Vikan - 24.05.1962, Blaðsíða 22
Vikan hefur litið
inn í nokkrar
tízkuverzlanir í
Reykjavík og
bregður hér upp
myndum ásamt
upplýsingum um
tízkufatnaðinn í
vor og sumar
Verzlunin Rima
Þrír sumarkjólar, úr léttum
bómullarefnum, sem eru auð-
veld í þvotti. Jakkakjóllinn t.
v. er bleikrauður, sá í miðið er
í sterkgræna tízkulitnum, og
kjóllinn t. h. er mynztraður í
bláum litum. Þeir kosta frá
785.00 kr. — 1000.00 kr.
<
Verzlunin Markaöurmn
Svartur kvöldkjóll með íofn-
um röndum úr lakkþræði, en
lakkborin blúnda og legging-
ar eru mikið notaðar núna í
kvöldkjóla. Sjalið er úr chiff-
on og laust við kjólinn. í þess-
um kjól er eitt af þeim efnum,
sem verzlunin flytur inn að-
eins í einn kjól. Þekkt inn-
kaupastofnun í París, Boas,
kaupir inn fyrir Markaðinn
og selur sú sama stofnun efni
til frægustu tízkuhúsa víða um
heim. Þannig er stundum hægt
að fá hér í Markaðnum kjól
úr sama efni og kostar offjár
hjá fínustu verzlunum erlend-
is. Þessi kjóll kostar hér
4.895,00 kr. og þo það se nokk-
uð há upphæð, er það ekki
mikið miðað við hvað model-
kjóll kostar annars staðar.
22 VIKAN