Vikan


Vikan - 16.08.1962, Qupperneq 19

Vikan - 16.08.1962, Qupperneq 19
í næsta blaði hefst ný framhaldssaga, „Á eyðihjami “ eftir Laurence Earl. Þrír menn, sem umsjón hafa haft með námuvinnslu nyrzt á ströndum Kanada sumarlangt, halda af stað heimleiðis um haust- ið með lítilli Norseman-flugvél. f för með þeim slæst ung stúlka, dóttir hjóna, sem í hartnær tvo áratugi hafa starfað þar að trú- boði meðal Eskimóanna. Dahl, jarðfræðingur námafélagsins og einn þeirra þremenninga, ungur maður og mikill vexti, er mjög drukkinn þegar lagt er af stað — eins og endranær. Þeir hinir tveir eru Greatorex, yfirmaður námunnar, maður við aldur, og Prowse verkfræðingur. Tveggja manna áhöfn er á vélinni. Þetta er í september 1953, en að haustlagi er allra veðra von á þessum slóðum. Svo fer, að flugvélin verður að nauðlenda inni á auðn- unum í frosti og hríð .... og sagan hefst. myndi aldrei hafa trúað því sjálfur, að mér tækist þetta, Lilian. Það var sem hún kipptist við, og þegar hún sneri sér að honum, spruttu henni dumbrauðir flekkir á fölum vöngum. Hann greip um hönd henni og þrýsti hana. — Þú ert sterkari en ég hélt, sagði hún lágt og næstum því ógnandi. Mér hefur aldrei komið til hugar, að þú værir svona sterkur .... Hann sleppti hönd hennar i skyndi og sneri sér að Patrik gamla. — Akið henni heim og sjáið svo um, að hún fari tafarlaust í rúmið. En lát- ið hana ekki vera eina. Ég skal sjá um, að henni verði gefið eitthvað ró- andi. Hún þarfnast fyrst og fremst að sofa rólega. Látið mig samt tafar- laust vita, ef eitthvað skyldi koma fyr- ir. Kannske væri það annars hyggileg- ast að hún yrði hér um kyrrt .... —- Já, það er nú það, svaraði Pat- rik gamli hikandi. — Ég fer heim, sagði Lilian. Og rödd hennar bar því vitni, að hún mundi hafa mótmæli að engu. Hans Bertilsen kinkaði kolli. — Það er bezt að láta hana sjálf- ráða. Níu dagar voru liðnir síðan slysið vildi til, en fyrir Lilian voru það níu löng ár. Enn fannst henni sem hún reikaði í einhverjum óraunverulegum draumaheimi, haldin þungri martröð. Fyrstu dagana hafði hún ekki farið neitt á fætur, legið i rekkju, mátt- vana og hugstola, og Það eina, sem hún greindi var tómleikinn. Patrik færndi gekk um úti i garð- inum, eins og hann var vanur. En annars hugar var hann, sem meðal annars mátti af því marka, að hann veitti því ekki neina athygli Þótt steindautt væri í vindlinum. Fyrstu dagana eftir slysið og aðgerðina átti hann ekki neina eirð i sér; þetta var meira álag en han þoldi, gamli mað- urinn. Hann fékk varla ráðið sér fyr- ir reiði, þegar hann hugleiddi, hve mjótt hafði verið þarna á mununum, að Einar væri allur, og enn meira reiddist hann, þegar honum varð hugs- að til þess. Nei, hann varð að reyna eftir megni að taka þessu öllu með ró og halda vöku sinni. Fyrst og fremst verð ég að taka tillit til Einars, hugsaði hann. Ég verð að taka þetta mál í mínar eigin hendur. Nú hafði ýmislegt, sem hann hafði veitt athygli áður, en ekki skilið, skýrzt fullkomlega. Loksins. Nú þurfti hann ekki annað en að leggja saman tvo og tvo. Til dæmis þetta, hvernig Lilian hafði hagað sér í sjúkrahúsinu og fyrst í stað eftir á .... hvernig hún hafði legið í rekkju sinni eins og sljó, nærðist jafnvel ekki nema hún væri neydd til þess með valdi. Eða þá, hvernig hún hafði brugðist við því, þegar hann þving- aði hana til að koma með sér og heim- sækja E'inar. Þá hafði hann ekki verið búinn að komast að ýmsu því, sem hann vissi nú, og eiginlega sá hann eftir því að hafa þvingað hana til þess. Kannske átti hann að ráð- færa sig við Hans Bertilsen? Nei, hann gat ekki með neinu móti trúað nokkrum lifandi manni fyrir því, sem hann hafði orðið áskynja. En hví i ósköpunum hafði betta brjálæði gripið manneskjuna? Og ekki einungis Það, — heldur og hvern- ig hún hafði yfirleitt hagað sér að undanförnu. Kannske var það þó ein- kennilegast af öllu, hve þau höfðu verið blind og graunlaus, öll hin — að honum sjálfum og Einari sízt und- anskildum. Maður