Vikan - 24.05.1962, Síða 29
VIKUklúbburinn
er ekki í þessu blaði sökum þrengsla,, en hann
verður í næsta blaði og síðan áfram eins og venju-
lega.
brátt litið á hann sem sjálfsdýrkanda,
algerlega tilfinningalausan gagnvart
öðrum; aftur á móti ber þeim ekki
saman um hvort hún hafi goldið hon-
um líku líkt með trúskapinn og segja
sumir að hún hafi haldið framhjá
honum og verið í Þingum við ýmsa
af heldri leiðtogum flokksins, en aðr-
ir þvertaka fyrir það.
SJÖUNDI KAFLI.
LOKAÞÁTTUR. — TJALDIÐ
FELLUR.
Uppgjöf þýzku hersveitanna við
Stalingrad þann 31. janúar 1943, er
yfirleitt talin tákna örlagamörk í síð-
ari heimsstyrjöldinni. Daginn áður
var tíu ára afmæli valdatöku Hitlers,
en ekki varð neitt úr hátíðahöldum
af því tilefní. Goebbels hafði um ann-
að að hugsa. Um það má endalaust
deila hvort aðferðin, sem hann valdi
til að birta þýzku þjóðinni óheilla-
tiðindin, hafi verið sem heppilegust;
en þarna bauðst honum nýstárlegt
tækifæri —- að setja áhrifamikinn
harmleik á svið. Og hann stóðst ekki
mátið. Stök, deyfð trumbuslög, e'ins
og tíðkast á sorgargöngu, kváðu við
í útvarpinu drykklanga hríð áður en
tilkynningin um ósigurinn var flutt
hlustendum; morguninn eftir voru
öll dagblöðin með svörtum jaðars-
röndum. Og vissulega var fyllsta á-
stæða til uggs og harma ....
Og nú kemur fram athyglisverður
þáttur i hinni margslungnu skapgerð
Goebbels. Það er eins og sigur eða
ósigur Þýzkalands skipti hann ekki
mestu máli þegar öllu er á botninn
hvolft. Nú hafði skipt um leik á sviði
■— hinn stolti hetjuleikur hafði breytzt
í válegan harmleik, og úr því sem
komið var reið fyrst og fremst á að
halda stilnum, gera hvert atriði sem
mikilfenglegast og stórbrotnast.
Þarna bauðst meistaranum ómetan-
legt tækifæri til að sýna og sanna
öllum heimi snilligáfu sína. Þannig
virðist Goebbels hafa litið á málið
fyrst og fremst. Dagbækur hans bera
því ljóst vitni hvílíkan fögnuð það
vekur með honum, þegar foringinn
dáist að listrænum afrekum hans á
þessu sviði; þó vekur það að því er
virðist enn meiri fögnuð með honum,
þegar honum berast þær fregnir, að
jafnvel fjandmennirnir viðurkenni
snilli hans. Þar er lauslega sagt frá
hinum örlagarikustu og válegustu
atburðum, einungis sem tilefni hinna
frábæru listbragða hans sjálfs, en frá
þeim og viðurkenningunni er ná-
kvæmlega skýrt. Hafi Goebbels í
rauninni verið farinn að leggja trún-
að á það sjálfur, að æðri máttarvöld
hefðu kjörið Hitler sem verkfæri sitt,
hefur hann áreiðanlega ekki efazt
um að þau hin sömu máttarvöld væru
staðráðin i að haga svo atburðum,
að heimurinn gæti minnst Josephs
Goebbels sem hins mikla áróður-
snillings allra alda — jafnyel þótt
þau yrðu að fórna „sinni eigin út-
völdu Þjóð“ i því skyni. Tilgangurinn
er ekki lengur sá að nazisminn frelsi
þýzku þjóðina og þýzka þjóðin frelsi
heiminn, heldur harmleikurinn vegna
harmleiksins. Þannig verður hinn
mikli áróðursmeistari að lokum sínum
eigin áróðri að bráð.
