Vikan - 28.06.1962, Side 22
120 þúsund kr.
verðlaun í boði
VOLKSWAG’EN
fólksbifreið — 5 manna
Af hverju skyldi verð á fimni ára RÖmlum Volk»-
wagen vera miklu hærra tiltöiulega en á nokkr-
um öðrum bíl? Einfaldlega vegna þess, að menn
hafa komizt að raun um þá staðreynd, að Volks-
wagen endist vel, hentar íslenzkum staðhátturw
frábærlega vel og maður sem á fimm ára Volks-
wagen er miklu betur settur en með flestar
aðrar bílategundir. Svo það er einfaldur hlutur,.
að Volkswagen fellur lítið í verði þótt árin líði.
Slíkur bíll er í boði í þessari getraun. Jafnvel
eftir fimm ár, getur hinn heppni að öllu ó-
breyttu selt hann við ágætu verði.
: :
.
lllpi
■ •-•.■■■■;
Ótrúlega rúmgóður bíll--------------
Guðjón Eyjólfsson, endurskoðandi, er einn þeirra hamingju-
sömu manna, sem eiga nýjan Volkswagen. Eins og þið sjáið á
mýndinni, er Guðjón með stærstu mönnum, nánar tiltekið 190
cm. Hann’segist geta látið fara mjög vel um sig í Fólksvagninum
sinum, fótarými sé mjög gott og ákjósanlega hátt undir loft. —
„Þetta er kostur, sem vert er að minnast á og kemur sér vel
fyrir okkur, sem erum í hærra lagi, og það sem áður hefur
verið sagt um kosti bílsins hér í Vikunni, get ég algjörlega
tekið undir.“
VERÐLAUNA-
GETRAUN
VIKUNNAR