Vikan


Vikan - 24.05.1962, Side 5

Vikan - 24.05.1962, Side 5
•• i l ■ ; l ■ i ■ : * I : i i ' j eftir uppmælingu og höfðu fyrir rokkaup. En þetta er aðeins dæmi, sem hæfir andstæðingum uppmæl- ingarinnar. Þessir menn hafa sett upp inarga lista og unnið langt fram eftir kvöldi. í þetta skipti borgaði uppmælingin sig vel. En setjum dæmið þannig upp, að þessir menn liefðu komið langt að, einungis til þess að setja upp einn eða tvo lista, kannski við erfiðar aðstæður — þá ér ég liræddur um að uppmælingin hefði illa borgað sig. Það eru tvær öfgar á hverju máli, og það er leiðin- legt að beita liaráttuaðferðum sem þeim, er bréfritari gerir sig sekan um. Þökk fyrir, Smiður K. — — — Þetta er reyndar satt, sem þú segir um öfgarnar, og ekki skal ég reyna að úttala mig um þetta allt saman — en ein- hvern veginn grunar mig, að ef uppmælingin hentaði ekki, myndu mennirnir hafa vit á því að taka fyrir ósköp venjulegt 60 króna eftirvinnukaup — í versta falli. Hvað segir þú um það, Smið- ur K.? Draumaráðningrar Kæri Póstur, Gaman þætti mér að vita liver gerir blessáðar draumráðningarnar í Vikunni. Auðvitað þori ég ekki að segja ncitt um það, hvort eitthvert mark sé á þeim takandi, því ekki hef ég sjálf sent ykkur draum til úrlausnar. Hins vegar á ég draum- spakan frænda, sem oftar en einu sinni og vel það hefur ráðið drauma mína ojj hefur aldrei skeikað. Nú vill svo til, að þessi frændi minn les oft þessar draumaráðningar ykk- ar, og jafnan fussar hann og sveiar yfir þessu og segir að þetta sé þvað- ur og fjas. Hann vill leggja allt aðra merkingu í marga af þessum draum- um. Ég er voðalega „skeptísk" á allt svona kukl, og einhvern veginn hálftreysti ég honum frænda mínum. Hvernig má það þá vera að þetta stangist svona á? Eða er drauma- ráðningamaðurinn ykkar bara að draga saklausa lesendur á asnaeyr- unum? Með þökk fyrir svarið, Dúlla. --------Líkiega verður einhver bið á því að draumaráðningar geti talizt vísincli — hvað þá „absólút" vísinai. Allt það, sem draumaráðningamenn fyrr og síðar hara honalað, er auðvitað reikult og orætt, og ennþá er varla hægt að laia um „stað- reyndir“ hvað snertir drauma- ráðningar. Þess vegna eiga þessi ókunnu vísinai sér marga olika spámenn, sem vonanai flestir reyna að túlKu sina sannfænngu, og meira getunt við ekki sagi um draumaráöningamann okkar. Hann stunaar araumaráðnmgar sínar sem vísinaagrein. Keynslan ein getur skorið úr um það, hvort hann er fær um að vinna úr þeim hráefnum, sem hann fær upp í hendurnar. Kannski mætti lúlka sama drauminn á marga vegu, án þess að ráðningarnar stangist á. ivannski frændi þinn og araum- ráðanai oKkar hafi uaöir nokKuð til síns máls. Rafmagnsrakstur Kæri Póstur. iig fekk ralmagusrakvél i afmælis- gjöf um daginn. En nú eru svo marg- ir að segja mér að skeggið hafi ekki gott af rafmagnsrakstri og verði svo íllviðráðanlegt. Er nokkuð til í þessu? Eggert. — — — Það er mjög misjafnt hvers konar rakvél hentar hverj- um manni — og sumum hentar langbezt að raka sig með raf- magnsrakvél. Ef menn hafa vanið sig við rafmagnsrakstur, verður skeggið verr viðráðanlegt með venjulegri rakvél. Hver maður ætti því að reyna hvort tveggja. Hitt er það, að vafasamt er að nota ýmist rafmagnsrakvél eða öryggisrakvél. Gulur á puttunum. Hvernig á ég að fara að þvi, Póstur minn, að ná gulu af putt- unurn á mér, sein hefur komið af sigarettureykingum? Ég er nefni- lega ekki nema 14 ára og pabbi og inamma vilja ekki að ég reyki, en ég er búinn að venja mig á það og reyki þá bara i laumi, en þá kemur þessi fjárans gu.a á putt- ana á mér og kemur upp um mig. Ég er búinn að reyna með sand- pappír og svoleiðis, en það dugar ekkert, og kemur bara sár á putt- ana. Hvernig á ég að fara að þessu? Ég kann gott ráð. Hætta að reykja. AULMANN AHLMANN eldavélasamstæðan er heimsþekkt úrvalsframleiBsla vegna þess að: I 1. lagi er hin algera nýjung, að sjálfvirkur klukkurofi er á eldunar- plötum og sjálfvirkur hitastillir á hraðsuðuplötunum, sem dregur úr hitanum við suðumark niður í haefi- legt hitastig. 1 2. lagi er hinn vandaði innbyggði bökunarofn með sjálfvirkum klukku- rofa, grilli, og með tvöfaldri hurð, innri hurð úr gleri, svo að þér getið fylgzt með bakstrinum án þess að opna ofninn. 1 3. lagi er hún stilhrein, nýtízkuleg og formfögur. — I 4. lagi: EINU SINNI AHLMANN — ÁVALLT AHLMANN. AULMANN U M B O Ð I Ð SIGHVATUR EINARSSON & Co. Skipholti 15 - Sími 24133 24137 VIKAN o

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.