Vikan


Vikan - 02.11.1961, Page 33

Vikan - 02.11.1961, Page 33
Dr. phil. Stefán Einarsson: íslenzk bókmenntasaga 874 -1960 Tvimælalaust má telja þaS til stórtíðinda i ís- lenzkum bókmenntum, að út er komin ýtarleg bókmenntasaga, er nær yfir timabilið 874—4960. Það er dr. Stefán Einarsson prófessor í Balti- more i Bandaríkjunum, sem unnið hefur þetta þrekvirki. Áður hafði hann ritað íslenzka bók- menntasögu á enska tungu, sem út kom árið 1957 hjá The John Hopkins Press, og vakti þvílíka at- hygli í hinum enskumælandi heimi, að bókin helur þegar verið endurprentuð tvisvar sinnum. íslenzka útgáfan af bókmenntasögu Stefáns er miklu stærri og ýtarlegri en sú enska. Bókinni er skipt í 22 kafla og hverjum kafla aftur í fjöl- marga undirkafla. Sérstakur kafii er og um isienzka rithöfunda í Vesturheimi. — Að lokum er löng bókaskrá og ýtarlegt registur, sem nær yi'ir a.m.k. 4000 uppsláttaratriði. Eins og að líkum lætur eru mörg hundruð höfundar lifs og liðnir nefndir í þessari bók og mun margan fýsa að sjá ummæli dr. Stefáns um verk þeirra. Bókmenntasagan er 519 + 12 bls. í stóru broti (28x16 cm). Verð kr. 375,00+11,25 (söluskattur), ib. í sterkt strigaband. Bókin hefur verið send til flestra bóksala. Send hvert á land sem er burðargjaldsfrítt, ef greiðsla fylgir pöntun. Þeir, sem vilja kynna sér islenzkar bókmenntir að fornu og nýju, fá hér upp í hendurnar þá bók, sem lengi hefur vantað. Aðalútsala hjá útgefanda sem er Smrbj örnlíónsson^ Co.h.f. sig á svarinu. — Sonja Wallin, gerið þér yður ljóst, að þér brosið? Reynið að varð- veita það bros, fyrir alla muni. Og þér megið ekki reiðast mér, þótt ég verði að spyrja yður fáeinna óþægi- legra spurninga. Hún gerði sér það ekki ljóst fyrr en hann minntist á það, að hún hefði brosað. ... Jæja, svo þú ert Stenlund lækn- ir, hugsaði hún með sjálfri sér. Ef- laust ertu góður og nýtur læknir, en ég er viss um að þú ert ekki hug- lesari, og þessvegna ætla ég að leyfa mér að viðurkenna, að þú sért ó- venjulega heillandi ungur maður; alltof heillandi til Þess að það sé hættulaust að hafá Þig fyrir lækni. Ég óttast þig, þar sem ég finn að þú hefur mig algerlega á þínu valdi og gætir fengið mig til alls. Og ég kemst ekki hjá þvi að segja þér allt, sem þú kannt að spyrja um, og það boðar aldrei neitt gott ...' — Sonja Wallin; þér vitið ósköp vel hvers vegna þér sitjið hérna gegnt mér. Reynið nú að segja mér, eins rólega og yður er unnt, hvað Þér höfðuzt að þessa nótt. Var þetta fyrir slysni — eða með ráðum gert? Hún varð gagntekin innri fögnuði, einskonar tilhlökkun, þegar hún virti hann fyrir sér, þar sem hann sat við borðið og hrærði með skeiðinni í kaífibollanum. Hann hafði einhver þau áhrif á hana, sem ekki áttu neitt skylt við hvita sloppinn; það var eins og hann umlyki hana og þrýsti henni fast að sér, og þó sat hann þarna á bak við gamla skrifborðið. Á þessum áhrifum hafði hinsvegar aldrei borið neitt, þegar hann kom inn í sjúkraherbergið með lækna- nemunum; Þá hafði hann ekki verið henni neitt, nú var hann henni allt. Hana langaði mest til að gripa um hönd hans, Þegar hún hrærði í boll- anum, fara fingrum sínum um hár hans, varpa sér í faðm honum. Það ert Þú, sem ég hef alltaf beðið eftir. Þú og enginn annar ... Framhald í næsta blaði. BEINAGRIND Framh. af bls. 11. að við búum okkur til farar. Það nægir, að við séum þrír.“ Hann sneri sér að van Dyk. „Hefurðu ferðazt um frumskógasvæöi ?“ Van Dyk kinkaði kolli. ,,Og þú hefur peninga til reiðu?“ Van Dyk kinkaði kolli. „Það má vera,“ svaraði hann. „En ég fer ekki að leggja þá í neitt, nema ég viti til hlítar hvað um er að ræða ... „Það er ekki nema eðlilegt," svar- aði Swartz. Hann gerði nokkra mál- hvíld, og virti þau fyrir sér, þar sem þau sátu við borðið, Anna, Philip eiginmaður hennar og Van Dyk. Þau störðu öll á hann stórum augum og biðu þess, að hann hæfi frásögn sína. „Þú manst eftir honum Christoffel Pretorius?" mælti Swartz við önnu. Hún kinkaði kolli. „Hann féll í styrjöldinni,“ sagði hún. „Já,“ svaraði Swartz. „Það ætti ég manna bezt að vita, því að hann var félagi minn. Sá sem ég sagði ykkur frá, að hefði, ásamt mér, orðið við- skila við liðsveitina. Það var i sept- embermánuði, árið 1900. Við héld- um inn í frumskóginn, komumst alla leið að landamærum portúgölsku Austur-Afriku, þar sem við vorum tilneyddir að snúa við. Þá héldum við aftur vestur á bóginn, skutum skógardýr okkur til matar og drukk- um vatn úr ám og lindum til að svala þorsta okkar." Þá sagði hann þeim frá því, að það hefði verið á þeirri leið, sem þeir gengu fram á beinagrind af manni, sem ekki var svo ýkjasjaldgæft í þann tið, þegar styrjöld geysaði og sóttir, hungur og villidýr urðu mörgum þar að auki að bana. Swartz starði fram undan sér og hélt áfram frásögn sinni. Það sem gerði beinagrind þessa öðrum frá- brugðna, var feyskið og veðrað leð- urbelti, sem tiu leðurookar litlir voru festir við. „Að sjálfsögðu opnuðum við pokana,“ sagði hann. „Þrír þeirra voru troðfullir af dem- öntum. Hinir sjö voru fullir af gull- hnullungum," hvislaði hann. Hann gerði nokkra málhvíld til þess að gera siðustu setninguna enn áhrifameiri og lofa henni að gerjast i hugsun þeirra. Síðan mælti hann enn: „Við fundum veski í fataslitrunum, og í þvi voru bréf, sem gáfu til kynna, að þvi leyti sem þau urðu lesin, að þetta væri brezkur maður, og að hann hefði verið í Kimberley, Barberton og gullnámusvæðinu við Pilgrims Rest.“ Þeir karlmennirnir tveir kinkuðu kolli og voru með á nótunum. Það var semsé almennt vitað, að ævin- týramenn, þjófar og smyglarar höfðu flykkzt til demantsnámanna og gull- námanna, haft þaðan auðæfi á brott með sér, og síðan farið í gegnum frumskóginn til Transval, þar sem þeir gátu notfært sér feng sinn. „Og þarna stóðum við inni í miðj- um frumskóginum með gifurleg auð- æfi handa á milli,“ hélt Swartz áfram vikaM 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.