Fréttablaðið - 18.12.2009, Síða 67
• 11
BERTONI jakkaföt
24.990 kr.
Daniel Bessi skyrta
6990 kr.
Bindi
4990 kr.
BERTONI jakkaföt
49.990 kr.
Daniel Bessi skyrta
10.990 kr.
Bindi
3990 kr.
BERTONI jakkaföt
24.990 kr.
Daniel Bessi skyrta
10.990 kr.
Bindi
3.990 kr.
BERTONI jakkaföt
49.990 kr.
Daniel Bessi skyrta
6.990 kr.
Bindi
4.990 kr.
erum fyndnari en Malta – en við erum
ekki fyndnari en Danir.“
Ebbi: „Við erum að taka smá-
þjóðaleikana. Ég held að við séum
rétt yfir meðallagi …“
Jóhann: „Við erum að taka smá-
þjóðaleikana í grínið.“
Ykkur líður semsagt eins og Tiger
Woods, flóðgáttin er að bresta og
nú eru allir að fara að stíga fram.
Einhverjir verða lélegir og einhverjir
verða góðir.
Ebbi: „Já, við hvetjum fólk til þess
að vera með uppistand.“
Ari: „Þetta er sko hollt og gott!“
Mynduð þið segja að það væri
líkamlega bætandi að vera með
uppistand?
Ari: „Jájájá.“
Hvað með andlegu hliðina? Nú
eru flestir uppistandarar vansælir,
þunglyndissjúklingar?
Ari: „Spurðu bara „hvernig er
þegar gengur ógeðslega vel?“ og
„hvernig er þegar gengur ógeðs-
lega illa?“
Hvernig er þegar gengur ógeðs-
lega vel?
Ari: „Það er geðveikt, alveg frá-
bært.“
En þegar gengur ógeðslega illa?
Ari: „Ohh, hræðilegt.“
Spaugstofan orðin fyndin
Við ræðum aðeins um gæði. Strák-
arnir eru sammála um að flestir ís-
lenskir uppistandarar sem hafa stigið
fram séu almennt góðir.
Ebbi: „Ég held að við séum að ná
að rífa upp aðeins meiri stemningu.
Fólk er meira til í þetta, kannski erum
við ekki að rífa stemninguna upp, fólk
er bara aðeins meira til í þetta.“
Ari: „Ég veit ekki hvort það hefði
verið stemning fyrir þessu fyrir
tveimur árum.“
Ebbi: „Ég er ekki viss um það. Ég
veit það ekki, Spaugstofan er allt í
einu orðin fyndin!
Er það?
Ebbi: „Ja … inni á milli. Þeir eiga
góða spretti eftir hrunið vegna þess
að höggin eru orðin þyngri, það má
meira og fólk hefur meiri þörf fyrir
grín. Það þarf að sameina þjóðina
og hugga hana. Grín er ótrúlega
gott í það.“
Bergur Ebbi fer út á hálan ís þegar
hann talar um að það sé hægt að
setja allt í samhengi við hrunið. Popp
er ekki rétti vettvangurinn fyrir það,
en það er allt í lagi að ræða örlítið
um afleiðingarnar í samhengi við
grín. Eftir smá upprifjun á góðum
grínistum (Tvíhöfði, Radíus o.fl.) þá
tekur Jóhann til máls.
Jóhann: „Það er ótrúlega mikið
grínefni í gangi núna. Það er ótrú-
lega mikill auður núna til að grínast
með. Ég hugsa að ef Pétur Jóhann
hefði verið að stíga upp í dag, þá
hefði hann haft mikið til að grína
með – meira en hann hafði árið
99.“
Ebbi: „Hann væri örugglega millj-
ónamæringur.“
Ari: „Svo líka svona fyndið email-
dót. Það er miklu meira af svona
heimatilbúnu gríni.“
Ebbi: „… Af því að það er svo
mikil eftirspurn. Spaugstofan er
ekki nóg.“
Ari: „Það var einhver gæi úti í
bæ sem gerði Hannes Hólmstein
að uppistandara í Flash.“ (Allir eru
sammála um að það er snilld)
Jóhann: „Þetta er rétt, þú getur
marinerað þig í gríni allan sólarhring-
inn. Það þýðir að kröfurnar hljóta að
vera að aukast.“
Ari: „Ég er á því að það er meira
framboð og fleiri möguleikar.“
Jóhann: „Ég ætla að fara í jakk-
ann.“
-Hvenær keyptirðu þessa peysu?
Jóhann: „Ég keypti hana fyrir ári
eða eitthvað, ég greip hana áðan og
hún er með einhverjum blettum.“
Ari: „Hún er hvít.“
Jóhann: „Þetta er ógeðslegt. Ég
er svo ógeðslegur, að um leið og
þetta viðtal er búið, þá ætla ég á
jólahlaðborð hjá Húsasmiðjunni. Ég
er svo mikill meðalmaður. Ég ætla
ekki að versla!“
Bókaðir út 2013(?)
Nýtt ár fram undan, hvað tekur
við?
Ari: „Bara ógeðslega mikið af gríni
og skemmtilegum verkefnum.“
Ebbi: „Kristján Jóhannsson var
alltaf heitur í viðtölum þegar hann
var spurður að þessu, þetta var
93 og hann sagðist vera bókaður
út 98.“
(Allir hlæja)
Ebbi: „Hann kom alltaf heim í viðtöl
um jólin. Mér fannst alltaf svo geð-
veikt þegar ég sá þetta. „Hvað tekur
við á nýju ári? Ég er bara bókaður
næstu sex ár!“ Ég dýrka þetta. Þetta
er bara okkar svar! Við erum bara
bókaðir út 2013.“
NGAR
YNDNIR
„MÉR FINNST ÞETTA SVOLÍTIÐ MERKILEGT. WILT CHAM-
BERLAIN VAR FÁVITI, ÞAÐ ER TALAÐ UM AÐ TIGER
WOODS SÉ FÁVITI LÍKA – KALDUR OG LEIÐINLEGUR.
UPPISTANDARAR ERU STRAX BYRJAÐIR AÐ TAKA
ÞETTA FYRIR, EINS OG „TIGER WOODS, WE ALWAYS
KNEW HE CAN‘T DRIVE“ – ÞAÐ ER GÓÐUR GOLFBRAND-
ARI. HANN VERÐUR AÐ PASSA SIG Á TRÉNU, EKKI NOTA
TRÉÐ MIKIÐ – VERA FREKAR Í JÁRNINU.“