Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 88
18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
STEVEN SPIELBERG ER 63 ÁRA Í DAG.
„Það er fín lína milli ritskoð-
unar og góðs smekks og sið-
ferðislegrar ábyrgðar.“
Steven Spielberg er bandarísk-
ur kvikmyndaleikstjóri sem hefur
hlotið fern Óskarsverðlaun fyrir
myndir á borð við Listi Schindlers
og Saving Private Ryan.
Landssamband hesta-
manna heldur upp á sex-
tíu ára afmæli sitt í dag
með hátíðahöldum í
Iðnó. Haraldur Þórarins-
son, formaður LH, renn-
ir stuttlega yfir upphaf
sambandsins.
„Rétt fyrir miðja síð-
ustu öld var lítill áhugi
orðinn á íslenska hest-
inum og var hann helst
haldinn í hestamanna-
félögum í þéttbýli. Gunn-
ar Bjarnason var á þess-
um tíma hrossaræktar-
ráðunautur í hálfu starfi. Hann kom eitt sinn á Hvanneyri
þar sem saman voru komnir Jónas frá Hriflu, Guðjón Samú-
elsson, húsameistari ríkisins, og Runólfur Sveinsson, skóla-
stjóri á Hvanneyri. Þeir hvöttu Gunnar til þess að mana for-
menn hestamannafélaganna til að stofna hestamannafélög
hringinn í kringum landið til að standa vörð um kynbætur,
ræktun og sýningar,“ segir Haraldur. Það varð úr, hesta-
mannafélögum fjölgaði og síðan var Landssamband hesta-
mannafélaga stofnað 18. desember 1949 og fyrsta mótið
haldið á Þingvöllum árið 1950.
„Þá var það stærsta samkoma sem haldin hafði verið
frá lýðveldishátíðinni 1944 og komu þar saman um tíu þús-
und manns,“ upplýsir hann en vegur hestamennskunnar
hefur orðið æ meiri með árunum. „Fljótlega varð til alþjóða-
samfélag í kringum hestinn sem kallast FEIF og beitti
Gunnar sér einnig fyrir stofnun þess. Nú er íslenski hest-
urinn haldinn í þremur heimsálfum, 18 þjóðlöndum og milli
50 til 60 þúsund manns sem halda milli 120 og 150 þúsund
hross,“ segir Haraldur og bætir við að íslenski hestur-
inn hafi ekki aðeins jákvæð áhrif á ímynd Íslands heldur
sé einnig hægt að mæla áhrif hans í krónum. „Samkvæmt
Hagstofunni skilar íslenski hesturinn rúmum milljarði á
ári í beinni sölu. Síðan hefur komið fram í skýrslum að 18
til 20 prósent ferðamanna sem hingað koma geri það af því
að íslenski hesturinn hafi vakið athygli þeirra á landinu.
Út frá því má reikna að hesturinn skapi gjaldeyri upp á 17
til 24 milljarða,“ segir hann. Haraldur tekur fram að til sé
listi yfir þær ástæður sem ferðamenn gefi upp fyrir áhuga
sínum á landinu. „Í fyrsta sæti eru fjöllin, í öðru fossarnir
og hverirnir og í því þriðja íslenski hesturinn.“
Íslenski hesturinn hefur sjálfur breyst töluvert á þessum
sextíu árum. Mikið starf hefur verið unnið í ræktun og
áhuginn á hestinum er gríðarlegur innanlands sem utan.
„LH er til dæmis þriðja stærsta sérsambandið innan
Íþróttasambands Íslands, aðeins knattspyrna og golf eru
fjölmennari,“ upplýsir formaðurinn, en 10.500 manns eru
skráðir í hestamannafélög á landinu, en auðveldlega má
margfalda þá tölu með minnst tveimur þar sem oft er aðeins
einn úr fjölskyldu skráður í félag. Þá snertir hesturinn einn-
ig þjóðarsálina að mati Haraldar. „Þjóðskáldin ortu öll um
íslenska hestinn og jafnvel er talið að þau hafi ort meira um
hann en ástina,“ segir hann glettinn.
