Vikan - 24.05.1962, Blaðsíða 37
rólegri og vingjarnlegri röddu. Og
hún bar þar kennsl á lyfsalann. Hann
sagði henni að hún skyldi verða sér
samferða heim til móður Tonys. Ein-
hver yrði að segja henni hvernig kom-
ið væri og hún Þyrfti huggunar við.
Og þær hefðu báðar unnað Tony.
Setjum sem svo, að um tíu þús-
und borgarbúar, eða Þeir, sem áttu
heima þarna í grenndinni, hafi vitað
nokkurn veginn hvaða harmleikur
hafði gerzt — samt sem áður voru
milljónir manna í New York, sem
höfðu ekki hugmynd um það. Daginn
eftir birtu nokkur af dagblöðum
borgarinnar, ekki nándarnærri öll,
stutta frétt um morðin undir brúnni,
en þó ekki nema lauslega.
Þetta var laugardagskvöld, og borg-
arbúar nutu lífsins, Því að Það var
hvíldardagur á morgun; nutu ásta,
víns og matar, svefns og værðar. Og
það var fólk sem lézt á sóttarsæng,
og aðrir dóu af slysum eða voru
myrtir.
Og til voru þær konur og karlar,
sem þjáðust af einmanleika og horfðu
á stjörnurnar og tunglið; hvísluðu út
í myrkrið og þögnina í Þeirri von að
einhvers staðar væri einhver, sem
heyrði ákall þeirra í draumi .... að
ósk þeirra mætti rætast, og ekki liði
á löngu þangað til einhver yrði á vegi
Þeirra, sem einnig þráði ást, ham-
ingju og gleði.
Og óskir sumra rættust, en það
kom borginni sjálfri ekkert við, því
að hún var byggð til að standa þegar
það væri löngu látið, allt þetta fólk,
■sem byggði hana nú.
Og þannig gekk lítið sinn vanagang,
eins og það hafði gert og mun gera.
ENDIR.
Siðmenningarvið j ar
Framhald af bls. 17.
virkt afl allt frá fæðingu og leitaði
fullnægingár í sérstöku hátterni,
sem einkenndi mismunandi skeið
þróunarinnar. „Allt þetta verður
okkur ljósara, ef við gefum gaum
■þeirri staðreynd, að kynhvöt manns-
ins þjónar upprunalega alls ekki
viðhaldi iifsins, lieldur er markmið
hennar ákveðin tegund naulnar"
(Freud: Ges. Werke, 7. hindi, bls.
151).
Þessarar nautnar og fróunar leit-
ar barnið fyrst við brjóst móður
sinnar, en slðar á eigin líkama,
einkum mcð því að filla við kyn-
færi sin. Fljótleg atlnigun leiðir
þetta ótvírætt í ljós. H vítvoðungur-
inn hættir eld.i að sjúga brjóst móð-
ur sinnar, þegar hann er mettur,
heldur toltar það áfram, þangað
til sælukennt værðarmók sígur á
hann. í sama tilgangi sýgur hann
fingur og snuð, og jafnvel þótt hann
hafi ekkert í munni sér, veitir sog-
hreyfingin einsaman nautnakennd
og fró. Bráðlega uppgötvar barnið
svo þá líkamshluta, sem veita á-
kveðna þægindakennd við snertingu.
Þar með er mörkuð stefna kynhvat-
arinnar á fyrsta kynþróunarskeið-
inu: sjálfhverfa hennar eða auto-
erotik. Bæði Freud og slðar aðrir
sálfræðingar telja sig hafa fundið
sérstaklega greinileg skeið þessa
frumbernskukynlífs, á aldrinum
3—4 ára. Sumir tala jafnvel um
ákveðin kreppuskeið kynþróunar-
innar um 3 ára aldur.
AFSTAÐAN TIL KYN-
HÆFNINNAR.
