Vikan


Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 31

Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 31
II 4 'HUpnQp Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið: (21. marz—21. apríl); Þú ferð held- ur klaufalega aS í þessari viku, en liklega fer allt að blása byrlega undir helgi, og um helgina virðist lánið beinlínis ætla að leika við þér. Þú ert nokkuð svartsýnn á þína eigin framtíð, en til þess er vissulega' engin ástæða. Heillatala 10. Heilla- litur gulleitt eða bleikt. Nautsmerkið: (22. april—21. maí): Óþolinmæði þín verður til þess — þótt einkennilegt megi virðast, og ekki sé slíkt gott fordæmi — að þú getur notað þér tækifæri sem þér hefði aldrei boðizt, ef þú hefðir ekki verið svona óþolinmóð- ur. Þriðjudagurinn er dálitið óvenjulegur dagur hvað allt félagslíf snertir. Heillatala 7. Tvíburamerkið: (22. maí—21. júní): Þú færð verkefni upp i hendurnar, sem virðist heldur skemmtilegt fyrst í stað, en líklega verður þetta heldur leiðinlegt þegar fram í sækir, ef þú reynir ekki að útvega þér mann til þess að vinna að þessu með þér. Þú munt skemmta þér óvenjumikið í vik- unni. Laugardagurinn er vafasamur hvað ástir snertir. Krabbamerkið: (22. júní—23. júlí):Þú hefur verið eitthvað lasinn undanfarið, en nú virðist vera að rætast úr þessu. Það hvílir eitthvað á sam- vizku þinni þessa dagana, en þig skortir kjark til að ráðast í að ijúka þessu af. Þú skalt gera þetta fyrr en siðar. Sannleikurinn er sá, að þú ert búinn að sverta þetta um of í huga þér. LjónsmerkiO: (24. júlí—23. ágúst): Þér gefast ©margar góðar frístundir í vikunni. Yfirleitt verð- ur vikan róleg og notaleg. Þú munt dveljast mikið heima við, meira en undanfarnar vikur, og þar munntu einnig njóta lífsins bezt. Þú færð skemmtilegan gest í heimsókn eitt kvöldið, en trúðu ekki öllu, sem hann segir þér. Heillatala 13. Meyjarmerkið: (24. ágúst—23. sept.): Þú munt öðlast ómetanlega lifsreynslu í þessari viku og verður það til þess að þú ferð að líta ákveðið mál allt öðrum augum en þú hefur gert til þessa, og er gott til þess að vita. Þú munt verða fyrir einhverjum vonbrigðum út af einhverju, sem þú færð að- sent, þótt ekki virðist nein ástæða til, enda verður þú ánægður að lokum. L Vogarmerkið: 24. sept—23. okt.): Þú teflir á tvær hættur í vikunni, og virðist allt benda til þess að lánið verði með þér, en þetta skaltu samt ekki leika oftar, þvi að aldrei er að vita, hvenær iila fer. Þú hefur vanrækt nokkuð einn kunn- ingja þinn undanfarið, og skaltu bæta úr þvi hið snarasta. Helgin verður dálítið nýstárleg. Drekamerkið: (24. okt.—22. nóv.): Hætt er við að þér sinnist eitthvað við einn félaga þinn, enda virðist þú einkennilega uppstökkur þessa dagana. Sannleikurinn er sá, að í þetta sinn hefur þú algjörlega rangt fyrir þér, og væri þér hollast að viðurkenna það strax. Sunnudagurinn bíður upp á afar skemmtilegt ævintýri. Heillatala 2. Bogmcmnsmerkið: (23. nóv.—21. des.): Þessi mfff^ vika verður fremur tíðindalítil, en þú munt lifa ■f* jp rólegu lífi. Þó verður eitt kvöldið mjög ólíkt hin- um kvöldunum, og þá mun eitthvað gerast, sem kemur þér 1 uppnám. Þú skuldar einhverjum bréf, og skiptir það þig afar miklu að þú skrifir strax i vikunni. Talan 4 er dálítið varasöm. Geitarmerkið: (22. des.—20. jan.): Það gerist margt skemmtilegt í vikunni og munt þú verða til þess, að þið félagar þinir lendið í ýmsum spaugilegum ævintýrum. Þú hefur ekki sinnt einu hugðarefni þínu lengi, en riú verður eitthvað til þess, að áhugi þinn á því vaknar á ný. Þú skalt vanda allt, sem þú skrifar í vinnunni. Vatnsberamerkið: (21.jan.—19. febr.): Líklega verður þessi vika afar frábrugðin öllum vikum ársins. Það hvílir einhver óvissa yfir þessari viku og verður ekki fyllilega lesið úr stjörnunum hvað eiginlega er á seyði. Þú skalt sem sagt vera við öllu búinn. Margt bendir samt til, að útkoman verði í heild jákvæð. FiskamerlciÖ: (20. febr.—20. marz): Þú hefur beðið lengi eftir því að eitthvað gerðist, en i þess- ari viku gerist þetta loks, en þó veldur það þér einhverjum vonbrigðum, sem er næsta furðulegt því að þetta er nákvæmlega eins og þú hafðir gert ráð fyrir. Líklega ert þú orðinn of góðu vanur — dekur- barn. Helgin verður viðburðarík með afbrigðum. POND‘S snyrtivörur prýða hverja konu. Pond‘s snyrti- vörur eru ódýrar og góðar vörur, og fást í öllum snyrti- vöruverzlunum og lyfjabúð- um um allt land. Heildsölubirgðir: G. HELGASON í HEISTED H.[. Rauðarárstíg 1. — Sirui 116 44. VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.