Bandaríkja-
menn skildu við svæðið tryggðu
þeir að þeir yrðu ekki rukkaðir
fyrir umhverfisspjöll. - kóþ
Herstöðin á Grænlandi:
Danir greiði
fyrir hreinsun
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Vestur-
byggðar mótmælir harðlega
ákvörðun Varasjóðs húsnæðis-
mála um að ekki fáist lengur
fjármunir til mótframlags vegna
sölu félagslegra íbúða og vegna
rekstrarhalla og auðra íbúða
sveitarfélaga.
„Þessi ákvörðun setur fjár-
hagsáætlun 2010 sem er lokið,
verulega úr skorðum þar sem
48 íbúðir eru í sveitarfélaginu,
falla undir þetta kerfi,“ segir
bæjarráðið, sem kveðst telja
mjög ámælisvert hve seint þessi
ákvörðun sé tekin og tilkynnt.
- gar
Varasjóður húsnæðismála:
Ekkert fé í kaup
á félagsíbúðum
PATREKSFJÖRÐUR Fjárhagsáætlun næsta
árs hefur verið kollvarpað.
DÓMSTÓLAR Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
Héraðsdómi Norðurlands eystra
fyrir brot gegn valdstjórninni.
Manninum er gefið að sök að
hafa aðfaranótt sunnudagsins 7.
desember á síðasta ári ítrekað
hótað þremur lögreglumönnum,
sem voru við skyldustörf, ofbeldi
og lífláti.
Hótanir sínar hafði maðurinn
í frammi fyrir utan slysadeild
Landspítalans og í lögreglubif-
reið á leið frá slysadeildinni að
lögreglustöðinni á Hverfisgötu.
- jss
Maður á þrítugsaldri:
Hótaði lögreglu-
mönnum lífláti