Fréttablaðið - 18.12.2009, Qupperneq 28
28 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur
ákveðið að taka ekki þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins á ári komanda
og kveður borgarmálin eftir 28 ára
starf. Hann hefur gegnt fjölmörg-
um trúnaðarstörfum innan borgar-
kerfisins og sat sem borgarstjóri í
sextán mánuði. Þess utan starfaði
Vilhjálmur sem formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga í
sextán ár.
Það er nærtækt að spyrja mann,
sem hefur varið starfsævinni í
þjónustu við sveitarfélag eins og
Reykjavík, hvað er honum efst í
huga af þeim verkefnum sem hann
hefur glímt við í gegnum árin.
Hiklaust segir Vilhjálmur það
vera starf í þágu eldri borgara og
ekki síst byggingu þjónustuíbúða
og þjónustumiðstöðva, sem nú eru
fjölmargar. „Ég er stoltur af því
að hafa fengið að taka þátt í því
að leiða þessa uppbyggingu sem
hefur tekist afskaplega vel,“ segir
Vilhjálmur.
En hvernig var bæjarbragurinn
þegar þú settist fyrst á stól borgar-
fulltrúa?
„Ég náði inn sem aðalmað-
ur í borgarstjórnarkosningun-
um 1982 og þá var Reykjavík ekki
eins og hún er í dag. Þá var þetta
kannski meiri bær en borg. Það
var til dæmis að mitt fyrsta hlut-
verk var formennska í skipulags-
nefnd. Þá hafði setið vinstri stjórn
í borginni í eitt kjörtímabil og
mikið deilt um það hvort byggja
ætti upp við Rauðavatn eða hvort
nema ætti land í Grafarvogi. Þar
voru bara eitt eða tvö hús á þess-
um tíma sem er í dag um 20 þúsund
manna byggð. Við gengum um þetta
land ég, Markús Örn Antonsson og
Þórður Þorbjarnarson borgarverk-
fræðingur á þessum tíma og töluð-
um um framtíð svæðisins. Þegar
ég lít þarna yfir í dag hugsa ég til
þeirra breytinga sem hafa orðið á
þessum tíma.“
Vilhjálmur segir að stjórnmál-
in hafi verið að sumu leyti öðruvísi
en í dag. Í grunninn séu verkefnin
þó þau sömu og áður. „En þá voru
menn ekki algjörlega uppteknir af
tölvupósti og bloggi. Nú sitja menn
á fundum sokknir ofan í tölvuna
sína. Á fundum borgarstjórnar og
borgarráðs er ekki horft til þeirra
sem eru að tala heldur eru menn
að athuga hvort verið sé að fjalla
um þá, hvað sé að frétta og semja
bókanir. Það jákvæða við tæknina
er auðvitað að upplýsingaflæðið til
borgarbúa hefur aukist. Áður var
þetta lokað og upplýsingar af skorn-
um skammti um stjórnsýsluna og
þjónustu borgarinnar. Þá var borg-
arkerfið hálfgert völundarhús sem
fáir rötuðu um. Umræðan í borg-
arstjórn hefur samt lítið breyst og
átökin eru af sama meiði. Þetta
snýst um hefðbundinn rekstur
sveitarfélagsins.“
Vilhjálmur tók upp fasta viðtals-
tíma fljótlega eftir að hann byrj-
aði sem borgarfulltrúi. Fram til
þess tíma var borgarstjóri sá sem
hafði haft fasta viðtalstíma. „Þetta
hefur verið nefnt fyrirgreiðslupól-
itík og gert lítið úr því að stjórn-
málamenn hefðu eðlileg samskipti
við sína umbjóðendur. Ég er hins
vegar þeirrar skoðunar að þetta
sé ómissandi hluti af okkar störf-
um; að vera í góðu sambandi við
fólk. Það þarf að leiðbeina. Marg-
ir þekkja ekki sinn rétt en þurfa
aðstoð. Þetta snýst ekki um að
verið sé að hygla flokksgæðingum
eins og margir vilja halda fram.
Ég held að þeir sem velja þennan
starfsvettvang vilji láta gott eftir
sig liggja, og það verður betur gert
með persónulegum samskiptum við
þá sem þurfa stuðning.“
Hvaða samferðamenn í borgar-
málunum eru þér eftirminnileg-
astir?
„Albert Guðmundsson er mér
mjög minnisstæður. Hann var mér
samferða í borginni í eitt ár áður
en hann varð ráðherra. Hann var
áhugaverður karakter og þó hann
væri frekur þá þótti mér vænt um
karlinn. Hann er einn duglegasti
maður sem ég hef kynnst og hann
mátti ekkert aumt sjá. Hann vildi
ganga hratt í verkin þó að borgar-
kerfið byði ekki alltaf upp á það. Öll
mál þurfa að fá eðlilega meðferð en
hann setti það ekki alltaf fyrir sig.
