Vikan


Vikan - 16.08.1962, Side 20

Vikan - 16.08.1962, Side 20
 8111, Ww&iHiin, wmmm ytftétft) : 'iW'.j.* vk ■•'•# Bezti vinur hans átti pabba, sera ástæða var til að vera hreykinn af - ríkan, í góðri stöðu, og sem þar að auki stóð með syni sínum í blíðu og stríðu. En aftur á móti pabbi hans sjálfs .... Það var sök sér þótt hann væri fátækur og fáfróð- ur, en að hann skyldi aldrei taka hans málstað .... SVIKARINN SMÁSAGA. Bud stóð í steypibaðinu og lét vatnið fossa niður eftir bakinu. Hann óskaði þess, að hann hefði steypibað heima, en ekki bara baðker í litlu, þröngu baðherbergi — smábaðker, sem gat gengið fyrir litla náunga eins og pabba, en ekki fyrir þá, sem voru meira en hundrað og áttatiu á hæð. — Ætlarðu að hanga þarna í allan dag, Bud? Hann skrúfaði fyrir vatnið, hristi vætuna úr svörlu hárinu og gekk að skápnum sínum. Don hafði lokið við að klæða sig og sat nú á bekknum með sígarettu í munnvikinu. Don þurfti ekki að hugsa um neinar reglur. Hvaða annar strákur, sem reykti hér inni, mundi verða rekin úr körfuboltaliðinu, en ekki Don. Pabbi hans var það mikill stórlax, að enginn í bænum vogaði sér að gera Don neitt. Bud flýtti sér í skyrtuna og buxurnar, smeygði sér í jakkann og stakk fótunum í úttraðkaða skóna. — Allt í lagi — þá förum við, sagði hann. Don kastaði sígarettunni á gólfið, og þeir gengu saman upp tröpp- urnar. Úti á skólalóðinni mættu þeir fyrirliða körfuboltaiiðsins. — Reynið að vakna, báðir tveir, hreytti hann út úr sér. Þeir, sem ekki nenna að leggja neitt á sig í mínu liði, geta alveg eins hypjað sig í burtu. Don muldraði eitthvað í hljóði, en þegar þeir voru komnir út á götu sagði hann: — Bíddu bara þangað til ég hef sagt pabba frá þessum náunga. Það líður ekki á löngu þar til við fáum nýjan fyrirliða. Bud svaraði ekki. Það var að minnsta kosti öruggt, að það þýddi ekki fyrir hann að segja sínum pabba frá þessu. Hann mundi ekki einu sinni skilja, hvað hann væri væri að fara. — Annars er mér alveg sama, sagði Don. Ég er að minnsta kosti hundleiður á þessu. Ekkert nema æfingar og aflur æfingar svo bogar af manni svitinn og ekkert til að skemmta sér við. Frarahald á bls. 34. 20 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.