Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 18
18 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
DROTTNING BÍÐUR BROTTFARAR
Elísabet Bretadrottning þurfti að bíða
í nokkra stund í lestarklefa á Kings
Cross-járnbrautarstöðinni í London
áður en lestin hélt af stað.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þú finnur réttar upplýsingar um þennan
hlut á kokka.is þar sem þú getur skoðað
og keypt vörur í ró og næði.
ATVINNUMÁL Nær þrefalt fleiri umsóknir bár-
ust Tækniþróunarsjóði um styrki á þessu ári
en í fyrra. Núna bárust 267 umsóknir, en 91
árið áður. Þá bárust nítján umsóknir um önd-
vegisstyrki.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kynnti
haustúthlutun sjóðsins í Þjóðmenningarhúsinu
í gær. Alls fengu 28 verkefni styrk úr sjóðn-
um. Jafnframt héldu fulltrúar fimm verkefna
sem hlutu styrk kynningu á verkefnum sínum.
Fram kom í máli Katrínar að framlag til
Tækniþróunarsjóðs hefði aukist um níutíu
milljónir króna frá því í fyrra og að á þessu
ári hefði sjóðurinn haft 960 milljónir króna
til ráðstöfunar. Styrkir ársins námu alls
465 milljónum króna og runnu til 76 nýrra
verkefna og fjörutíu verkefna sem hlutu
framhaldsstuðning. Sjóðurinn veitir verkefn-
um stuðning í allt að þrjú ár.
Þá var úthlutað sextíu milljónum króna til
fjögurra „öndvegisverkefna“ í þremur undir-
flokkum, en það eru vistvænt eldsneyti, vist-
vænar byggingar og skipulag, og sjálfbær
ferðaþjónusta.
Katrín sagðist í opnunarræðu sinni vilja
nota tækifærið og árétta mikilvægi uppbygg-
ingar nýrra fyrirtækja, sprota- og hátækni-
fyrirtækja á tímum sem þessum. Hún sagði
ánægjulegt að geta frá því greint að sam-
kvæmt lauslegri samantekt hennar yfir fyrir-
tæki sem hefðu komist á legg síðustu mánuði
og störfum sem hún vissi til að yrðu til á kom-
andi mánuðum, hvort heldur það væri í tölvu-
leikjaiðnaði eða annars staðar hjá frumkvöðl-
um, skiptu þau störf hundruðum. „Bara það
sem ég man eftir telur um það bil 500 störf,
hvorki meira né minna. Og það er nú bara rúm-
lega álver,“ sagði hún og kvaðst hafa saknað
ítarlegri umfjöllunar um þessa uppbyggingu.
„En kannski er það vegna þess að ekki hefur
þurft skurðgröfu eða skóflu til að búa til þessi
störf, heldur bara skrifborð og tölvu.“
Katrín ítrekaði mikilvægi Tækniþróunar-
sjóðs og rifjaði upp að á sprotaþingi hefði hún
eitt sinn sagt að fjórfalda þyrfti sjóðinn. „Það
gerist vonandi fyrr en síðar,“ sagði hún og bætti
við að þótt hún sem iðnaðarráðherra hefði ekki
getað komið stækkuninni á hefði tekist að verja
sjóðinn. „Að minnsta kosti verða á næsta ári
settar í sjóðinn þrjátíu milljónir umfram það
sem er í dag,“ sagði hún, en þá yrði stærð hans
720 milljónir króna. olikr@frettabladid.is
Um 500 ný störf hafa skapast
Haustúthlutanir Tækniþróunarsjóðs voru kynntar í gær. Fimm verkefni voru kynnt sérstaklega. Katrín Júlíus-
dóttir iðnaðarráðherra taldi vel hafa gengið að verja sjóðinn þótt ekki hefði náðst að stækka hann í kreppunni.
