Vikan - 05.04.1962, Page 32
í fullri alvöru:
Hver sólskinsstund
Um sama leyti og farfuglarnir
hópast hingað til sumardvalar,
halda aðrir hópar af stað héðan,
flestir eitthvað suður á bóginn, eða
öfugt við „vorboðann ljúfa“. Yfir-
leitt fara þeir og „háa vcgaleysu“,
eins og farfuglarnir — en um fjaðra-
blikið skal þó ósagt'látið.
Þetta fólk fer utan i leit að sum-
arauka, suður á Spáni, Majorka eða
Ítalíu; „telur það tryggara að taka
út forskot á sæluna“, eins og þar
stendur. Suður þar má yfirleitt allt-
af ganga að sumri og sólskini vísu
um þetta leyti árs, en alltaf nokkur
óvissa rikjandi um hvorttveggja hér
á landi. Sennilega er það líka þess
vegna, að íslendingar eru yfirleitt
miklir sóldýrkendur, og reyna að
njóta hverrar sólskinsstundar sem
gefst. Jafnvel Bakkabræður höfðu
það mikið dálæti á sólskininu, að
þgir reyndu að bera það í húfum
sínum inn í híbýli sin.
En það kostar skildinginn að
sækja sumarauka suður í lönd, og
það eins þótt öllum kostnaði sé í
hóf stillt af hálfu þeirra, sem slíkar
hópferðir annast. Fæstir eru svo
efnum búnir, að þeir eigi þess lcost
að fara margar slíkar ferðir á æv-
inni, og eins sumarauka nýtur eng-
inn til lengdar, nema i minning-
unni, sem er að visu nokkurs virði;
kannski meira virði en margan
grunar. Það er unaðslegt að liggja
i sólbaði á mjúkum sandi suður á
Majorka, meðan enn næðir svalt í
Nauthólsvíkinni — en það eru dýrar
sólskinsstundir.
Máltækið segir, að hollur sé
heimafenginn baggi. Vafalaust verð-
ur líka heimafengið sólskin hverj-
um hollast. En það er ekki öllum
alltaf hægt um vik að njóta þess,
grípa stund meðan gefst, því að
hér er sólskinið stopulla en suð-
ur í löndum. Flestir 'eru bundnir
við sína vinnu þann hluta dagsins,
sem sól er hæst á lofti. Og komi
nokkrir rúmhelgir sólskinsdagar i
röð, eru þeir ekki nema tiltölulega
fáir, sem geta notið þeirra.
Öll þekkjum við það, að koma að
skrifstofudyrum og sjá þar lítið
spjald með áletruninni: „Lokað
vegna jarðarfarar". Stundum er lok-
að hluta úr degi, stundum allan
daginn; þa8 fer eftir þvl hve við-
komandi fyrirtæki er tengt þeim
látna. Og okkur kemur ekki til hug-
ar að segja neitt ljótt, þótt við verð-
um frá að hverfa erindislausir af
þessum sökum; síður en svo, það
er alltaf eitthvað virðulegt við slika
hluttekningu.
En hvernig mundi okkur verða
við, ef við kæmum að lokuðum skrif-
stofudyrum og sæjum spjald á hurð-
inni með áletruninni: „Lokað i dag
vegna sólskins“? Ætli okkur kæmi
þá ekki heldur til hugar að segja
neitt ljótt?
Það er vitanlega ákaflega fallegt
að fyrirtæki sýni látnum starfs-
manni þakklæti og virðingarvott
með þvi að loka, daginn sem jarðar-
för hans fer fram. En mundi þeim
látna sjálfum ekki hafa orðið það
eins mikil ánægja, „að mega taka
út forskot á sæluna“ á meðan hann
var á lífi. Fá að njóta sólskins
einn dag, lifs og með lifandi starf-
systkinum sinum?
Og mundi sú tillitsemi fyrirtækis
við lifandi starfsfólk sitt ekki borga
sig . . . Drómundur.
íþróttir.
Framhald af bls. 20.
áður en fallið hófst. Andrá síðar lá
hann í mjúku saginu.
Og þversláin líka.
Þarna lá hann og starði upp eftir
stöngunum. Þarna gat að líta okana
titlu, sem ætlað var að halda uppi
þverslánni. Það var langt upp þang-
að. Þvi sem næst fimm metrar. Og
svo hátt hafði enginn stokkið enn
sem komið var.
Það nálgaðist því oftraust á sjálf-
um sér, þegar hann lét sér það til
hugar koma að hann gæti unnið
það afrek fyrstur manna. En hvað
um það, hann var tilneyddur að
reyna tvisvar enn.
Hann reis úr saginu, gekk hæg-
um skrefum til baka og bjó sig enn
undir atrennu.
Honum tókst betur í þetta skipti,
en ekki nógu vel samt. Hann kom
fótunum yfir þverslána, en felldi
hana með kviðnum.
Þótt svo færi, hafði hann náð
betra stökki. Sýnt öllum viðstödd-
um, að honum varð ekki láð, þótt
hann reyndi.