Davíð Oddsson settist í stól borg-
arstjóra þegar Vilhjálmur hóf störf
sem borgarfulltrúi, en Davíð hafði
sigrað Albert Guðmundsson í próf-
kjöri. Vilhjálmur starfaði því náið
með Davíð í tæpan áratug á vett-
vangi borgarinnar. „Davíð er minn-
isstæðastur þeirra sem ég hef starf-
að með. Hann er atorkusamur með
afbrigðum og gott að vinna með
honum. Hann er fljótur að hugsa
og taka ákvarðanir. Hann var auð-
vitað stjórnsamur en það var ekki
þannig að hann væri með svipuna
á hópnum og bakkaði oft með sínar
hugmyndir og tillögur. En hann var
djarfur, treysti fólki og var óhrædd-
ur við að deila út verkefnum.“
Af andstæðingum telur Vilhjálm-
ur Sigurjón Pétursson og Alfreð
Þorsteinsson í sérflokki. Þeir hafi
barist hart en vinátta myndaðist
um síðir. „Við deildum afar hart, ég
og Sigurjón. Hann var flugmælskur
og rökfastur. Hann kynnti sér öll
mál vel og átti gott með að koma
hugsunum sínum í orð. Við lærð-
um hvor á annan með tímanum
og þegar sveitarfélögin tóku yfir
rekstur grunnskólans þá bauð ég
honum starf. Ég var spurður hvort
hann væri ekki trésmiður en svar-
aði því til að hann væri maðurinn
sem okkur vantaði. Hann vann
traust allra sem hann vann með.
Það vita svo allir að við Alfreð
erum vinir. Hann er reynslubolti
og framkvæmdamaður, kannski
refur í stjórnmálum eins og marg-
ir segja. En hann kom aldrei í bakið
á mér nokkurn tíman.“
Hvað með þá sem hafa staðið
okkur nær í tíma? R-lista-árin og
samstarfið við Ólaf F. Magnússon.
„Ólafur er hugsjónamaður. Hann
hefur alltaf verið sjálfum sér sam-
kvæmur en ekki alltaf átt samleið
með öðrum. Þarna er ég að tala um
málefnin. Mér hefur fundist hann
grimmur í árásum á ýmsa sam-
herja sína, sérstaklega á síðustu
árum.“
Voru það ekki mistök að fara í
samstarf með Ólafi?
„Mistök og mistök ekki. Alla vega
náðum við meirihluta á nýjan leik
undir forystu sjálfstæðismanna og
við værum ekki í meirihluta í dag
ef ég, og aðallega Kjartan Magnús-
son, hefðum ekki beitt okkur fyrir
þessu. Það er síðan ljóst að Sam-
fylkingin og Vinstri grænir urðu
fyrir algjöru sjokki þegar þetta
gerðist og allt fór á fulla ferð. Í
framhaldinu var Ólafur einfaldlega
lagður í einelti, og fjölmiðlar tóku
þátt í því. Samstarfið gekk ekki
nægilega vel og það var myndaður
nýr meirihluti með Framsóknar-
flokknum. En það er skýrt í mínum
huga að ef við hefðum ekki mynd-
að meirihluta með Ólafi á þessum
tíma þá sætum við ekki í meiri-
hluta. Dagur B. Eggertsson væri
borgarstjóri. Þess vegna var það
gæfuspor að mál þróuðust á þenn-
an veg og þrátt fyrir óróa í tengsl-
um við stjórnarskipti og REI-málið
þá má fólk setja það í samhengi við
það sem gengur á í sölum Alþing-
is. Þetta voru hreinir smámunir
miðað við það. Þetta hafði svo engin
áhrif á fjármálastjórn borgarinnar.
Borgin stendur vel miðað við það
áfall sem hrunið er.
En er hægt að kalla þetta óróa í
borgarmálum. Það var allt kolvit-
laust mánuðum saman?
„Allt kolvitlaust? Það getur verið
enda voru ákveðin öfl innan Sam-
fylkingar og VG sem komu af stað
ólátum og beittu fjölmiðlum fyrir
sig til þess. Það fór ekkert á milli
mála hverjir stýrðu þessum látum
öllum. Það skýrðist af gríðarlegri
gremju og ofsa yfir því að missa
meirihlutann. Það var hins vegar
öllum ljóst að 100 daga meirihlutinn
var dæmdur til að verða skamm-
lífur. Það er hægt að draga upp
þá mynd að allt hafi verið vitlaust
en í þessu húsi hélt fólk áfram að
vinna og hafði stjórn á öllu. Það er
einfaldlega rangt að allt hafi verið
hér í upplausn eins og fullyrt hefur
verið.“
Hvað um valdatíma Reykjavíkur-
listans. Hvaða sýn hefur þú á það
tímabil?
„Þessi tími einkenndist af sífelld-
um breytingum á stjórnsýslunni.
Það var leitað fullkomnunar sem
var ekki til og þetta var sannar-
lega ekki til góða. Þetta gekk þó
bærilega framan af en brotalam-
irnar komu svo í ljós. Alfreð var
lykilmaður og hélt þessu saman.
Hann var aðstoðarborgarstjóri,
má segja. Hann hefur ábyggilega
Ég hef áhyggjur af þessari þjóð
BORGIN KVÖDD Vilhjálmur hefur sinnt borgarmálum í tæpa þrjá áratugi og gegndi formennsku fyrir Samband íslenskra sveitar-
félaga í sextán ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lægsta
verðið
á Normannsþin!
*
* Samkvæmt Fréttablaðinu 1
7. desember 2009
BYKO BÝÐUR
EINGÖNGU UPP
Á HÁGÆÐA
SÉRVALIN JÓLATRÉ
Jólatréssala BYKO er í timbursölu
Breidd, Selfossi og Reyðarfirði
Opið til 22:00 til jóla í
jólatréssölu BYKO Breidd
Hluti af söluandvirði af hverju jólatré fer
til Hjúkrunarheimilis Sunnuhlíðar í Kópavogi.
FRAMHALD Á SÍÐU 30
Í prófkjörum segja menn
eitt og annað en við Gísli
höfum alltaf talað saman. Bak við
tjöldin var tvímælalaust unnið
gegn mér, það er eðli málsins. Ég
varð þó ekki var við að það væri
reynt að sverta mig persónulega.