Enda þótt kynþrá barnsins sé
sjálfhverf og það leiti henni fróunarskömmu uppvaxtarskeiði verður eðl-
á eigin líkama, vaknar snemma
gagnkvæmur áhugi drengs og telpu
fyrir ólikum skapnaði þeirra. Hvort
um sig tekur í fyrstu sinn eigin
skapnað sem hið algilda sköpulag,
og fyllist undrun, þegar það sér, að
drengur og telpa hafa ólíkan
líkamsskapnað, t. d. ef systkin eru
saman í baði. Freud telur nú að
sjálfsvirðing karls og konu ákvarðist
verulega af hugmyndum þeirra á
barnsaldri um skapnaðarmuninn.
Telpan finni til vanmetakenndar
yfir því, að hún hafi verið svipt
kynfæri sínu eða misst það á annan
hált, og hún lítur með lotningu upp
til drengsins, sem hefir þetta þægi-
lega tippi til að pissa með. Þessir
yfirburðir fylla drenginn stolti, sem
þó blandast þrálátum ótta, að einnig
hann verði sviptur kynfæri sínu,
eins og hann þykist sjá að gerzt
hafi með systur hans. Slikur ótti
getur altekið hann, ef hann þjáist
af afbrýði við föður sinn vegna for-
réttinda hans hjá móðurinni. Um
allt þetta myndaði Freud hugtaka-
kerfi, sem á að bera strangan vís-
indablæ (Penisneid, Ivastrations-
angst, Ödipuskomplex), en mörgum
virðist þetta samt vera sá þáttur i
kenningu hans, sem mest er liáður
hans eigin persónu og tið.
Engar sannanir eru fyrir þvi, að
telpur séu síður stoltar af skapnaði
sínum en drengir, þó að auðvelt sé
að rugla sjálfstraust barnsins með
óheppilegum afskiptum fullorðinna.
Freud lætur um of leiðast af
kreddubimdniun Irúarhugmyndum
samtíðar sinnar og þjóðar um nauð-
syn algers aðskilnaðar kynjanna frá
bernsku. í frjálslyndara samfélagi,
eins og t. d. hér á landi, þar sem
systkini busla saman í baðkerinu
og sjá móður eða föður oft nakin
taka þau skapnaðarmun kynjanna
sem sjálfsagðan hlut, sem að visu
getur vakið forvitni þeirra i svip,
en raskar hugarró þeirra ekki að
öðru leyti. Það er alltof auðsær kyn-
liroki karla, ef gert er ráð fyrir,
að konan líti á skapnað okkar sem
eins konar fullkomnun, sem hún
hafi misst al'. Raunsæ athugun á
börnum staðfestir það ekki.
Öðru máli gegnir með kynlíf
barnsins. Það heimtar greini'ega silt
rúm, ba'ði í luiga barns og ytra at-
ferli. En siðvendni samfélagsins
setur því óvægilegar skorður. Sam-
kvæmt henni er kynhvöt á bernsku-
aldri ótímabær, og þvi er látið heita
svo sem hún væri ekki til. Hvar
sem á henni bryddir er hún bann-
færð í vitund barnsins, svo að það
á naumast annars kostar völ en að
bæla hana hið innra með sér. Því
fordæmir það hana án þess að geta
iosnað undan álagavaldi hennar, er
á verði gegn henni án þess að kunna
að varast dulargervi hennar.
Einmitt þessi tvíhverfð auðkenn-
ir hinn siðmenntaða nútímamann.
Kynhvöt á sér sama uppruna og
sama ætlunarverk hjá manni og
dýri. En manninum einum stendur
leið siðfágunarinnar opin. Hann
gerir sér ástríðu sína meðvitaða og
umvefur hana rómantík ástarinnar
eða veitir orku liennar i nýjan far-
veg afreka og skapandi starfs. Þetta
er sá farvegur, sem siðvendnin ætl-
ar „ótimabærri“ kynhvöt: leið
göfgunarinnar. Inn á hana beinir
hún öllum þorra fólks árekstralaust.
