Vikan


Vikan - 24.05.1962, Blaðsíða 14

Vikan - 24.05.1962, Blaðsíða 14
Helga Finnsdóttir Þá brostu þeir svörtu frá Kallikabulu v’NEXTÍU OG FIMM lcílómetrum fyrir sunnan Miinchen er lítið þorp, sem heitir Bad Aihling. Það er ekki lítið á íslenzkan mælikvarða, en saman- borið við stórborgir eins og Miinchen, sem er næststærsta horg Þýzkalands, er ])að ósköp friðsælt og vinalegt. Það hefur sína kirkju, sem stendur uppi á hárri hæð, þar skammt frá er sjúkrahúsið, niðri í bænum eru tvö kvikmyndahús og ótal litlar verzlanir, þar sem hægt er að fá allt milli himins og jarðar. Einnig eru þrjú gistihús i þorpinu, tvö kaffihús og tvær pensionir, það er mjög athyglisvert í Þýzkalandi, hvað mikið er um gistihús og veitingastofur og öll eru þau jafnvei sótt. Fyrr á tlmum tíðkaðist það ekki að Þjóðverjar væri heima hjá sér á kvöldin, heldur sat öll fjölskyldan á svokölluðum Gastháuser, drakk hjór og át Wurst og Sauerkraut eða spilaði þjóðleg þýzk pen- ingaspil. Oft var líka fiðluleikari á veit- ingastofunni og þá sungu allir og vögg- uðu sér í takt við lagið. Enn þann dag í dag sitja Þjóðverjar á bjórstofum á kvöldin, en ekki eins mikið og áður var, sem eðlilegt er með tilkomu sjónvarps og annarrar nútímatækni. Ennfremur var i þorpinu þýzkuskóli fyrir útlendinga og sú var ástæðan fyrir þvi, að ég, komin alla leið norður úr ís- hafi, var að þvælast um þessar slóðir. Bad Aibling iiafði það ' nefnilega fram yfir önnur þýzk þorp, að á götiun þess matti sjá kolsvarta og jafnvel bláa svert- ingja, heiðgula Japani, dökkbrúna ítali, vandláta Englendinga, kæruleysislega Ameríkana og jafnvel stolta íslendinga. G SAT og velti því fyrir mér meðan lestin þaut í gegnum sveitahéruð Oberbayern, hvað mundi verða gert við mig, þegar ég kæmi í skól- ann, ég var nefnilega tveimur dögum of sein, og stundvísi, nákvæmni og skyldu- rækni Þjóðverja er heinísfræg. Ég hafði einnig orðið vör við það, að þeir eru nokkuð skapbráðir, þú gazt setið í strætis- vagni og áður en varði var allur vagninn kominn í háarifrildi út af strákhnokka, sem ekki borgaði nógu mikið, og það ekki í svo lítilli bræði. Ég, þessi friðsama, ís- lenzka sál, varð dauðhrædd i fyrsta skipti, sem ég sá Þjóðverja skipta skapi, en það vandist og ég var ákveðin i því að semja mig að siðum og háttum þjóðarinnar, það er ekki nema tilhlýðileg kurteisi. Sinn er siðurinn í landi hverju og heima á ís- landi mundi maður se-m missti stjórn á skapi sínu út af engu á almannafæri, vera álitinn skrýtinn. En það má margt gott af Þjóðverjum læra, ég fer t. d. nú orðið miklu betur með eigur mínar en áður. Mér er minnisstætt fyrst þegar ég kom til Hamborgar og þurfti að sýna lestar- miðann i lestinni til Múnchen. Eftir langa leit í öllum vösum og töskum, því það eru áiög á mér, þó ég taki lii í handtöskunni á hvcrju kvöldi, dró ég upp miðann, en hann var víst eitthvað krumpaður og ó- hrjálegur, því ég fékk að heyra langa ræðu um það, að þannig færi maður ekki með opinher skjöl og lestarþjónninn strunsaði í burtu, fuliur heilagrar vand- iætingar á því, að sýna yfirvöldunum svona mikla óvirðingu. Já, ég var greini- lega ekki lengur á íslandi. ANNIG lét ég hugann reika, meðan lestin bar okkur yfir þetta gull- fallega land, sem hefur ])olað svo mikið og orðið svo illilega fyrir barðinu á vonzku manna. Það er ekki hægt að komast hjá því að spyrja sjálfan sig hvers landið eigi að gjalda, þó fólk með þessa skapgerð hafi reikað um þetta svæði í þjóðflutningunum. Óbeit á sjálfu Þýzka- landi er of algeng. Einnig hættir fólki til að gleyma hve ótrúlegum hæfilcikum Þjóðverjar eru gæddir, hvergi I heimin- um má finna færari vísindamenn og hljómlistargáfa þeirra er óviðjafnanleg. Á Strausshijómieikum um jólaleytið í Múnchen varð fólkið jafnhrifið og ungl- ingar á rockhljómleikum i Bandaríkjun- um. Það er þetta sama fólk, sem sleppir skapi sínu út af hverju sem er. Þjóðverjar eru ákaflega tiifinninganæmir annars veg- ar, en mjög harðir hins vegar, það er að vonum erfitt að sameina þetta og heim- urinn veit hver útkoman er. Þetta er með- al annars ástæðan fyrir þvi, að Þjóðverjar geta ekki gert góðar kvikmyndir, annað

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.