STYRKÞEGAR RÆÐA VIÐ RÁÐHERRA Valdimar Össurarson hjá Valorku fylgist með Sigmari Guðbjörnssyni hjá
Stjörnu Odda ræða við Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Að baki þeim sjást
Jóhann Örlygsson frá Háskólanum á Akureyri, fulltrúi verkefnisins LíFEldsneyti, og Kjartan Ragnarsson, fulltrúi verk-
efnis sem snýr að uppsetningu miðaldabaða við Deildartunguhver. Að baki Katrínar glittir í Sveinbjörn Höskulds-
son frá Nox Medical. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Töluverðar væntingar eru gerðar til
allmargra verkefna sem Tækniþróun-
arsjóður styrkir. Fimm slík verkefni
voru kynnt sérstaklega þegar nýjustu
úthlutanir sjóðsins voru kynntar í
gær.
Sveinbjörn Höskuldsson frá Nox
Medical kynnti verkefni sem snýr að
þróun einnota öndunarskynjara sem
meðal annars yrði notaður í svefn-
rannsóknum. Fyrirtækið hefur áður
þróað tæki til svefnrannsókna, en
skynjararnir eiga einnig að vinna með
öðrum tækjum. Fyrirtækið er langt
komið og hefur náð samningum um
dreifingu. „Við ætlum að vera komin
í mjög góða stöðu með þessa vöru
eftir eitt ár,“ sagði hann.
Sigmar Guðbjörnsson hjá Stjörnu
Odda kynnti sendi og mælitæki fyrir
hjartslátt og súrefnismettun sem
nota á við mælingar í tilraunadýr-
um sem notuð eru við lyfjaþróun.
Upphaflega var varan þróuð fyrir
fiskirannsóknir, en Sigmar segir
tækni þeirra mun betri fyrir tilrauna-
dýrin, sem losni við snúrufargan og
íþyngjandi ígræðslur. „Við berum
hag dýrsins eins mikið fyrir brjósti og
mögulegt er,“ sagði hann og kvaðst
ætla að ráða þrjá nýja starfsmenn
þegar í janúar vegna verkefnisins.
Kjartan Ragnarsson kynnti
stórhuga verkefni Landnámsseturs
Íslands um að koma upp miðalda-
böðum við Deildartunguhver, vatns-
mesta hver landsins. Verkefnið kostar
1,5 milljarða króna, en hann segir
að sýnt hafi sig að mesta framlegð í
ferðaþjónustu hér hafi til þessa verið
að finna í Bláa lóninu og jarðböð-
unum við Mývatn. Miðaldaböðin
yrðu mikilvægur ferðamannasegull á
Vesturlandi.
Valdimar Össurarson hjá Valorku
kynnti hugmyndir sínar um að virkja
sjávarföllin, en uppfinning hans sem
fer nú í prófanir er talin vel til þess
fallin að virkja hæga strauma. Hann
segir núverandi tækni við slíka virkjun
byggja á hönnun vindmylla, meðan
hans sé meira í ætt við vatnshjól.
Þá kynnti Jóhann Örlygsson frá
Háskólanum á Akureyri verkefnið
LÍFEldsneyti sem fékk öndvegisstyrk
til rannsókna á framleiðslu elds-
neytis úr lífmassa af ýmsum toga.
Hitakærar örverur eru notaðar til að
brjóta niður lífmassann og framleiða
etanól.
VERKEFNI SEM KYNNT VORU SÉRSTAKLEGA
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði kannabisræktun, tók
hundruð gramma af amfetamíni
og fann stolinn glæsivagn í húsleit
í fyrradag.
Á þriðja tímanum í fyrradag var
farið til húsleitar í nýbyggt um
það bil 340 fermetra einbýlishús
á þremur hæðum í úthverfi Mos-
fellsbæjar. Höfðu upplýsingar bor-
ist um einkennilegar mannaferðir
á öllum tímum sólarhrings.
Húsráðandi, maður á þrítugsaldri,
var handtekinn er kannabisræktun
fannst þar innandyra í haganlega
földu rými. Hafði hún verið skimuð
af með risastórri kommóðu. Taldi
ræktunin um 150 plöntur á ýmsum
stigum ræktunar.
Í bílskúr fannst nýleg Mercedes
Benz bifreið, margra milljóna virði,
er reyndist eftirlýst frá Akranesi
frá því í sumar.
