Vikan - 24.05.1962, Blaðsíða 23
Verzlunin Guðrún >
Regnkápur úr bómullarpoplíni,
en þær eru gerðar vatnsheldar
með nýju efni, sem hcitir „Scotch
Guard.“ Það er nokkurskonar
silicone sem gerir það að verk-
um að regnið festist ekki á káp-
unurn — það perlar af jafnóðum,
og eru því kápurnar þurrar, þeg-
ar komið er í hús. Það fer ekki
úr efninu við hreinsun, eins og
venjuleg inpregnering gerir
venjulega. Allar regnkápur, sem
verzlunin hefur, eru frá Sviss og
segir verzlunarstjórinn að þær
séu sérstaklega vandaðar. Regn-
kápan lengst t. v. er ljósblá og
hægt að nota hana án beltis. Hún
kostar 2240.00 kr. í miðið er
dökkgræn terrylene regnkápa
með vösum mjög neðarlega sem
kostar 2600.00 kr. og t. h. er hvít
kápa, stungin með ölluin saumum
og kostar hún 1760.00 kr.
Verzlunin Eygló
Svart-hvít kápa úr léttu uliarboucle. „Við
leggjum mesta áherzlu á, að hafa á boð-
stólum hentug föt fyrir almenning, föt
sem hægt er að nota við ólík tækifæri
og allan ársins hring“, segir Lárus G.
Lúðvigsson, forstjóri. „Flestar kápur, sem
við höfum eru því heilsárskápur, en ekki
miðaðar eingöngu við vissa árstíð, t. d.
þetta stutta og stopula sumar okkaA“
Kápan er þverskorin á mjöðmunum, með
fjórum föllum að neðan, og kragalaus
Hún kostar 2285.00 kr.
Verzlunin MarkaSurinn >
Hollenzk sumarkápa, beinhvít, úr ullarefni með java-
áferð. Leggingarnar eru settar á kápuna á sérkennilegan
hátt, en í baki er há lokufelling. Verðið er um 3000.00 kr.
Verzlunin GuSrún
Þrjár kápur af hinu mikla úrvali, sem verzl. hefur á
boðstólum. T. v. er ljósgrábrún kápa, rnætti segja að
hún væri haframjölslit, Hún er brydduð með samlitum
leggingum og kostar 3150.00 kr. f miðið er gul kápa,
stungin með dökkbrúnu við vasa og handveg. Verðið á
henni er 2655.00 kr. og t. h. er mynztruð kápa með
klassísku sniði í ljósgrænum og gráum litum. Hún kostar
3200.00 kr. Þessar kápur eru frá Hollandi, eins og allar,
eða flestar, kápurnar í búðinni. Þær eru keyptar hjá
ýmsum þekktum fyrirtækjum, eins og Ile Groot og
Mecona.
V
k s •. :
.:;::xo:x:V: :; x
' ' <• '■'•í
VIKAN ^