Vikan - 05.04.1962, Qupperneq 21
SMASAGNA
KEPPNI
Til er gamalt annálsbrot, sem greinir frá ógnþrungnu
atviki í mjög fáum orðum. Það er svona:
„Árið 1232 gerðust þau hræðilegu tíðindi, að Þor-
lcifur nokkur Þórðarson drap Þorbjörn prest Þor-
steinsson í Vogi á Mikaelsmessudegi (29. sept.) þá
er hann var skrýddur fyrir altari. Síðan lagði þessi
Þorleifur sjálfan sig í gegn með hnífi“.
Fleiri eru þau orð ekki. Engar sögur eru til um ástæð-
urnar fyrir verknaði Þorleifs, en vafalaust hefur það
verið mikið drama, sem þarna gerðist og átt aðdraganda
mikilla átaka. Vogur: Kirkjuvogur í Höfnum.
Vikan efnir hér með til smásagnakeppni í sambandi
við annálsbrot þetta og skorar á íslenzka smásagnahöf-
unda að vefa utan um atburð þennan. Aðeins ein verð-
laun verða veitt og þau eru
5000,00 krónur í peningum.
Vikan áskilur sér rétt til birtingar á verðlaunasögunni
endurgjaldslaust fyrir utan verðlaunin, og áskilur sér
einnig rétt til birtingar á öðrum sögum úr keppninni, ef
ástæða þykir til og verða þær greiddar með venjulegum
ritlaunum.
Frestur til að skila smásögum er til 15. júlí 1962. Sög-
urnar skulu vélritaðar og merktar moð dulnefni, en hið
rétta nafn höfundar skal fylgja í lokuðu umslagi.
Dómnefnd í þessari smásagnakeppni skipa Vilhjálmur
S. Vilhjálmsson, rithöfundur; Helgi Sæmundsson, formað-
ur menntamálaráðs og Gísli Sigurðsson, ritstjóri Vik-
unnar.
°9 svo er það
DANSHLJOMSVEIT
ARSINS
Eftir tíu daga rennur út frestur til þess að skila atkvæðaseðlum i
kosningum þeim, sem Vikan efndi til um beztu hljóðfæraleikara ársins.
Ef þetta skyldi hafa farið fyrir ofan garð og neðan hjá einhverjum,
þá geta að minnsta kosti þeir sem búa i næsta nágrenni við okkur
tekið þátt i kosningunni. I siðasta blaði birtum við lista yfir all-
margar liijómsveitir, sem hafa á að skipa þeim hljóðfæraleikurum,
sem ætla má að séu snjallastir i danshljómlist. Við birturn lista yfir
tíu hljóðfæri og það var ætlazt til, að eitt nafn yrði skrifað við hve,rt
hljóðfæri. Siðan stefnum við saman þeim mönnum, sem kjörnir verða
beztir og einhvern tíma í maí í vor, efnum við lil hljómleika, þar sem
hljómsveit ársins kemur fram. Sem sagt: Eftir tíu daga verður talið og
síðan birtum við úrslitin í blaðinu við fyrsta tækifæri. Að sjálfsögðu
er heimilt að greiða mönnum atkvæði, enda þótt þeir séu ekki á list-
anum, sem Vikan birti. Sá listi var aðeins til hægðarauka.
FRESTUR TIL AÐ SKILA
ATKVÆÐASEÐLUM RENNUR
UT EFTIR TÍU DAGA