Tveir fíkniefnaleitarhundar frá
tollgæslunni voru fengnir á stað-
inn. Fann annar þeirra 250 grömm
af amfetamíni sem voru vel falin í
dós, sem var innan um ýmiss konar
drasl á háalofti hússins.
Húsráðandi, sem áður hefur
komið við sögu hjá lögreglu, sætti
yfirheyrslum í gær, en var látinn
laus að þeim loknum.
Sem fyrr minnir lögreglan á
fíkniefnasímann 800-5005. - jss
AMFETAMÍN Fíkniefnaleitarhundur
fann 250 grömm af amfetamíni falin á
háalofti hússins.
Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu:
Tók fíkniefni og stolna glæsikerru
HESTAMENNSKA Hópur hestamanna
mun mæta á gæðingum sínum í
fánareið við Iðnó klukkan 14.15 í
dag.
Þetta er upphaf veglegrar
afmælishátíðar Landssambands
hestamannafélaga sem hefst klukk-
an 15.00 í Iðnó. LH var stofnað nán-
ast á sama stað og afmælishátíðin
er haldin nú, í Baðstofu iðnaðar-
manna 18. desember árið 1949 þar
sem tólf hestamannafélög lögðu
grunninn að sambandinu.
Á hátíðinni verður athygli vakin
á fjölþættu hlutverki íslenska
hestsins og því viðamikla og blóm-
lega starfi sem honum tengist,
bæði hér á landi og erlendis.
Meðal annarra mun Katrín Jak-
obsdóttir menntamálaráðherra
ávarpa samkomuna. Þá verða flutt
fróðleg erindi um ýmislegt viðkom-
andi íslenska hestinum.
Dísella Lárusdóttir syngur og
Gunnar Eyjólfsson flytur ljóð.
Fundarstjóri hátíðarinnar verð-
ur Friðrik Pálsson. Dagskráin er
öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Landsmótið á Vindheimamelum í
sumar verður svo hápunkturinn og
hin eiginlega afmælisveisla allra
hestamanna. Landssamband hesta-
mannafélaga er aðili að Íþrótta-
sambandi Íslands. 47 félög eiga
aðild að sambandinu og er formað-
ur þess Haraldur Þórarinsson. - jss
FÁNAREIÐ Fánareið verður við Iðnó í
dag. Þessi reið var á Kaldármelum.
Sextíu ára afmælishátíð Landssambands hestamannafélaga:
Glæsileg fánareið við Iðnó
BÚRMA, AP Aung San Suu Kyi,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar
í Búrma, fékk að fara úr stofu-
fangelsi á heimili sínu í fyrradag
til að hitta þrjá aldraða leiðtoga
stjórnmálaflokks síns.
Þau ræddu um breytingar á
forystu flokksins. Síðast fékk
hún að hitta leiðtoga flokksins í
janúar árið 2008.
Suu Kyi er 64 ára og hefur
verið í stofufangelsi meira og
minna undanfarna tvo áratugi.
Leiðtogarnir sem hún hitti eru
Aung Shwe, sem er 91 árs, U
Lwin, sem er 86 ára og Lun Tin
sem er 88 ára. - gb
Aung San Suu Kyi:
Fekk að hitta
aldraða félaga
SUU KYI Mátti yfirgefa heimili sitt.
NORDICPHOTOS/AFP
GRIKKLAND Gríski fjármálaráð-
herrann George Papaconstan-
tionou reyndi á miðvikudag að
draga úr áhyggjum fólks af bágri
stöðu efnahagsmála í Grikklandi.
Hann lýsti því yfir, svo komst í
fréttir víða, að staðan væri önnur
á Grikklandi en í ríkjum sem
hefðu farið illa.
„Grikkland er ekki næsta
Ísland, né heldur er það næsta
Dúbaí,“ sagði hann á fundi með
kröfuhöfum.
Kröfuhafarnir höfðu viðrað
áhyggjur af því að Grikkir gætu
ef til vill ekki greitt vexti af
skuldum þjóðarbúsins.
- kóþ
Gríski fjármálaráðherrann:
Grikkland ekki
næsta Ísland