En bilið frá hemjuleysi frumstæðrar
hvatar til siðvendni og siðfágunar
nútimamannsins er býsna breitt. Á
ið að semja sig að árþúsunda þróun.
Það er hlekkur tímans, sem læsist
fastar og fastar um manneðlið.
Þróunarhraði siðmenningarinnar
eykst, en náttúran er þó treg til að
breyta stigmáli sínu. Af þvi leiðir
árekstra, sársauka og bælingu eðlis-
ins.
Á misgengi milli eðlislægra hvata
einstaklingsins og siðfágunarkröfu
samfélagsins hvílir sú staðreynd, að
„menning okkar er grundvölluð í
bælingu hvatanna“.
Þá brostu þeir svörtu
Framhald af bls. 15.
liðnir frá dauða föður hans, þegar
hún byrjaði að tala um að gifta sig
aftur. Hún skrapp til Ameríku,
meðan ég var þar, í hálfan mánuð
til að slæða miðin þar.
SNSION þessi var annars
M 1 mjög skemmtilegt, gamalt
J hús, fullt af gömluni þýzkum
og fallegum hlutum. Ég
fékk stórt og gott herbergi á þriðju
og efstu liæð, fullt af málverkum
og gömlum húsgögnum. Stúlkan,
sem lók til i herbergjunum var mið-
aldra þýzk pipariney, ein af þessum
sem átti kærasta, sem fórst í fyrri
heimsstyrjöldinni, og ákaflega sér-
vitur. Henni var mjög vel við mig,
færði mér vikublöð, sem hún fann
á öðrum herbergjum, hún hefði átt
að vita, hvað mér fannst gaman
að lesa vikublöð, og kom með blóm
og annað þess háttar. Svo loksins
einn daginn stundi hún því upp,
hvorl hún mætti ekki fá lánað út-
varpið mitt, þegar ég færi til
Miinchen um helgar, henni |)ætti
svo gaman að hlusta á útvarpið og
svo brosti hún eins og barn sem
hefur verið lofað að fá heitustu ósk
sina uppfyllta. Fyrir utan það að
hlusta á útvarp, þegar hún fékk það,
var eftirlætisiðja hennar að drekka
bjór. Margar eldri konur þýzkar eru
forfallnar 1 bjór. Sonurinn þarna
sagði mér, að hún ætti mörg hundr-
uð mörk í banka og gæti því keypt
sér radiógrammofón ef hún vildi,
en hún eyddi aldrei einu marki,
gekk jafnvel i sömu fötunum ár
eftir ár. Það er einkennandi fyrir
Þjóðverja, hvað þeir eru sparsainir,
mér dettur oft í hug, hvers vegna
fólk hafi verið að búa til Skota-
sögur, þegar Þjóðverjar voru fyrir
hendi. Og þeir eru ekki einungis
sparsamir, heldur og ágjarnir. Einn
islenzkur kunningi minn í Múnchen,
sagðist vera búinn að sannreyna
það, að ekki væri hægt að fá Þjóð-
verja til að brosa falslaust, nema
vcifa framan í liann tiumarkaseðli.
Þetta var t. d. ástæðan fyrir þvi,
að eiganda pensioninnar líkaði
mjög vel við mig, þvi ég keypti oft
eitthvað hjá henni, en henni var
afar illa við hinn nemandann úr
skólanum, sein bjó jiarna þar sem
hann keypti aldrei neitt, ekki einu
sinni kaffibolia. Annars liorðuðu
nemendur i sameiginlegu mötu-
neyti. Framhald á næstu síðu.
JOHNSON
utanborðsmótorar
3 - 5,5 - 10 - 18 - 28 -40 hestafla mótorar
jafnan fyrirliggjandi.
Fullkomin viðgerðar- og varahlutaþjónusta.
Gunnar Ásgeirsson h.f.
Suðurlandsbraut 16. — Sími 35200.
VIKAN 37