Vikan - 16.08.1962, Síða 23
Allir þekkja herradeild P & 0 i Austurstrœti 14, og
vandlátir karlmenn verzla hvergi nema þar. P & Ó
hafa allt það á boSstólum, er tilheyrir klæðnaði karla,
yzt sem innst.
Einn vinningurinn í verðlaunagetraun Vikunnar er
cinmitt frá P & Ó! Hattur, hanzlcar og regnhlíf. Allt
er þetta í samræmi við nýjustu tízlui og fullnægir
kröfum hinna vandfýsnustu.
P & Ó er trygging fyrir góðum vörum. P & Ó er ein
þekktasta herrabúð Reykjavíkur.
Einn veglegasti vinningur verðlaunagetraunarinnar
eru óvenju smekklegir skrautmunir frá Skarti h.f.,
hnappasett og bindisnæla úr silfri fyrir karlmann, og
kvengullhringur með verðmætum steini, sem nú er
mjög i tízku og er breytilegur að lit, blár, grænn eða
rauður eftir því í hvers konar ljósi hann er skoðaður.
Þeir, sem verða svo heppnir að hljóta þessa fögru
muni, geta vissulega borið höfuðið hátt, þvi að allir
eru stoltir af því að bera skartgripi frá Skarti li.f.
Enn einn vinningurinn í verðlaunagetrauninni
er fyrsta flokks kvöldverður og hvers konar veit-
ingar handa tveimur í hinum alþekkta og marg-
lofaða skemmtistað, Klúbbnum við Lækjarteig.
Iílúbburinn 'er mjög vinsæll skemmtistaður, og
enginn mun sjá eftir að hafa eytt þar einni kvöld-
stund. Auk afbragðsveitinga og frábærrar þjón-
ustu, býður Klúbburinn upp á tvær hljómsveitir
og þekkta söngvara með þeim báðum.
22 VIKAN
Husqvama saumavél
Húsmæður til sjávar og sveita þekkja Husqvarna saumavélarn-
ar að öllu góðu, og naumast er ástæða til að fara mörgum orðum
um hin miklu; og margvíslegu gæði þeirra. Hins vegar er óhætt
að fullyrða, að fátt mun það, er saumaskap við kemur, sem IIus-
qvarna vélin leysir ekki fijótt og vel af hendi. Husqvarna sauma-
vélin er bæði sterk og endingargóð og hentar liverri húsmóður.
Þriðji vinningurinn í verðlaunakeppni Vikunnar er vönduð
Ilusqvarna saumavél. Er hún með innbyggðri hraðaskiptingu, sem
er mikil nýjung, og margt annað má telja henni lil ágætis. Hent-
ug taska með geymsluhólfum fylgir vélinni fyrir liina mörgu fylgi-
hluti hennar.
Hver sú húsmóðir, sem notar Husqvarna saumavél, unir vel við
sinn hlut. Husqvarna saumavélin hefur heldur engan svikið, og
Ijúka allir upp einum rómi um alveg sérstaka hæfni liennar.
Gunnar Ásgeirsson h.f. hefur einkaumboð fyrir Husqvarna hér
á landi og veitir hann allar frekari upplýsingar, ef einhver kann
að æskja þess.
Öskjuhlíð — Kerlingafjöil — Vatnajökull — Esja — Keilir.
Það er á því litill vafi, að þetta fjall liafa flestir séð, bæði þeir sem búa hér á landi — og þá ekki sízt Reykvík-
ingar — og svo þeir, sem til landsins koma.' Flestum finnst fjallið fallegt, og fá heimþrá strax og það hverfur
sýnum cn aðrir hafa uppnefnt það fjóshaug og öðrum slíkum miður glæsilegum nöfnum. Þeir, sem búa nálægt
fjallinu, en þeir cru mjög márgir, kunna slíkum uppnefninguin illa, en vilja umfram allt að það sé nefnt sínu
rétta nafni, sem þið eigið að vita.
Þeir eru margir, sem hafa gengið á þetta fjall og raunar er ekki langt siðan að þangað var ekið á jeppa alla
leið upp á topp. Líklega er þetta einasta fjall íslands, þar sem gull hefur fundizt í jörðu, en ekki hefur þótt borga
sig að vinna það, vegna þess að magnið er syo lítið.
Klippið hér------
GETRAUNARSEÐILL NR. 5.
FJALLIÐ HEITIR: .........
t. NAFN ..
KU
■U
» HEIMILI
g SÍMI
VIKAN 23
Sá, sem verður svo heppinn að hljóta önnur verðlaun í keppninni, á í vændum ferð til margra framandi landa. Verður fyrst farið frá
Reykjavík með skipi frá Eimskipafélagi íslands til hinnar mjög svo sérkennilegu og fögru borgar, Rotterdam í Hollandi. Síðan gefst
vinningshafa kostur á að bregða sér yfir til Englands með liinu kunna lystiskipi Arkadíu, en það er einmitt farkosturinn, sem við sjá-
um hér á myndinni. Frá Lundúnum ekur hinn hamingjusami með nýtizku langferðabifreið norður eftir öllu Englandi til Edinborgar í
Skotlandi. Er það ferðaskrifstofan Sunna, sem annast sjóferðina með Arkadíu og ökuferöina í Englandi, og ætti það sannarlega að vera
trygging fyrir fyrsta flokks fyrirgreiðslu. Ökuferðin tekur tvo daga, og verður komið við á ýmsum merkisstöðum og það slcoðað, er
helzt má verða til gagns og gamans. Er ekki að efa, að sú för verður bæði ánægjuleg og eftirminnileg, því að fá lönd heims eru eins
rík að sögulegum minjum og öðru athyglisverðu og gamla, góða England. í Edinborg verður fegursta fley hins íslenzka flota, Gullfoss,
til taks og flytur vinningshafa á fyrsta farrými til Reykjavikur. Ferð með Gullfossi hefur löngum þótt góður munaður, og mun liún
býsna vel fallin til að binda endahnútinn á þessa ævintýralegu för. Framliald á bls. 42.
SJONVARPSTÆKI
Fyrsti og verðmætasti ýinningurinn í verðlaunagetraun Vikunnar að þessu
sinni er frábærlega vandað sjónvarpstæki af PHILCO-gerð frá O. Johnson &
Kaaber. Verð þess er kr. 18.000 í útsölu.
Þess mun áreiðanlega skammt að bíða, að stofnsett verði íslenzk sjónvarps-
stöð og er því kominn tími til, að menn tryggi sér góð tæki. Sá, sem PHILCO-
tækið hreppir slær þvi tvær flugur í einu höggi! Sparar sér álitlega upphæð og
hlýtur óvenjugott sjónvarpstæki, og er auk þess vel viðbúinn þeim merkisdegi,
er íslenzkt sjónvarp tekur til starfa.
Sjónvarpstækjum fjölgar nú óðum á íslenzkum heimilum og innan skamms
bætist enn eitt i hópinn. Er það hið girnilega PHICO-tæki, sem Vikan gefur les-
endum sinum tækifæri til að eignast.
PHILCO-sjónvarpstækin njóta alveg sérstakra vinsælda um heim allan, og mun
sú einnig verða raunin á íslandi. PHILCO-sjónvarpstækin eru við hæfi hinna
vandlátu, og valda engum vonbrigðum.
GETRAUNIN:
HVAÐ
HEITIR
FJALLIÐ?
VERÐLAUNAKEPPNIVIKUNNAR