Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 17
Einn liSurinn í því að hressa upp á sjálfa sig og umhverfiö
er að fá sér ilmvatn og ekki aðeins það, heldur einnig aS
nota það réttilega. Hér á eftir fara nokkur fróðleikskorn um
ilmvötn.
Hve lengi helzt ilmurinn af ilmvatni? í fjóra klukku-
tíma. Er það mögulegt að nota of iítið af ilmvatni? Já, það
er hægt að nota svo litið af þvl að það skemmi frekar en
hitt. Þegar einu sinni er búið að opna ilmvatnsflösku,
byrjar alkohólið smám saman að gufa upp, það raskar hlut-
föllunum i ilmvatnsblöndunni og eyðileggur því hinn rétta
ilm. Það er ódýrara að nota ilmvaln daglega. Fer það ekki
eftir gæðum? Sum ilmvötn eru mjög dýr, en flest góð
ilmvötn eru á meðalverði. Hvað er hægt að gera til að ilm-
urinn haldist lengur? Olían í hárinu heldur ilminum lengi
við. Iíona ætti alltaf að setja nokkra ilmvatnsdropa í hárið
á sér, þegar hún klæðir sig og jafnvel setja örlitið af ilm-
vatni í síðasta vatnið, þegar hún þvær á sér hárið. Bómullar-
hnoðrar vættir í þvi ilmvatni, sem konan notar ættu að
vera i skúffum, töskum og hattaöskjum. Hvernig á að fara
að því að velja ilmvatn? Með nefinu. Efnafræðilega er húð
hvers einstaklings ólík, þannig að hvert ilmvatn er öðru
visi á einum en öðrum. Áður en kona getur gert sér ljóst,
hvort ilmvatn er rétt fyrir hana, verður hún að prófa það
á sinni eigin húð. Hvaða munur er á ilmvatni og Gologne?
Ilmvatn er mikiu sterkara. Það inniheldur ekki alkohol nema
rétt til að halda við uppgufuninni. Cologne inniheldur miklu
meira alkohol og er þvi veikara og gufar fyrr upp. Stenk-
vatn, sem flestir halda að sé veikara en Cologne er venju-
iega sterkara. Geta Cologne og steinkvötn komið í staðinn
fyrir ilmvötn? Nei, það er ekki það sama. Kona sem vit
hefur á snyringu notar þau á líkamann sem undirlag fyrir
ilmvatnið. Hvað er átt við með nútimailmvatnsblöndum?
Það eru itmvötn, sem innihalda eðlilegar olíur biandaðar
saman við gervioliur. Eru gervioliur eins áhrifarikar og
eðlilegar oliur? Já, og þær hafa gefið ilinvatnsframleiðend-
um miklu fjölbreyttari tækifæri til framleiðslu. Eru sum
ilmvötn ætluð fyrir nokun að degi til og önnur að kvöldi
til? Nei, ilmvatnsframleiðendur nú á tímum ætlast til þess
að kona noti það ilmvatn, sem henni fellur, hvenær sem er.
Geri það að vissum þætti i persónuleika sinum. Hvaða ilm*
vötn eru einkum notuð af frægum konum? Það er enginn
sérstakur ilmur, sem er í uppáhaldi með frægum konum.
Þær velja ilmvötn, sem hæfa þeirra persónuleikum. Marilyn
Monroe og Deborah Kerr nota nútímailmvötn. Rossalind
Russel og Doris Day nota gamaldags blómailm. Jacqueline
Kennedy velur sterk nútíma ilmvötn og dálítið „exotic“.
Hvað er það helzt, sem ekki á að gera við ilmvötn? Það á
aldrei að bera þau beint í föt, útkoman getur orðið allt
önnur en ilmurinn af ilmvatninu. Hiti og ljós hjálpa til við
uppgufun alkoholsins. Svo það verður að geyma það fjarri
ofnum og sólarljósi. Ekki hella því á ykkur og berið heldur
ekki of litið af því. En aðalatriðið í sambandi við ilmvatn
er það, að fylgja nefinu.