Og loks var það þriðja og sfð-
asta tilraunin. Davies fór sér ekki
óðslega að neinu. Hann gekk hægt
og rólega til baka, einbeitti hugs-
uninni góða stund að stökkinu áður
en hann hóf atrennuna.
Hann náði hraðri atrennu og
kröftugri spyrnu. Sveiflaði fótum
beint upp á við og síðan yfir þver-
slána. Það tókst. Hann hratt sér með
höndunum frá stönginni, yfir þver-
slána, en fann að enn snart hann
hana með kviðnum í fallinu.
Enn hafði honum mistekizt? Hann
lenti i mjúku saginu, en þversláin
varð honum ekki samferða. Hún
sat enn á okunum, en titraði í-
skyggilega. t nokkrar sekúndur
störðu allra augu á slána, sem loks
lá kyrr á okunum.
§rr
Pétur og ég:
ÞaS kom að því. Þetta var búið að
liggja úti í óráðinni framtíðinni um
tuttugu ára skeið, en á laugardaginn
skeið það. Þá gifti ég mig, og gladdi
sá atburður marga. Eðlilega gladdi
það okkur, sem urðum hjón, og þar
að auki hýrnaði yfir yngri systur
minni að verða nú ein í herbergi og
ákveða héðan af sjálf ljósatíma, til-
tektir og annað. Eldri systir mín gifti
sig sjálf fyrir tveimur árum, og hefur
síðan sífellt verið að klifa á ýmsum
persónulegum spurningum í minn
garð. Það er þessi árátta á giftu fólki
að vilja fyrir alla muni koma öðrum
í sömu frelsisskerðinguna. Augu
beggja tindruðu beinlínis við undir-
búning veizlunnar.
Já, þú ljúfa líf, Þá er ég gift. Og
honum Pétri. Og annar eins Pétur!
Ég býst ekki við, að neinn væri bætt-
ari, þó ég segði frá, hvaða skónúmer
hann notar, eða hvernig hann er
hærður. Ég læt nægja, að segja að
hann er afar þögull maður. Bróðir
minn, sem vann með honum eitt sum-
ar, sagði mér, að það hefði verið tal-
að um það í vegavinnunni að hafa
heilsu eins og hestur og vera þögull
eins og Pétur. En það gerir ekkert
tiL Hann hefur hvort sem er sagt
mér það sem ég vildi vita. Það gerði
Honum hafði tekizt það. Hann
hafði sett nýtt heimsmet — svo
fremi sem hæðin hafði verið rétt
mæld.
Hann mátti því ekki treysta neinu
enn — það hafði þráfaldlega komið
fyrir að skakkt væri mælt.
Og nú fóru þeir að mæla hæðina.
Það tók þá eilífðartíma. I.oks kváðu
þeir upp úrskurð sinn. Þversláin
var ekki í 4,82 m hæð, eins og þeir
höfðu haldið — hæðin var 4,83 m.
Hann hafði því ekki einungis
rutt gamla heimsmetinu — heldur
og bætt það um fulla 2 senti-
metra ... +
ég gitt
hann einu sinni fyrir framan lítið
hrörlegt hús við Smiðjustíginn. ,,Eg
elska þig“, sagði hann eftir langa og
örlagaríka þögn. Og bætti við: „Það
er rauði þráðurinn". Og ég verð að
segja það, að ég hef hlustað á marg-
an orðavaðalinn og skrafið, en aldrei
heyrt néitt á við Þetta.
Ég útbjó fyrstu máltíðina okkar i
gærkvöldi. Pétur hafði talað um
sparnað og fisk, svo ég keypti fiski-
bollur og pakkabúðing. Mér var ó-
mögulegt að fara að hreinsa hreistur
og innyfli, hefur auk þess alltaf fund-
izt eitthvað óhuggulegt við það. Systir
min hin eldri borðaði með okkur. Hún
var eitthvað að hafa orð á þvi við
Pétur, að ég yrði áreiðanlega myndar-
leg húsmóðir, — þegar ég færi að
„sjóast". Hún er snillingur í því að
koma með óviðeigandi og óþarfar at-
hugasemdir. Þegar við höfðum borðað
var ég í greinilegu óstuði að fara að
vaska upp. Það gerði ég fyrst klukkan
hálf-tólf um kvöldið, þegar ég sá
að diskarnir ætluðu af og frá að
vaska sig upp sjálfir. Matarörðurnar
voru orðnar glerharðar á diskunum
og vont að þvo þá.
Það eru svona ýmsir erfiðleikar i
þvi fólgnir að vera húsmóöir, sem sá
einn veit, er reynir. Petrina.
Husqvarna
handsláttuvélin er létt og
þægileg.
• Hefur sjálfbrýnandi
hnífa.
• Gúmmíhjól, sem leika
í kúlulegum,
® Stálskaft.
Sænska stálið tryggir gæðin.
Gunnar Ásgeirsson h.f.
Suðurlandsbraut 16.
Sími 35200.
28 VIKAN
Og nú er