Séðar í þessu Ijósi verða dagbækur
hans frá síðustu styrjaldarmánuðun-
um furðu skýr og merkileg heimild
um sjálfan hann. Öll frásögn hans er
gersneydd samúð; hann lítur á allt
og alla á sama hátt og leikstjórinn
lítur á atburði þá, sem gerast á svið-
inu og leikendurna, sem þar koma
fram. Að hans dómi eru leikendurnir
yfirleitt lélegir, það er eingöngu snilli-
gáfa hans sjálfs, sem bjargar sýning-
unni. Hann fagnar því að samband
hans við foringjann verður stöðugt
nánara aftur, að sama skapi og sígur
meir á ógæfuhliðina — það er honum
viðurkenning þess, að þegar á reyni,
sjái foringinn að hann sé sá eini, sem
aldrei bregzt trausti hans, þótt allir
aðrir bili. Viðurkenning .... aðdáun
.... vera tekinn fram yfir alla
aðra ....
Ef einhver skyldi ætla að hér væri
of sterkt að orði kveðið; það geti
ekki komið til mála að sjálfsdýrkun
Goebbels hafi verið svo takmarkalaus,
tilfinningaleysi hans svo algert, má
benda á lítið dæmi úr dagbókum hans;
klausu, sem hann skrifar þegar allt
er að hruni komið:
„Oft virðist sem framkoma
Berlínarbúa sé beinlínis þrungin
trúarlegri tilbeiðslu. Konurnar
ganga í veg fyrir mig, gera
krossmark og biðja Guð að
vernda mig. Þetta er ákaflega
hrífandi. En ég geri lika allt,
sem í mínu valdi stendur, fyrir
þetta fólk .... Með dálitlu lagi,
getur maður vafið því um fingur
sér ...."
Að geta vafið öðrum um fingur
sér, og vera tekinn fram yfir alla
aðra ....
Samsærið gegn Hitler er öllum
þeim, sem fylgdust með atburðum
á þessum árum, eða kynnt hafa sér
þá af bókum síðar, svo ljóst í minni
að óþarft er að rifja það upp hér,
enda ekki rúm til þess. E’kki verður
þó hjá þvi komizt að geta nokkuð
þeirrar hlutdeildar sem Goebbels átti
i eftirleiknum og hvernig hann hag-
nýtti sér hann til þess ýtrasta til
að efla aðstöðu sína og áhrif hjá
foringjanum, og má með nokkrum
sanni segja, að þar hafi hann unnið
sinn frægasta leiksviðssigur — og
um leið þann síðasta.
Ekkert bendir til þess, það er nú
er vitað, að Goebbels hafi verið kunn-
ugt um undirbúninginn að samsær-
inu, endajsýndi sig að því var stefnt
gegn honum; samsærismenn höfðu
ákveðið að taka hann höndum um
leið og sprengjan hefði ráðiö niður-
lögum foringjans. Það var fyrsta
vitneskjan, sem Goebbels hafði um
þennan örlagaríka atburð, er hann
frétti að foringjanum hafði verið sýnt
+ QtfAGÐGÖÐ
s-n,6 + H(3P?AANDi
SCOTT'S HAFRAGRJÓNIN eru nýjung á markaðnum. Þau eru drýgri, bragðbetri og kraftmeiri, enda heims-
þekkt gæðavara. Reynið sjálf þessar þrjár uppskriftir.
LeiObeiningar:
1 góðan hafragraut fyrir tvo; hrærið úr heil-
um bolla af Scott’s hafragrjónum út I þrjá bolla
af köldu vatni. Bætið út í sléttfullri teskeið af
salti. Setjið yfir suðu og látið sjóða í fimm
mínútur. Hrærið í af og til. (Borið fram með
kaldri mjólk, þegar tilbúið).
I gómsætan hafragraut notið mjólk eða mjólkur-
blöndu í staðinn fyrir vatn eingöngu.
1 m. uppskrift. Fyrir tvo:
Hrærið úr heilum bolla af Scott's hafragrjón-
um út í þrjá og hálfan bolla af hálfsoðnu vatni.
Bætið út i sléttfullri teskeið af salti. Haldið
yfir suðu í eina mínútu. Hrærið í af og til.
Takið hitann af og látið hafragrautinn standa
í fimm mínútur. Borið fram með kaldri mjólk.
Kaldur hafragrjónsréttur:
Hellið beint úr pakkanum, bætið út á kaldri
mjólk og sykri. — Þetta er dásamlegur réttur.
SCOTTS hafraGRJÓNIN fást í
næstu búð.
Heildsölubirgðir: KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ h.f.
VIKAN 29