Vikan


Vikan - 24.05.1962, Blaðsíða 32

Vikan - 24.05.1962, Blaðsíða 32
í spori og glæsileg. Goebbels var aftur á móti þögull og fálátur við aðra, og svipur hans og augnatillit lýsti ó- segjandi innri kvöl. Frá brúðkaupi Evu Braun og Hitl- ers hefur svo víða verið áður sagt, að það verður ekki endurtekið hér, en að þvi loknu samdi Hitler sína „pólitísku erfðaskrá", þar sem hann gerði Goebbels að ríkiskanzlara, en Borman að foringja flokksins, en Dönitz stóraðmírál að forseta rlkisins og æðsta manni allra hervarna — gerði þá Göring og Himmler flokks- ræka, en sýndi Ribbentrop ekki einu sinni þann heiður að minnast á hann. Og allt var þetta leikur — furðulegur og skopkenndur harmleikur, að því leyti til, að þar kom greinilega í ljós hvernig þeir menn voru að allri gerð, sem um árabil höfðu skráð söguna blóði og þjáningum, er þeir gátu gamnað sér þannig við ímynduð völd og vegtyllur, eftir að allt ríki þeirra var lagt í rjúkandi rústir. Skömmu áður hafði önnur mann- eskja í þessum hóp einnig samið sína „erfðaskrá", sem ætti það jafnvel fremur skilið að kallast „erfðaskrá" þriðja ríkisins en sjálfsblekkingar- plagg foringjans — erfðaskrá þeirrar kynslóðar, sem hann og nánustu að- stoðarmenn hans og fylgjarar ekki hvað sízt hinn nýbakaði „ríkiskanzl- ari,“ höfðu leitt út í eitt hið ótrúleg- asta og óhugnalegasta ævintýri, sem sagan kann frá að greina; sem þeir höfðu svikið og blekkt með ytri fals- ljóma og kaldrifjuðum áróðri í ímynd- aðar sigurhæðir og loks steypzt í niðurlægingu og glötun — og sem lét þó enn blekkjast til annarlegs átrún- aðar á þá, þar sem hún stóð á barmi tortímingarinnar, fyrir blinda of- stækissefjun, sem okkur er nú, aðeins tæpum tveimur áratugum siðar, með öllu óskiljanlegt fyrirbæri. Þessi erfðaskrá, var kveðjubréf Mögdu Goebbels til sonar sins af fyrra hjóna- bandi, sem nú var fangi á Bretlandi: „Elsku sonur minn! Nú höfum við dvalizt í viku hérna í neðanjarðarbyrgi foringjans, pabbi þinn, litlu systkinin þín sex og ég, til að enda þar ævi okkar á þann hátt, sem er heiðri okkar sem meðlimum nazistaflokksins samboðinn. Ég veit ekki hvort þú færð þetta bréf. Kannski fyrirfinnst sá mannlegi skilningur, sem verður til þess að þér berist þessi hinsta kveðja mín. Ég vil að þú vitir að það er gegn vilja föður þíns, að ég dvelst hér hjá hon- um, og að síðast á sunnudaginn vildi foringinn aðstoða mig við að komast á brott.En þú þekkir móður þína. Við erum af sama blóði. Fyrir mig er ekki framar nelnnar yíirvegunar þörf. Vor dýrlega hugsjón tortímist, og ásamt henni allt það, sem ég hef kynnzt af fegurð, göfgi, góðu og að- dáunarverðu á allri minni ævi. Sá heimur, sem við tekur, þegar foring- inn og nazisminn er allur, verður ekki þess virði að í honum sé lifað, og þess vegna tek ég börnin með mér á brott úr honum. Þau eru of góð fyrir þá tilveru, sem við tekur að okkur liðnum, og náðugur guð hlýtur að skilja mig, þegar ég veiti þeim lausnina sjálf...“ Og þegar Magda Goebbels hefur lýst því hve börnin séu þæg og eftirlát, lýkur hún bréfinu með þessum orðum: „1 kvöld tók foringinn sitt eigið, guilna flokksmerki og nældi því í barm mér. Ég er stolt og hamingju- söm. Guð gefi, að mér endist þrek og kraftur til að framkvæma það, sem síðast VM-ður og örðugast. Við eigum nú aðeins eitt takmark — hollustu við foringjann unz yfir lýkur. Að við tkulum ;t'ega ljúka lífi okkar í félagi við hann, þaö er meiri náð en ég hei' nokkurn tíma þorað að vona að ég yrði aðnjótandi... Elsku sonur minn lifðu fyrir Þýzka- land! Þin móöir.