Vikan - 29.11.1962, Qupperneq 31
II
4
'HUpnQp
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið: (21. marz—21. apríl); Þú ferð held-
ur klaufalega aS í þessari viku, en liklega fer allt
að blása byrlega undir helgi, og um helgina
virðist lánið beinlínis ætla að leika við þér. Þú
ert nokkuð svartsýnn á þína eigin framtíð, en
til þess er vissulega' engin ástæða. Heillatala 10. Heilla-
litur gulleitt eða bleikt.
Nautsmerkið: (22. april—21. maí): Óþolinmæði
þín verður til þess — þótt einkennilegt megi
virðast, og ekki sé slíkt gott fordæmi — að þú
getur notað þér tækifæri sem þér hefði aldrei
boðizt, ef þú hefðir ekki verið svona óþolinmóð-
ur. Þriðjudagurinn er dálitið óvenjulegur dagur hvað allt
félagslíf snertir. Heillatala 7.
Tvíburamerkið: (22. maí—21. júní): Þú færð
verkefni upp i hendurnar, sem virðist heldur
skemmtilegt fyrst í stað, en líklega verður þetta
heldur leiðinlegt þegar fram í sækir, ef þú reynir
ekki að útvega þér mann til þess að vinna að
þessu með þér. Þú munt skemmta þér óvenjumikið í vik-
unni. Laugardagurinn er vafasamur hvað ástir snertir.
Krabbamerkið: (22. júní—23. júlí):Þú hefur verið
eitthvað lasinn undanfarið, en nú virðist vera
að rætast úr þessu. Það hvílir eitthvað á sam-
vizku þinni þessa dagana, en þig skortir kjark
til að ráðast í að ijúka þessu af. Þú skalt gera
þetta fyrr en siðar. Sannleikurinn er sá, að þú ert búinn
að sverta þetta um of í huga þér.
LjónsmerkiO: (24. júlí—23. ágúst): Þér gefast
©margar góðar frístundir í vikunni. Yfirleitt verð-
ur vikan róleg og notaleg. Þú munt dveljast
mikið heima við, meira en undanfarnar vikur,
og þar munntu einnig njóta lífsins bezt. Þú færð
skemmtilegan gest í heimsókn eitt kvöldið, en trúðu ekki
öllu, sem hann segir þér. Heillatala 13.
Meyjarmerkið: (24. ágúst—23. sept.): Þú munt
öðlast ómetanlega lifsreynslu í þessari viku og
verður það til þess að þú ferð að líta ákveðið
mál allt öðrum augum en þú hefur gert til þessa,
og er gott til þess að vita. Þú munt verða fyrir
einhverjum vonbrigðum út af einhverju, sem þú færð að-
sent, þótt ekki virðist nein ástæða til, enda verður þú
ánægður að lokum.
L Vogarmerkið: 24. sept—23. okt.): Þú teflir á
tvær hættur í vikunni, og virðist allt benda til
þess að lánið verði með þér, en þetta skaltu samt
ekki leika oftar, þvi að aldrei er að vita, hvenær
iila fer. Þú hefur vanrækt nokkuð einn kunn-
ingja þinn undanfarið, og skaltu bæta úr þvi hið snarasta.
Helgin verður dálítið nýstárleg.
Drekamerkið: (24. okt.—22. nóv.): Hætt er við
að þér sinnist eitthvað við einn félaga þinn, enda
virðist þú einkennilega uppstökkur þessa dagana.
Sannleikurinn er sá, að í þetta sinn hefur þú
algjörlega rangt fyrir þér, og væri þér hollast að
viðurkenna það strax. Sunnudagurinn bíður upp á afar
skemmtilegt ævintýri. Heillatala 2.
Bogmcmnsmerkið: (23. nóv.—21. des.): Þessi
mfff^ vika verður fremur tíðindalítil, en þú munt lifa
■f* jp rólegu lífi. Þó verður eitt kvöldið mjög ólíkt hin-
um kvöldunum, og þá mun eitthvað gerast, sem
kemur þér 1 uppnám. Þú skuldar einhverjum bréf,
og skiptir það þig afar miklu að þú skrifir strax i vikunni.
Talan 4 er dálítið varasöm.
Geitarmerkið: (22. des.—20. jan.): Það gerist
margt skemmtilegt í vikunni og munt þú verða
til þess, að þið félagar þinir lendið í ýmsum
spaugilegum ævintýrum. Þú hefur ekki sinnt
einu hugðarefni þínu lengi, en riú verður eitthvað
til þess, að áhugi þinn á því vaknar á ný. Þú skalt vanda
allt, sem þú skrifar í vinnunni.
Vatnsberamerkið: (21.jan.—19. febr.): Líklega
verður þessi vika afar frábrugðin öllum vikum
ársins. Það hvílir einhver óvissa yfir þessari viku
og verður ekki fyllilega lesið úr stjörnunum hvað
eiginlega er á seyði. Þú skalt sem sagt vera við
öllu búinn. Margt bendir samt til, að útkoman verði í heild
jákvæð.
FiskamerlciÖ: (20. febr.—20. marz): Þú hefur
beðið lengi eftir því að eitthvað gerðist, en i þess-
ari viku gerist þetta loks, en þó veldur það þér
einhverjum vonbrigðum, sem er næsta furðulegt
því að þetta er nákvæmlega eins og þú hafðir
gert ráð fyrir. Líklega ert þú orðinn of góðu vanur — dekur-
barn. Helgin verður viðburðarík með afbrigðum.
POND‘S snyrtivörur prýða
hverja konu. Pond‘s snyrti-
vörur eru ódýrar og góðar
vörur, og fást í öllum snyrti-
vöruverzlunum og lyfjabúð-
um um allt land.
Heildsölubirgðir:
G. HELGASON í HEISTED H.[.
Rauðarárstíg 1. — Sirui 116 44.
VIKAN 31