gat reiðzt þvi, sem minna var. Engu að síður var það til- gangslaust að láta það hrinda sér úr jafnvægi. Bezt fyrir alla, að gengið væri hreint til verks og gerðar upp sakir I eitt skipti fyrir öll. Gamli maðurinn gekk inn og knúði dyra hjá Lilian. Hún svaraði ekki, en hann lét Það ekki á sig fá og gekk inn. Hún lá í rekkju, klædd rósótt- um morgunslopp, sneri sér til veggj- ar og hreyfði sig ekki þótt hann lok- aði dyrunum allharkalega og hóstaði síðan nokkrum sinnum þar að auki. Það var ekki fyrr en hann nam stað- ar við rekkjustokkinn að hún leit fram. Hún hafði megrazt furðulega þessa daga, hafði ekki greitt sér eða snyrt sig sómasamlega, og þrátt fyrir allt gat gamli maðurinn ekki gert að því, að hann vorkenndi henni. Hann dró stól að rekkjustokknum og tók sér sæti. Hún sagði ekki orð, horfði að vísu á hann, en þó eins og hún sæi hann ekki. —■ Einar kemur heim í dag, tók gamli maðurinn til máls. Hann var að hringja rétt i þessu. Þá var sem líf færðist í steinrunnið andlit hennar. Hann sá, að hún reyndi að sigrast á skyndilegum ótta. — Er hann þá orðinn frískur? spurði hún áherzlulaust. — Það má kalla, en vitanlega verð- ur hann að fara mjög gætilega með sig fyrst i stað, svaraði gamli maður- inn og virti hana náið fyrir sér. Hún þorði ekki að mæta augum hans. — Því miður er það ýmislegt, sem ég þarf að ræða við þig, áður en hann kemur, sagði Patrik gamli enn. Mál, sem við megum ekki íþyngja Einari með. Hann þarf að njóta fullkomins næðis og hvíldar. Ég sæki hann sjálf- ur í dag .... og ég ætla að biðja þig að taka gætilega .... ég á við, að þú sýnir honum þá tillitssemi, sem þér er unnt, eftir það, sem á undan er gengið. —■ Hvað áttu við með tillitssemi? — Ég hélt að þú skildir fullvel hvað ég á við, svo ég þyrfti ekki að kveða fastar að orði. Ég vil að þú takir vingjarnlega á móti honum, án allra skapöfga. Bezt væri að þú héldir þig hérna uppi, en hann niðri, þar sem hann þolir ekki að ganga upp stiga .... ég á við, að þið hittizt alis ekki yfirleitt, enda hef ég búið hann und- ir það, með þvi að segja honum, að þú hafir ekki enn jafnað þig á taug- um eftir slysið .... Hann gerði nokkra málhvild, veitti því athygli, að henni brá, þegar hún heyrði að hann lagði sérstaka áherzlu á orðið „slys- ið“. Og svo ættum við að skreppa til borgarinnar á morgun, til lögfræðings, sem þú getur falið að annast skilnað- inn. Hún settist upp við dogg. — Hvað áttu eiginlega við? Við höfum alls ekki minnzt á skilnað, Ein- ar og ég. Samkomulag okkar er gott, enda þótt þær manneskjur fyrirfinn- ist, sem hafa löngun til að spilla því. Og ekki hefur þú neina ástæðu til að vera að blanda þér í einkamál okk- ar. — Ég geri það nú samt. Það er hreinasti óþarfi fyrir okkur að vera að rökræða það. Ég geng því aðeins í þetta sjálfur, að ég vil hlifa Ein- ari, og mun nóg samt. Þú hefur mörgu illu komið til leiðar, Lilian, hvort sem þér er það sjálfrátt eða ekki, og mun nú mál að linni. Vegna Einars og Súsönnu litlu má þetta ekki fyrir nokkurn mun komast í hámæli. Þú átt mér það fyrst og fremst að þakka, að almenningur mun telja það slys eitt að bíll Einars fór út af veginum .... Hún hvessti á hann augun, og það var sem eldur brynni úr þeim. — Hvað er það, sem þú dirfist að drótta að mér? hvæsti hún. Sakarðu mig kannski um glæp? — Lilian .... við erum ekki nein- ir fávitar, þótt kannske sé auðvelt að blekkja okkur — að vissu marki. Það vita margir, hvað Þér og Gustav Lange liðsforingja hefur farið á milli. þótt Einar hafi ekki hugmynd um það enn, sem betur fer. Þú hefur haldið kænlega á spilunum .... allt þangað til á Jónsmessuhátíðinni, því að þá spilaðir þú af þér og siðan hefur verið auðvelt að sjá í gegnum þessar spila- brellur þínar .... — Einmitt Það, já .... Nú fer ég að skilja. Ætli hún hafi ekki verið þarna að verki, eins og víðar, eitur- slangan, sem skriðið hefur inn á heim- ili mitt og öliu spillt. Hún er stað- Framhald á bls. 38. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.