Fréttablaðið - 18.12.2009, Qupperneq 70
14 •
Nirvana var geðveik hljómsveit.
Kurt Cobain var hvorki besti
lagahöfundur né söngvari heims
– hvað þá besti gítarleikarinn. En
hann var á réttum stað á réttum
tíma með tónlist sem stenst full-
komlega tímans tönn.
Hinn 30. ágúst 1992 kom Nir-
vana fram á Reading-hátíðinni.
Tónleikarnir voru teknir upp og
hafa nú verið gefnir út. Þegar
hljómsveitin kom fram á hátíð-
inni var minna en ár síðan platan
Nevermind kom út, sem átti síðar
eftir að breyta tónlistarsögunni.
Nirvana er í gríðarlegu stuði
á tónleikunum og tekur öll sín
bestu lög - sem búið var að
semja á þessum tíma. All Apol-
ogies, Come As You Are, Lounge
Act... æ, þessi lög eru öll þarna.
Og að sjálfsögðu Smells Like
Teen Spirit. Kurt og félagar voru
ekkert að vanda sig á tónleik-
unum, klikkið í Smells ... er til að
mynda kostulegt. En það skiptir
engu máli. Orkan sem steig frá
hljómsveitinni skilar sér fullkom-
lega í eyru hlustandans og það er
dýrmætt fyrir mann, sem sá þá
aldrei á tónleikum, að fá jafn vel
heppnaða tónleika á plasti.
Nirvana – Live at Reading er
mjög vel heppnuð tónleikaplata,
nær hnökralaus skemmtun sem
sýnir Nirvana á hápunkti ferilsins.
- afb
POPPPLATA: FRÁBÆR TÓNLEIKAPLATA
NIRVANA Á
HÁPUNKTI FERILSINS
NIRVANA
LIVE AT READING
Dánlódaðu: All Apologies,
Lounge Act, Polly.
SORRÍ Enginn hamborgari í kvöld.
Rækjusamlokan verður að duga.
FÉLAGARNIR Lopapeysurnar eru heit-
ar núna.
SJÁLFSMYND Nagdýr geta framkvæmt
ýmsa hluti í dag.
ÖNNUR KLÓSETTMYND? Fólk er eitthvað
að misskilja þennan lið.TEKIÐ STÓRT UPP Í SIG Æ … jájá.
Taktu mynd með símanum og sendu okkur. Við birtum bestu
myndirnar og höfundur langbestu myndarinnar fær tvo kassa af
Doritos. Myndirnar geta verið af hverju sem er, atburði, Sveppa, Michael Jackson,
Jóhönnu Guðrúnu eða bara góðu flippi.
TAKTU SÍMAMYND!
ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ TVO
KASSA AF
DORITOS
SENDU OKKUR ÞÍNA
SÍMAMYND Í SÍMA 696
7677 EÐA Á POPP@
FRETTABLADID.IS OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ TVO
KASSA AF DORITOS!
Árið 2004
voru myndir úr
símum í fyrsta skipti
aðalmyndirnar sem
náðust af náttúruham-
förum eftir að flóð-
bylgjur skullu á eyjuna
Súmötru í Indlands-
hafi.
SPURNING UM AÐ LÆSA NÆST
Netið í símanum... inni á klósetti. BESTA
MYNDIN!
KLIKKAÐUR ÞESSI
Er þetta föndrað á
leikskólunum?
Sendu okkur
símamynd!
Nýtt fylgirit Fréttablaðsins
Við viljum tvífara fræga fólksins!
Er kærastan þín eins og Angelina Jolie eða er vinur þinn eins
og Jack Black? Sendu okkur mynd til sönnunar og hún gæti birst
í næsta tölublaði.
POPP er nýtt fylgirit Fréttablaðsins og kemur út mánaðarlega.
Við viljum að þið sendið okkur klikkuðustu símamyndirnar ykkar.
Bestu myndirnar birtast í næsta tölublaði og höfundur bestu
myndarinnar fær tvo kassa af Doritos í verðlaun.
Sendið myndirnar í síma: 696 POPP (696 7677)
eða á popp@frettabladid.is