Vikan


Vikan - 11.01.1962, Blaðsíða 24

Vikan - 11.01.1962, Blaðsíða 24
sleppti honum svo. Strákurinn tlýtti sér yfir giröinguna, en þá snéri hann sér við og sagði: Þú mátt koma’með á fimmtudaginn, ef þú villt. Þá fer ég með rakettuskipi til tunglsins. ,— Láttu þvottabalann minn verá, strákur, hrópaði mamma og þreif í strákinn. En Palli gerði sig Ijúfan á svipinn og brosti. — Má ég ekki fá hann lánaðan aðeins smástund? — Hvaða prakkarastrik ertu að gera núna? stundi móðir hans og lét hann fá balann. Þetta var nú einasti strák- urinn hennar. Anna var nefnilega stelpa. Stelpur eru skemmtilegar og þægar. Þær eru ekki að klifra upp um allt, eða mála sig í framan með varalit eins og indiánar, eins og Palli. Þetta fannst ömmu hans líka, þegar hann fór til hennar og fékk lánaða sólhlíf- ina hennar. — En elskan mín, hvað ætlarðu að gera við hana á þessum tíma árs? spurði hún undrandi. — Ég þarf að hafa hana til öryggis. Það er vissara að hafa fallhlíf með sér, þegar maður ætlar til tunglsins, sagði Palli. — Nei, nei, hrópaði amma hissa — þú verður að vera varkár þegar þú ert að leika þér. Hún trúði ekki öðru en að Palli hefði bara fundið upp einhvern nýjan leik. Þannig var það líka með Jennu frænku, þegar hann fékk hjá henni gamla vekjara- klukku og Þóri frænda, sem lánaði honum kíki. Þau hlógu bæði og ósk- uðu honum góðrar ferðar til tungls- ins. Verst var að fá hjálm, eins og geimfarar nota, en að lokum fann hann hann — undir rúminu. Þetta áhald hafði hann notað þegar hann var lítill. Það var búið til úr gegn- sæju plasti, og það gerði ekkert til þótt hanki væri á því .... Anna vildi endilega fá að fara með. — Ég skal fara í fína kjólinn minn, sagði hún. — Af hverju? spurði Palli. Jú, veiztu ekki hvað er fínt á tungl- inu? spurði hún. Hún hafði einhvern- tíma lesið ævintýri um tunglið. — Það er silfurfjall á tunglinu. Þess vegna lýsir þáð svona vel, sagði hún. —• Er það satt? spurði Palli. — Já, sagði Anna og kinkaði kolli. Og allar stúlkurnar þar eru með voða fin.-f: hálsfestar. Palli gapti af undrun. •— Hugsaðu þér bara, ef við fengjum dá- lítið af mánasteinum! sagði hún. Það var ákafiega gaman um kvöld- ið, þegar þau voru tilbúin til tungl- fararinnar. Þvottabalinn stóð á fjór- um rakettufótum, en fyrir ofan hann var sólhlifin breidd út Það var dimmt og Önnu var orðið kalt i bal- anum. Palli náði í eldspýturnar og beið nú spenntur eftir því að tungl- ið kæmi í ljós. Eftir dálitla stund fór að birta, og stórt og gult tunglið gægðist yfir bakkann. Palli skalf af taugaæsing. — Haltu þér fast, hvíslaði hann og kveikti í einni rakettunni. ,^Fuuuuuuiiisjt!“ heyrðist í henni óg neistarnir flugu allt i kring um Þau. Palli flýtti sér og kveikti líka I hin- um þremur . . . og svo . . . „Fuuuuu- iiistj" . . . Bang! Allt í einu lýstist allt umhverfið upp af gulum, rauðum og grænum ljósum. Neistarnir fuku og hitinn jókst, og Anna æpti hástöf- um. —• Haltu þér fast! hrópaði Palli. Þá . . . lyftist balinn upp. —- Við för- um upp! hrópaði Palli. Anna hélt höndunum fyrir augum og gargaði eins og hún gat . . . svo heyrðist brak. Balinn valt um koll og Anna valt í burtu og staðnæmdist við þúfu, þar