Ekkert er heldur eins hvimleitt
og blárauðir fætur, en þvi miður
sést allt of mikið af þeim að af-
loknum vetri. Einnig getur slæm
blóðrás átt þar hlut i máli. Gott ráð
við þessu fyrirbæri eru víxlböð.
Setjið annan fótinn i fötu með köldu
vatni og hinn í fötu með heitu vatni,
og vatnið verður að vera vel heitt
og vel kalt. Síðan skiptið þið um
fötu á hálfrar mínútu fresti. Einnig
er gott að setja styrkjandi baðsalt
i vatnið, þá sláið þið tvær flugur
i einu höggi. Gætið þess einnig að
borða nóg af vitaminum, þetta á
ekki eingöngu við fæturna.
Hafizt eitthvað að í tómstundum,
sem hefur það í för með sér, að
fæturnir eru á hreyfingu. Hvernig
er með dans? ©g þá fáu köldu vetr-
aradga, sem eftir eru, vonum við,
eigið þið án undantekningar að vera
í hlýjum og þykkum sokkum.
Vortíxitoo í rnólningu og bórgrelðslu
H á r i ð er ekki lengur eins og frauðpinni uppi
á höfðinu. Bylgjur og mýkt fylgja hártizkunni
1962. Hárið er oft greitt út í aðra hliðina. Það
er eðlilegt að margar ykkar setjizt niður og
hugsið um það, hvernig eigi að fá gljáa aftur á
hárið. Svarið er einfaldlega, að nota minna hár-
lakk, túbera hárið minna og bursta það meira.
Hliðarsvipurinn er mjög mikilvægt atriði í
tizkunni 1962 og reynt er að greiða hárið aftur
og upp í boga. Hárlitun er fullkomin og getur
fullnægt ölium ykkar kröfum. Aðalliturinn er
brúnt.
M á 1 n i n g : Yfir hana má nota eitt lýsingarorð
„matt“. Ilin nýju krem, sem innihalda bæði
undirlag, yfirlag og meik (fluid all-in-one
creams) munu verða algjörlega rikjandi. Þau
gefa húðinni ekki mélað yfirbragð eins og púður,
og ekki lieldur gljáa, heldur Ijóma. En auðvitað
er allt undir því komið að þið finnið þá tegund,
sem á við ykkar húð. Hér ætla ég að nefna
nokkrar tcgundir, sem gaman væri fyrir ykkur
að prófa: Lancóme's Solaire Mat, Revlon's Con-
tempera, Max Factor's Sheer Genius, Helena
Rubinstein's Coverfluid. Það er ekki vist, að
þetta sé komið hér á markaðinn, en það mun
þá gerast bráðlega.
V a r a 1 i t u r hefur fengið fulla uppreisn og
mun skína í öllu sínu veldi árið 1962. Nýjasti
Revlonliturinn er t.d. Revlon Super-Lustrous II.
Aðallitirnir eru rósbleikt, rauður og appelsínu-
gult er notað skærrautt eða skærrautt með ofur-
litlu gulu í. Við flesta aðra liti er notaður hreinn
rauður. Við blátt, sem er aðaitizkuliturinn þctta
sumar, má nota allar tegundir af bleiku. Við
rauður og við jadegrænt er notaður skærbleikur
án þess að nokkuð blátt sé í honum.
Augnmálning er ekki eins bogadregin og
var, heldur miðast meira að þvi að gera augun
dálítið beinsett i andlitinu. Og auðvitað er hún
notuð til að stækka augun, eins og alltaf. Og
aðalatriðið í sambandi við tizkuna er eins og
ég sagði áðan, hliðarsvipurinn, við hann er hár-
greiðslan aðallega miðuð.
VIKAN 13