Afmælishátíðin hefst í dag á fánareið að Iðnó klukkan
14.45. Klukkan 15 hefst svo afmælisdagskrá þar sem haldn-
ar verða fjölbreyttar tölur, um sögu LH, hlutverk hestsins,
tengsl hans við vísindasamfélagið, listir og menningu.
solveig@frettabladid.is
LANDSSAMBAND HESTAMANNA: 60 ÁRA
Meira ort um
hesta en ástina
FORMAÐUR Haraldur Þórarinsson segir
íslenska hestinn eina bestu landkynn-
ingu Íslands. MYND/JE
LANDSMÓT 2008 Fríður hópur hestamanna ríður inn á völlinn á Gadd-
staðaflötum við Hellu. MYND/GÍGJA EINARSDÓTTIR
Eiginmaður minn og besti vinur, faðir
og tengdafaðir,
Egill Egilsson
eðlisfræðingur og rithöfundur,
er látinn. Útförin verður frá Fossvogskirkju mánudag-
inn 21. desember kl. 15.00. Jarðsetning að Stóranúpi
sama dag. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sól á
Suðurlandi, reikningsnúmer 0152 26 5226.
Guðfinna Eydal
Hildur Björg Eydal Egilsdóttir Haraldur P. Guðmundsson
Ari Eydal Egilsson
Bessi Eydal Egilsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Stefánsdóttir
frá Hofi í Öræfum,
lést á hjúkrunarheimili HSSA á Höfn, fimmtudaginn
10. desember. Hún verður jarðsungin frá Hofskirkju í
Öræfum laugardaginn 19. desember kl. 14.00.
Gunnar Páll Bjarnason Ingibjörg Ingimundardóttir
Sigurjón Arnar Bjarnason
Unnur Bjarnadóttir
Jón Sigurbergur Bjarnason Áslaug Guðmundsdóttir
Stefán Bjarnason Margrét Guðbrandsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma
Auður Tryggvadóttir
fædd á Fellsströnd í Dalasýslu,
Lautasmára 39, Kópavogi,
lést á Landsspítalanum við Hringbraut, 9. desember sl.
Útförin hefur farið fram frá Digraneskirkju í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Helgi G. Björnsson Kristín Emilsdóttir
Guðbjörg Björnsdóttir
Elísabet Björg Björnsdóttir Jón Engilbert Sigurðsson
Pálmi, Auðunn, Stefán Geir, Hlynur, Heiðrún Björk, Helga,
Margrét og Álfrún Lind
Frændi minn,
Grímur Magnússon
frá Flögu, Króki, Flóahreppi
síðast Sólvöllum, Eyrarbakka,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn
19. desember kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina hins látna og annarra ættingja,
Sigurbergur Brynjólfsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför móður minnar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmu,
Erlu Rutar
Guðmundsdóttur
frá Eyri í Svínadal, Kambsveg 14,
Reykjavík,
sem lést 6. nóvember sl.
Ólafur Ólafsson Ragna Rún Þorgeirsdóttir
Erla Dögg Ólafsdóttir Fannar Geir Ásgeirsson
Ólafur Óli Ólafsson
Sandra Rut Fannarsdóttir Halla Rún Fannarsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
Erla Havsteen
Þorsteinsdóttir
Laugarnesvegi 42, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 8. desember. Útförin fer fram frá
Laugarneskirkju hinn 22. desember kl. 13.00.
Trausti Elliðason
Garðar Norðdahlsson
Viðar Elliðason Ásdís Sigurgeirsdóttir
Sigríður Havsteen Elliðadóttir
Kristín Havsteen Erludóttir
ömmubörnin og systir hinnar látnu.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Sören
Magnússon
Brekkugötu 50, Þingeyri,
lést 15. desember á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi. Minningarathöfn fer fram í Áskirkju hinn 21.
desember kl. 14.00. Útför verður í Þingeyrarkirkju hinn
28. desember kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Kristín Gunnarsdóttir
börn þeirra og fjölskyldur.
Elskulegur faðir minn, afi og langafi,
Guðbrandur Loftsson
fyrrum skipstjóri og bóndi
frá Hveravík, Aðalbraut 4, Drangsnesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur föstudaginn
11. desember. Útförin fer fram frá Drangsneskapellu
laugardaginn 19. desember kl. 14.00.
Linda Guðrún Lilja Guðbrandsdóttir
Berglind Björk Bjarkadóttir Jón Ingibjörn Arnarson
Guðbrandur Máni Filippusson
Kolbrún Lilja Jónsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún J. Hjartar
hjúkrunarheimilinu Sóltúni, áður
Flyðrugranda 8, Reykjavík,
sem lést mánudaginn 14. desember, verður jarðsungin
frá Neskirkju, mánudaginn 21. desember kl. 13.00.
Jóna Björg Hjartar Paul van Buren
Sigríður Hjartar Stefán Guðbergsson
Elín Hjartar Davíð Á. Gunnarsson
Egill Hjartar
barnabörn og barnabarnabörn.
timamot@frettabladid.is