sem hún lá kyrr . . . á næsta augna- bliki opnuðust dyrnar á húsinu og pabbi Þeirra og mamma komu hlaup- andi út. — Hvað gengur á? hrópaði pabbi og fór að slökkva neista, sem ennþá loguðu í þurru grasinu. — Hvar er æringinn hann Palli? Anna hljóp í fang móður sinnar og grét. — Hann . . . hann er farinn til . . . tungl . . . tunglsins! snökkti hún. —• Til tunglsins! hrópaði pabbi og leit upp. Þá sáu þau stjörnuhrap. —- Þarna er hann! hrópaði Anna og benti. Pabbi hristi höfuðið og leit í kring um sig. En hann sá hvorki strákinn né balann. Ég var svo aldeilis hissa . . . sagði hann og leit á mömmu. — Heldurðu . . . að hann sé . . . farinn til . . . tunglsins? spurði mamma. Hann hljóp til að ná í hjálp, en mamma fór inn með önnu. Svo kom pabbi aftur með Þór frænda og ömmu, og þau fóru öll að leita, en hvergi fundu þau Palla né balann. Palli var aldeilis hissa. Það suðaði fyrir eyrunum á honum og svo heyrði harfn dimmt og draugalegt hljóð. Það var kolniðamyrkur þar sem hann lá flatur í balanum á leiðinni til qaman g)ARN^iir — Ratsh . . . Bang!!! Eitthvert stórt og grátt ferlíki hentist á eplatréð bak við girðinguna svo að greinarn- ar brustu og hundurinn gólaði hástöf- um. Borgarstjórinn gamli þaut út úr húsinu og upp garðstíginn. — Ætli það sé ekki strákurinn hann Palli, sem er aftur kominn á kreik, þusaði hann. — Hverju ætli hann hafi núna fundið uppá? Lítill og snöggur strákur var að reyna að komast yfir girðinguna þeg- ar borgarstjórinn greip hann i rass- inn. •— Jæja, hvað ertu að gera í garðinum mínum? Strákurinn reyndi 24 VIKAN að losna. — Ég . . • ég ætlaði að reyna að íljúga . . . til tunglsins, stamaði hann. — Hvað segirðu . . . til tungls- ins? Og svo lendir allt þetta drasl á eplatrénu minu! Borgarstjórinn horfði á ruslið, sem hékk í trénu, gamall umbúðapappir og brotnar veiðistengur. — Heldurðu virkilega að þú gætir flogið til tunglsins, kjáninn þinn. Ég vildi bara óska að Þú gerðir það. Þangað ættu allir prakkarar að fara, svo við fengjum frið og ró. Komdu þér nú burt, piltur minn, og hjálpi þér ef ég grip Þig hérna aft- ur. Hann hrissti Palla duglega og Palli stökk á fætur — þá getum við keypt gjafir handa öllum, sem við þekkjum, sagði hann. Já, það væri gaman, sagði Anna. Þá gæti mamma kannske fengið þvottavél í staðinn fyrir gamla balann. .Tá, það skulum við gera, sagði Palli, en þá verðum við líka að komast alla leið. Við þurfum að ná okkur í fjórar stórar rakettur. — 1 alvöru? spurði Anna. — Já, auðvitað. Og svo verðum við að skjóta okkur uppí loftið þegar tunglið kemur hér upp fyrir bakk- ann. — Uppí loftið? spurði Anna. Já, auðvitað, sagði Palli. tunglsins .... Hvar var Anna ann- ars? Líklega hafði hún stokkið út um leið og þau lögðu af stað. Off, hvað það var mikið myrkur . . . og svo þröngt. Og svo þetta einkennilega suðandi hljóð. En skyndilega fann hann högg. Það var alveg eins og einhver hefði sparkað i balann. Hvað var nú þetta? Hann var þó vist ekki kominn til tunglsins? Nú . . . Nú var balanum skyndilega lyft upp og sterkt ljós skein í augu hans. Tungls- Ijós? — Svo þú gazt ekki setið á þér,

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.