Vikan - 28.06.1962, Blaðsíða 20
Olafur Thors í aldarspegli
Leikarinn í hópi stjórnmálamanna;
jafnvígur á báða höfuðþættina, kóm-
edíuna og harmleikinn.
Það er mælt, að Ágústus, keis-
ari Rómverja, hafi kvatt heim-
inn með þessum orðum: „Klapp-
ið nú, leikurinn er á enda. Hef
ég elcki leikið vel?“
Þegar Ólafur Thors hverfur
héðan úr þessum heimi — hvað
guð láti úr hömlu dragast! —
má hann með fullum rétti táka
sér i munn andlátsorð hins
fyrsta keisara Rómar. Hver sem
verður dómur sögunnar um Ól-
af Thors, þá verður það aldrei
af honum skafið, að hann var
leikari meiri en aðrir samtiðar-
menn lians i flokki stjórnmála-
manna. Raunar eru allir stjórn-
málamenn leikarar að meira eða
minna leyti, þeir leika bara mis-
jafnlega vel. En Ólafur Thors er
án alls vafa tilkomumesta príma-
donnan í þjóðleikhúsi islenzkra
stjórnmála. Hann er jafnvigur
á báða höfuðþætti sjónleika,
gamanleikinn og sorgarleikinn,
hið kómiska og hið tragíska.
Hann getur sprellað eins og
gázkafyllsta can-can-stelpa, og í
næsta andartaki er hann álvar-
legur eins og persóna i grískum
harmleik.
En meðál annarra orða:
ÞJÓÐLEIKHÚS. Það eru nú
mörg ár síðan þessi saga gerð-
Baldinn unglingur, latur í skóla,
heimspekipróf frá Kaupmannahöfn
og liðlega þrítugur í framboði fyrir
íhaldsflokkinn.
ist. (Innan sviga skal það tekið
fram, að sagan er sönn, en elcki
verður tekin ábyrgð á ÖLLUM
þeim sögum, sem sagðar verða
um Ólaf Thors i þessum áldar-
spegli, því að hann er þegar orð-
inn þjóðsagnapersóna i lifanda
lífi.) Alþingiskosningar stóðu
fyrir dyrum og Ólafur Thors
var sem áður og æ siðan fram-
bjóðandi Sjálfstæðisflokksins í
sýslunni sinni, Gullbringu- og
Kjósarsýslu. Meðál andstœðinga
hans var i framboði Þórarinn
Þórarinsson Tímariistjóri, að
sjálfsögðu fyrir Framsóknar-
flokkinn. Framsókn var i stjórn-
arandstöðu um þetta leyti, enda
grimm i skapi eins og jafnan
þegar svo stendur á. Þess skál
getið, að á þeim dögum var sem
óðast verið að vinna að innrétt-
ingu Þjóðleikhússins við Hverf-
isgötu, og gekk mikið á. Ólafur
Thors var kálur og reifur á
framboðsfundinum og lék öll
sin hlutverk af mestu prýði og
frábærri leikni. Þegar honum
var brugðið um það, að liann
Flóðmælskur, orðheppinn, skjótur í
tilsvörum, ósvífinn, harður í sókn og
tileinkaði sér snemma nýtízku áróð-
ursbrögð.
léti aldrei sjá sig í sýslunni mitti
þinga og kæmi áldrei á fund
kjósenda sinna nema til að fála
af þeim atkvæði, þá svaraði
hann með miklum álvöruþunga,
að hann væri önnum kafinn við
störf fyrir þjóðarheildina, og
létu innansveitarmenn sér það
vél líka. En Þórarinn Þórarins-
son var í úfnum ham og fannst
honum sem állt hefði farið úr
böndunum meðan Framsókn
var í útlegðinni. Þó táldi hann
líklegt, að Framsókn kæmist
bráðlega til válda og mundi þá
kippa öllu i liðinn aftur. Yrði
þá að sjálfsögðu að útvega Ólafi
Thors einhverja atvinnu og
mundi Framsókn veita honum
það embælti sem honum hent-
aði bezt: liún mundi gera Ólaf
Thors að ÞJÓÐLEIKHÚS-
STJÓRA. (Þetta er nú eitt af
þeim kosningáloforðum Fram-
Andstaða gegn Kveldúlfi. Varnar-
ræðan mikla. Stórsigur Samstaða
við Jónas og Framsókn. Laus við
pólitískt ofstæki.
sóknar, sem hún hefur áldrei
efnt.) Svo mikið fannst Þórarni
um leikræna hæfileika Ólafs
Thors. Timaritstjórinn endurtók
atvinnuloforðið nokkrum sinn-
um á framboðsfundum, og lét
Ólafur kyrrt liggja. En á einum
fundinum virtist honum leiðast
þóf þetta, og þegar Þórarinn
Þórarinsson hafði sleppt orðinu
greip Ólafur fram i ræðu hans
og sagði: OG ÞÁ LÆT ÉG ÞIG
LEIKA GRASA-GUDDU! Allir
fundarmenn veltust um af hlátri,
því það duldist engum, að vel
væri válið í hlulverkið og lcjós-
endur þóltust skilja, að þing-
maður Gullbringu- og Kjósar-
sýslu mundi verða liinn lagtæk-
asti þjóðleikhússstjóri. En eftir
þennan fund var áldrei oftar
á það minnzt að gera Ólaf Tliors
að framámanni í íslenzku leik-
listarlifi.
Þessi maður, sem á þannig
enn þjóðleiklvússtjórastarf inni
hjá Framsókn, heitir fullu nafni
Ólafur Tryggvason Thors, i höf-
uðið á þeim konungi Norð-
manna, er féll ungur hjá Svold-
ur, og hafði vitjað nafns, en for-
sætisráðherra vor vill ekki heita
þvi nafni og kennir sig við föð-
ur sinn, Tlior Jensen. Faðir hans
var danskur, kom ungur til Is-
lands verzlunarþjónn í Borgar-
nes, en gerðist siðan sjálfur
kaupmaður, stórútgerðarmaður
og að lokum stórbóndi á Korp-
úlfsstöðum, og stofnaði eitt um-
svifamesta útgerðarfyrirtæki
landsins, Kveldúlf, sem síðar
varð einkaeign Thorsbræðra.
Ólafur Thors er fæddur i
Borgarnesi árið 1892, fluttist tíl
Hafnarfjarðar með foreldrum
20 VIKAN
I