Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 7
FÓSTUREYÐINGAR ERU EITT ÞEIRRA VANDAMÁLA, SEM VALDIÐ HAFA MIKLUM OG VÍÐTÆKUM
DEILUM UM ALLAN HEIM, EN LÖG UM ÞESSI MÁL ERU MJÖG MISMUNANDI í HINUM ÝMSU
LÖNDUM. LÍTIÐ HEFUR VERIÐ UM MÁLIÐ RÆTT OPINBERLEGA HÉR Á LANDI, EN VAFALAUST
ER FRÓÐLEGT FYRIR ALMENNING AÐ KYNNAST ÍSLENZKUM LÖGUM UM FRAMKVÆMD ÞEIRRA Á
ÞESSU VANDAMÁLI, OG ÖÐRUM MIKILSVERÐUM ATRIÐUM í SAMBANDI VIÐ FÓSTUREYÐINGAR.
G.K. REYNIR AÐ SKÝRA FRÁ ÞVÍ HELZTA I ÞESSARI GREIN.
íslenzk lög.
Þegar ég íór að afla mér upplýsinga um fóstur-
eyðingar, fannst mér í sannleika sagt að það yrði
lítill vandi að lýsa fyrir lesendum í tiltölulega
fáum orðum hvernig slík mál væru afgreidd
hér á landi, hvernig lögin væru og í hvaða til-
fellum undantekningar væru gerðar. En því
fleiri upplýsingar sem ég fékk, því meira sem
ég las og kynnti mér málið, því Ijósara v.arð
mér að ógerningur er að gera því sæmileg skil
í einni blaðagrein, og raunar heldur ekki þótt
meira væri skrifað. Það er svo ótrúlega margt,
sem grípur inn í, firnin öll af ástæðum fyrir því
að þetta er leyft eða bannað, skoðanir svo
margar og rökin bæði með og móti óumdeil-
anleg. En til þess að almenningur fái ein-
hverja hugmynd um hvernig þessum málum er
varið hér, skulum við reyna að gera okkur
grein fyrir helztu atriðunum.
Gildandi lög um fóstureyðingar voru sett á
Alþingi 1934 og gengu í gildi 28. jan. 1935.
Áður en þessi lög voru samþykkt, var dómur
viðkomandi læknis oftast látinn ráða, og var
honum þá mikið í sjálfsvald sett, hvenær hann
framkvæmdi fóstureyðingu. Lagafrumvarpið
mun að mestu eða öllu leyti hafa verið undir-
búið af þáverandi landlækni, Vilmundi Jóns-
syni, í samráði við Læknafélag Reykjavíkur.
Nokkrar umræður urðu um þetta á Alþingi,
og þá einna helzt um það atriði hvort læknar
skyldu skyldaðir til að láta öllum í té leið-
beiningar um getnaðarvarnir. Um aðalatriði lag-
anna, þ. e. skilyrði fyrir leyfi til fóstureyðinga,
var ekki ágreiningur.
Það væri of langt mál að rekja þessi lög hér
orði til orðs, en aðalinnihald laganna er í raun-
inni það, að ef konunni er hætta búin af með-
göngunni eða fæðingunni, þá er lækni heimilt
að framkvæma fóstureyðingu. Þ. e. a. s. að líf
og heilsa konunnar eru tekin fram yfir líf fóst-
ursins. Auk þessa er heimilt að taka nokkurt
tillit til félagslegra ástæðna konunnar jafn-
framt heilsufarslegum ástæðum. „Við mat á
því,“ segir í lögunum „hvert tjón er búið heilsu
þungaðrar konu af burðinum, má meðal annars
taka tillit til þess, ef konan hefur þegar alið
Xhalidomide, — lyfið sem vakti hrylling
um alian heim.
mörg börn með stuttu millibili, og er skammt
liðið frá síðasta barnsburði, svo og til þess ef
konan á við að búa mjög bágar heimilisástæð-
ur vegna ómegðar, fátæktar eða alvarlegs heilsu-
leysis á heimilinu."
Þá segir ennfremur: „Um fóstureyðingar...
gilda eftirfarandi reglur: 1. Þær mega ekki fara
fram nema á sjúkrahúsum og þeim einum
sjúkrahúsum, er ráðherra viðurkennir í því
skyni. (Fæðingardeild Landsspítalans, Sjúkra-
hús Akureyrar og ísafjarðar). 2. Áður en fóstur-
eyðing má fara fram, verður að liggja fyrir
skrifleg, rökstudd greinargerð tveggja lækna
um nauðsyn aðgerðarinnar, og sé annar þeirra
yfirlæknir sjúkrahússins, þar sem aðgerðin er
fyrirhuguð, en hinn að jafnaði sá læknir, sem
ráðlagt hefur konunni að leita sjúkrahússins
í þessum erindum ...“
I rauninni eru þetta aðalatriði laganna, sem
ráða því hvenær og af hvaða ástæðum fóstur-
eyðingar eru framkvæmdar. en síðan er eftir
að vita hvernig lögin eru túlkuð og hvenær
slík aðgerð getur talizt leyfileg samkvæmt þeim.
Aðgerðir skv. lögum.
í síðustu heilbrigðisskýrslum landlæknis ■—
fyrir árið 1957 — eru taldar upp 59 fóstur-
eyðingar sem hafa verið framkvæmdar sam-
kvæmt lögum á þessum fyrrtöldu sjúkrahúsum.
Af þeim eru 50 giftar konur. 16 konur voru
taldar í verka- eða sjómannastétt, 15 í stétt
iðnaðarmanna og 10 í stétt verzlunar- og skrif-
stofumanna. Af þessum 59 fóstureyðingum voru
12 framkvæmdar meðfram af félagslegum
ástæðum, og til að varpa dálitlu ljósi á þær
ástæður, er rétt að skýra hér frá tveimur til-
fellum að nokkru.
30 ára eiginkona iðnnema í Reykjavík hafði
fætt 10 börn á 12 árum og aldur barnanna
þegar aðgerðin var framkvæmd var 12, 11, 10,
9, 7, 6, 5, 4, 2 og V-i árs og voru öll í umsjá
konunnar.Hún var svo komin 7 vikur á leið.
íbúðin var 3 herbergi í ófullgerðu húsi í bragga-
hverfi. Fjárhagsástæður: 52 þús. kr. árstekjur.
Sjúkdómur: Þunglyndi og örþreyta (alger upp-
gjöf). Félagslegar ástæður: Ómegð og lélegt
húsnæði. Framhald á næstu síðu.
VIKAN 7