Vikan - 28.06.1962, Blaðsíða 15
Hrútsmerhiö (21. marz—20. apr.): Líklega verður
þessi vika alls ekki eins og þú hafðir gert ráð
fyrir. Um helgina eða á mánudag kemur til þin
_______ persóna, sem þú tortryggir dálítið, en sú tor-
tryggni hverfur brátt, er þú kynnist þessari
persónu nánar. Vertu ekki mikið úti eftir miðnætti.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Þetta verður
mikil heillavika fyrir þá, sem fæddir eru undir
þessu merki í april, þótt hinir þurfi raunar engu
að kviða. Þú getur orðið þér úti um auðfengna
peninga með dálitilli kænsku, en sakir anna er
hætt við að þú komir ekki auga á þessa leið. Þú þarft að
fara að hugsa betur fyrir framtiðinni.
TvfburamerkiÖ (22. maí—21. júni): Þetta verður
í alla staði hin þægilegasta vika, þótt ekki gerist
neitt markvert. Dagarnir verða hver öðrum líkir.
Þó er eins og beri fullmikið á leti í fari þínu. Þú
reynir um of að koma óleystum verkefnum, sem
þú ættir á eigin spýtur að ráða fram úr, á aðra. Laugardag-
urinn er mikill heilladagur fyrir ógifta karlmenn.
KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júli): Fram að helgi
verður vikan fremur tilbreytingarlaus, jafnvel
leiðinleg, en um helgina gerist eitthvað, sem kem-
ur lífi í tuskurnar, og verður vikan á eftir mjög
viðburðarík og skemmtileg. Þú kynnist að ein-
hverju leyti hópi manna, sem þér er ekkert vel við í fyrstu,
en ef þú umgengist þennan hóp meira, myndi viðhorf þitt
breytast.
LjónsmerkiO (24. júlí—23. ág.): Þér bjóðast tvö
gullvæg tækifæri I vikunni, en ekki er vist að þú
getir nýtt þer nema annað þeirra. Um helgina
gerist eitthvað, sem fær talsvert á þig í fyrstu, en
ef þú tekur á þig rögg, mun betta allt saman jafna
sig. Vertu bara þolinmóður. Á sunnudag færð þú skemmti-
lega hugmynd, sem þú skalt ekki hrinda í framkvæmd strax.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23 okt.): Þetta verður
viðburðarik vika, einkum hvað allt fjölskyldulif
snertir. Líklega munt þú umgangast félaga þína
minna en venjulega, enda hefur þú í ýmsu að snú-
ast heima við. Líkur eru á þvi að þú kynnist
mannl i vikunni. Þessi maður hefur lengi haft hug á þvi að
kynnast þér, en nú vérður það þú, sem verður fyrri til.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þetta verður
vika mikilla öfga, þvi að ýmist ert þú fullur bjart-
sýni og trú á tilveruna, eða lætur bugast af
minnstu smámunum. Ástvinur þinn virðist vera
eitthvað erfiður i skapinu þessa dagana, og verður
þú að fara að honum með mikilli gát. Fimmtudagurinn er sá
dagur, sem skiptir framtíð þina næsta mánuð mestu.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Þú munt leysa
úr mörgum erfiðum verkefnum í þessari viku, og
einmitt nú, er eins og þú beitir sjálfan þig allt of
strangri sjálfsgagnrýni, svo að þér finnst ekkert
verða ágengt, þótt í rauninni gangi vel. Sjálfs-
gagnrýni er hverjum holl, en hún má ekki verða til þess að
þú missir allt sjálfstraust. Heillatala 7.
BogmannsmerkiÖ 23. nóv.—21. des.): Þetta verður
yfirleitt hin skemmtilegasta vika. þótt í rauninni
gerist ekki neinir stórviðburðir. Vinur þinn hverf-
ur af sjónarsviðinu um stundarsakir. og það er
eins og að þú lærir fyrst eftir að hann er farinn,
að meta einn kost í fari hans. Þú lofaðir einhverju í vik-
unni sem ieið, og nú er kominn tími til efnda.
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan ): Þetta verður
róleg vika, og munt þú yfirleitt ekki hafa mikið
að gera, og hefur þú vissulega gott af því að hvíl-
ast. Þó mun einhver koma til þín einn daginn og
og biðja þig um hjálp við að réða fram úr á-
kveðnu verkefni. Þér væri hollast að bregðast vel við Helg-
in verður óvenjuleg.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þeir, sem
fæddir eru undir þessu merki í janúar eiga von á
mjög þægilegri og skemmtilegri viku. Þeir. sem
KTjB úins vegar eru fæddir í febrúar mega búast. við
að fyrir þá verði lagðar nokkrar giidrur. Þetta er
vika mikilla freistinga fyrir ungt fólk, en yfirleitt virðist þú
maður til þess að standast Þær.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þér verður oft-
ar en einu sinni komið þægilega á óvart í vikunni,
liklega fyrir helgina. Það verður a. m. k. einu
sinni að verki persóna, sem þér var eitt sinn ekk-
ert vel við, en nú mun þessi persóna sýna bér. að
þú hefur vanmetið hana. Þér sárnar eitthvað i fari kunn-
ingja Þins, en engu að síður skaltu ekki láta hann finna það.
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudngs.