Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 21
ÍSLENSINGAR í ÁSTRALÍU
Fyrir rúmu ári síðan birtist í Vikunni mynd
af fjórum íslendingum, sem lögðu land undii;
fót og hugðust freista gæfunnar í Ástralíu. Fyr-
ir skömmu fengum við bréf frá einum af fjór-
menningunum, Pálma V. Snorrasyni hljóðfæra-
leikara. í bréfi sínu segir Pálmi meðal annars:
„Af okkur fjórum er allt gott að frétta. Friðrik
Ingvarsson, trésmiður, hefur mest allan tím-
ann unnið við iðn sína, en síðustu fjóra mán-
uðina hefur hann verið á hákarlaveiðum. Þeir
Magnús Karlsson og Ásgeir Egilsson, vélvirkjar,
hafa unnið víða við sína iðn, o'g nú sem stend-
ur eru þeir að setja niður vélar í pappírsverk-
smiðju hér í Tasmaníu. Tasmanía er eyja suður
af meginlandinu og er eitt af fylkjum Ástralíu.
Hér er ákaflega fallegt, enda er eyjan einn
vinsælasti ferðamanna- og sumarleyfisstaður í
Ástralíu. Hér hef ég haldið kyrru fyrir síðan
ég kom til Ástralíu og líkar vel. Ég vinn á
hóteli í Burnie, sem er íerðamannabær í
Tasmaníu, og hef ég það mjög gott við hljóð-
færaleik og kennslu.
Við biðjum allir að heilsa heim til íslands
og gerum ráð fyrir að koma heim eftir eitt
til tvö ár, að minnsta kosti í sumarfrí ...“
Pálmi lét tvær blaðaúrklippur fylgja með í
bréfinu frá Tasmaníu. Þar hefur hann orðið
fyrir barðinu á blaðamönnum og ljósmyndur-
um. í viðtali við Pálma kemst blaðamaður svo
að orði: „Tónlistin hefur verið vegabréfið hans,
og hann hefur komizt að raun um, að hæfileik-
inn til að skemmta öðrum hefur rutt úr vegi
ýmsum erfiðleikum, sem venjulega mæta ó-
kunnum manni á erlendri grund ... Pálmi
er fjölhæfur tónlistarmaður og leikur af sömu
leikni á þrjú hljóðfæri, harmoniku, víbrafón
og básúnu ... Nú leikur hann reglulega í
Burnie, hefur komið fram í sjónvarpi og er
almennt viðurkenndur sem einn færasti
harmonikuleikari Tasmaníu. Hann hafði ekki
fyrr stigið fæti sínum á tasmaníska grund, en
einhver kom auga á farangur hans, og nokkr-
um klukkustundum síðar var hann farinn að
skemmta okkur — og þar með var björninn
unninn. Orðrómurinn um hinn unga íslending,
sem lært hafði list sína í hinni fjarlægu
Reykjavík, breiddist út eins og eldur í sinu,
og hann fékk atvinnutilboð hvaðanæva frá.
Pálmi talaði harla litla ensku, þegar hann
kom hingað, en komst fljótlega að raun um,
að tónlistin var ágætt hjálparmeðal til þess
að gera sig skiljanlegan. Með hennar aðstoð
eignaðist hann brátt marga vini, og hjá þeim
hefur hann á skömmum tíma náð furðumiklu
valdi á tungunni ...“
Við þökkum Pálma kærlega fyrir tilskrifin
um leið og við óskum honum og félögum hans
áframhaldandi velgengni í útlandinu. ★
Gamla myndin.
Þessi mynd var tekin fyrir þrettán árum og er af stórri hljómsveit, sem æfð var upp af
Kristjáni Kristjánssyni og lék síðan á hljómleikum í Austurbæjarbíói. ■— Fremri röð: Einar
B. Waage, altó-saxófónn (leikur á kontrabassa í Sinfóníuhljómsv.), Þórir Jónsson, baritón-
sax. (fæst ekki við hljóðfæraleik sem stendur), Adolf Theódórsson, tenór-saxófónn (fæst ekki
lengur við hljóðfæraleik), Gunnar Ormslev, tenórsax. (stjórnar eigin hljómsveit), Árni Elvar,
pianó (stjórnar nú eigin hljómsv. í Glaumbæ), Kristján Kristjánsson (fæst ekki lengur við
hljóðfæraleik). — Aftari röð: Þórarinn Óskarsson, trombón (leikur stöku sinnum með dans-
hljómsveitum, er annars í Sinfóníuhljómsveitinni), Björn R. Einarsson, trombón (stjórnar eig-
in hljómsveit), Guðmundur Vilbergsson, trompet (búsettur á Flateyri), Guðmundur R. Ein-
arsson, trommur (í hljómsveit BRE), Höskuldur Þórhallsson, trompet (fæst ekki lengur við
hljóðfæraleik), Ólafur Gaukur, gítar (leikur nú í hljómsv. H. Morthens í Klúbbnum), og Jón
Sigurðsson, bassi (útsetjarni fyrir hljómsveitir í Þórscafé og leikur í Sinfóníuhljómsveitinni).
—■ Tímarnir breytast og mennirnir með stendur einhvers staðar. Þegar þessi mynd var tekin
fyrir 13 árum voru ailir 13 á henni starfandi í danshljómsveitum, en nú eru aðeins tveir
þeirra í íöstu starfi við dansmúsík og aðrir fjórir leika dansmúsík með öðru starfi.
Nýjar hljómplötur.
Ricky Nelson: Teenage Idol og I‘ve got my
eyes on you. Fyrra lagið virðist vera samið sér-
staklega fyrir Ricky, því það líkist mjög fyrri
lögum hans að uppbyggingu. Textinn er hins
vegar nokkuð sérstæður, því hann er um
söngvara sem hefur hlotið frægð og ferðazt
borg úr borg og syngur, en hefur aldrei tíma
til að eignast varanlega vini, gæti verið Ricky
sjálfur. Þetta er rólegt, fallegt lag vel sungið
af Ricky. Síðara lagið er hratt og fjörlegt, en
það er rétt að Ricky ræður við það, enda er
það reyndar fyrra lagið sem selur plötuna, hef-
ur þegar náð metsölu erlendis.
Imperial hljómplata, sem fæst í Drangey,
Laugavegi 58.
The Ventures: Lolita ya ya og Lucille. Gítar-
leikararnir Ventures eru hér með tvö þung-
lamaleg lög og kvennakór sér til aðstoðar. Þetta
er langt frá því að vera það bezta sem Ventures
hafa gert. Þess má geta að fyrir nokkru kom
á markaðinn tólf laga plata með þeim, sem
kölluð var The colourfull Ventures, þar eru
mörg skemmtileg lög. Fyrrgreind tvö lög eru
á Liberty-plötu, sem fæst í Fálkanum. Lauga-
vegi 24.
Jimmy Savile: Ahab the Arab og Very
unlikely. Jimmy er enskur söngvari sém talar
að mestu leyti í fyrra laginu. En Ahab the Arab
er einhver bezta gamanplatan, sem komið hef-
ur á markaðinn í langan tíma. Með góðum
íslenzkum texta, skemmtilega staðfærðum gæti
þetta orðið gífurlega vinsælt lag hér á landi.
Síðara lagið syngur Jimmy allþokkalega, en
það er ekki nærri eins gott og fyrra lagið, enda
ætlar Jimmy að setja allt á annan endann hvar
sem hann kemur fram þegar hann segir ævin-
týrið um Arabann Ahab.
Decca-hljómplata, sem fæst í Drangey, Lauga-
vegi.
VIKAN 21