“ Goebbels skrifaði einnig stjúpsyni sínum kveðjubréf. Setningarnar eru eins og þær væru klipptar úr áróð- ursræðum hans.“ ... Sá dagur kemur, þegar vald lyganna brestur undir sln- um eiginn þunga, og sannleikurinn hrósar sigri á ný. Þeir tímar koma, þegar við stöndum aftur hreinir og flekklausir gagnvart heiminum. Eins hreinir og fiekklausir og trú okkar og takmark hefur alla tið verið .. .“ Skiptar skoðanir eru enn um það, hvort þær frásagnir af dauða foringj- ans og Evu, sem teknar voru gildar fyrst og enn eru viðurkenndar opin- berlega í orði kveðnu, muni sannar. Aftur á móti hafa aldrei verið skiptar skoðanir um það, að það hafi verið líkin af þeim hjónum, Mögdu og Joseph Goebbels, sem rússnesku her- mennirnir fundu úti í garðinum uppi yfir neðanjarðarbyrgjunum, þegar þá bar að, þótt mjög væru þau torkenni- leg orðin sökum brunans. Lík barn- anna sex lágu í rekkju niðri I byrginu. Samkvæmt frásögn viðstaddra, bland- aði Magda sterku svefnlyfi í kvöld- mat þeirra, en’ þegar þau voru sofnuð væran, renndi hún eitrinu 5 munn þeirra, með skeið; síðan biðu þau hjónin inni í herberginu, unz líkin voru kólnuð og stirðnuð. Þegar þau komu út þaðan, var Goebbels rólegur að sjá, en Magda náföl og studdist við arm hans. Rödd Goebbels var skýr, þegar hann kvaddi viðstadda og þakk- aði þeim aðstoð og traust. Hann reyndi meira að segja að bregða á gaman; það vottaði fyrir brosi um varir hans, þegar hann kvað þau hjónin mundu halda upp í garðinn, svo vinir þeirra losnuðu við það erf- iði að bera lík þeirra upp þrepin. Þegar rússnesku hermennina bar að, terrði Joseph Goebbels bruna- sviðnar handkjúkur sinar móti þeim, eins og í kveðjuskyni, og holdbrunnin ásjóna hans starði til þeirra tómum augnatóftum. Fjandmennirnir grófu hann og konu hans og börnin í fjölda- gröf, og veit nú engin hvar. Þannig lauk ævi mesta áróðurs- snillings og sviðsetningarmeistara allra tíma. Mannsins, sem vildi drottna yfir hugsun allra, ekki ein- ungis í heimalandi sínu, heldur í öllum heiminum; ieikarans, sem gekk leiknum svo á vald, að hann varð hon- um hinn eini veruleiki; snillingsins, sem mat hvert málefni, mann og at- burð eftir þvi einu hvernig það þjón- aði undir list hans, en svo gersviptur öllum tilfinningum gagnvart öðrum, að hann gladdist ekki einungis yfir pyndingum og múgmorðum, sem hann hugði stefnunni, flokknum og foringj- anum til framdráttar — en þetta þrennt var honum hans annað sjálf — heldur fagnaði og að lokum hruni, ósigri og tortím- ingu alls þessa, og þá um leið sinnl eigin tortímingu og ástvina sinna, fyrir það að þar gafst honum tækifæri til þess að sanna öllum heimi snilli- gáfu sina og tryggja sér eilift líf I sögunni. Verði Joseph Goebbels nokkurn tíma reistur bautasteinn, munu vart önnur orð valdari til að standa þar greipt, en þau er hann mælti sjálfur við einn af samstarfsmönnum sínum, þegar þeir stóðu I grennd við rjúk- andi rústir byggingarinnar, þar sem hans eigið ráðuneyti hafði áður verið til húsa: „Takið eftir orðum mínum, þeir at- burðir, sem við erum nú vitni að, er sögulegur harmleikur, svo voldugur og stórfenglegur, að ekkert, sem gerzt hefur á vorri öld stenzt þar saman- burð — já, raunar ekkert, sem gerzt hefur fyrr á öldum, nema við látum hugann reika allar götur til Gol- gatha ..." ^ 32 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.