Vikan - 16.08.1962, Side 3
WtiimSiSSSit
m
:'■:■ ■ ;
Vhpií;:
Þrautreynt í stormum og byljum uppi í Himalayafjöllum — og þótt hann geti
hvesst glettilega inni á ísienzku öræfunum, er hann varla hvassari en þar.
Auk þess er það svo fyrirferðarlítið, samanvafið, að furðu gegnir.
VIKAN
;
Bakpokar og tjöld.
Þótt geimflaugar og gervihnettir
tákni vafalitið hámark tækniþróun-
arinnar, nýtur allur almenningur lít-
illa gæða af þeim tækjum, enn sem
komið er, og sízt hér á landi. Ann-
að er hvað verSur — þegar við för-
um að selja Marzbúum fiskinn og
ungu hjónin skreppa til Venusar í
brúðkaupsferð. Enginn getur þó neit-
að því, að hin tæknilega þróun, sem
sífellt er verið að stagast á og deila
um hvort leiða muni til æðra sælu-
iífs eða Ragnaraka, hefur haft enda-
skipti á flestu í hversdagslífi okk-
ar, ekki síður hér en annars staðar,
og það svo rækilega, að við munum
nú geta talið á fingrum okkar þau
áhöld og tæki, sem eru söm eða
sams konar og við notuðum fyrir
þrjátíu—fjörutíu árum. Hnífar,
skeiðar og gafflar — að vísu er lagið
líkt, en efnið annað og betra en áð-
ur tíðkaðist... .jú, mataráhöldin
hafa litið breytzt, en þar með mun
lika svo til allt ppptalið. Og yfir-
leitt hafa allar þær breytingar orðið
Og loks þetta — enginn reyndur ferðamaður hefur dósamat með-
ferðis framar, heldur þurrkuð matvæli í plastpokum. Dósamatur-
inn til vinstri á myndinni vegur um átta kíló, sama fæðumagn til
hægri aðeins 750 gr.
til bóta, að minnsta kosti mundu
fáir vilja skipta aftur — taka gömlu
áhöldin upp aftur og þá lifnaðar-
háttu, sem þeim fylgdu.
Og þó við munum séint gerast
geimskipasmiðir, verður ekki annað
sagt en við höfum lagt gjörva hönd
á furðu margt i sambandi við þessa
en vafalaust réttmæta ádrepu, frá
einum af okkar kunnustu óbyggða-
ferðalöngum, dr. Sigurði Þórarins-
syni, fyrir óviðunandi lélega fram-
leiðslu á tjöldum og bakpokum.
Þarna er um að ræða afleitt og jafn-
vel hættulegt hirðuleysi af hálfu við-
komandi iðnaðarmanna, því að
margur getur átt lif sitt og heilsu
undir því, að tjaldið dugi honum
vel, hreppi hann illviðri á öræfum
eða uppi í fjöllum. Einnig er það
ákaflega mikils virði fyrir göngu-
Framhald á bls. 24.
Bakpoki úr nælonefni á alúmín-
burðargrind — hvílir þannig á öxl- „Everest“-burðargrind úr alúmíni,
um og baki að maður getur gengið fislétt og fer einkar vel á baki. Um
uppréttur. leið er grindin svo tjaldstóll.
tæknilegu þróun — »ða öllu heldur
byltingu. íslenzkir iðnaðarmenn
vinna nú úr nælon og plasti, smíða
áhöld og tæki í samræmi við stil og
tízku, og tekst yfirleitt sæmilega.
Samt er eins og þeir fylgist ekki með
sem skyldi á sumum sviðum. Fyrir
nokkru fengu þeir til dæmis harða,
Svefnpokar, „stoppaðir“ með gæsa-
dún, þykja mun hlýrri, léttari og í
alla staði fullkomnari, en þeir, sem
„stoppaðir“ eru með einhverju
gerviefni, auk þess sem þeir eru
fyrirferðarminni í farangri.
Sól og sumar, ilmur úr jörðu í Heiðmörkinni, gráir
hraungrýtishólar með marglitum mosa, djúpir vall-
grónir bollar og slútandi bjarkir. í einni af hinum
fjölmörgu og fallegu lautum í Heiðmörk hafa þær Theódóra Þórðardóttir
(nær á myndinni) og Ingibjörg Edda Edmundsdóttir, tjaldað fyrir Vikuna.
Theódóra vinnur í snyrtivörudeild Regnbogans, stundar nám í Verzlunar-
skólanum og var reyndar kosin þar fegurðardrottning eins og að líkum
lætur. Ingibjörg er á vegum Ragnars í Smára, vinnur hjá bókaútgáfunni
Helgafell. Þær eru báðar 17 ára.
Belgjagerðin í Bolholti 6 var svo elskuleg að leggja til allan viðleguút-
búnað, þetta ágæta fjögurra manna tjald, gult að lit og með nælonbotni.
Svefnpokarnir eru líka frá Belgjagerðinni og kosta kr. 500. Tjaldið kostar
ca 1200. Og svo er það síðast en ekki sízt bíllinn, Consul'312, sem Sveinn
Egilsson h.f. lánaði til fararinnar, en það fyrirtæki hefur sem kunnugt er
umboð fyrir Ford. Ford Consul 315 hefur raunar verið kynntur í Vikunni,
var t. d. útnefndur „bíll ársins“ af þekktu bílablaði í Kanada, hefur reynzt
ágætlega við íslenzkar aðstæður og kostar frá 152 þúsund krónum.
í næsta blaði verður m. a.:
• Hárið er kóróna mannsins. Vikan ræðir við Jón Geir hár-
skera um klippingu kvenna og karla og þær hárgreiðslur,
sem nú eru mest í tízku, t. d. það að láta raka fangamark
sitt í hvirfilinn.
• Ræningjar í Róm. — Skemmtileg grein um ítalska blaða-
ljósmyndara, sem hafa það fyrir atvinnu að eltast við frægt
fólk í borginni eilífu og selja blöðunum hneykslismyndir
fyrir of fjár.
• Það er list að kunna að snúa sér við. — Vikan ræðir við
frú Andreu Oddsdóttur, sem hefur nýlega stofnað tízkuskóla
fyrir stúlkur.
• Bílaprófun F.Í.B. og Vikunnar: Ford Taunus 17 M.
• Ný framhaldssaga, sem birzt hefur í fjölmörgum stórblöðum
um allan heim og vakið hefur mikla athygli hvarvetna. Hún
heitir: Á eyðihjarni.
• Auk þess: Tvær smásögur, sniðaþjónustan, tækniþáttur,
pósturinn, myndasögur, músíkþáttur Svavars Gests, unglinga-
þáttur Jóns Pálssonar og síðast en ekki sízt: Getraunin. Sex
glæsilegir vinningar, samtals að verðmæti ca 45.000,00.
VIKAN 3