Vikan


Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 24

Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 24
JÓLAKORTIN Já, vel á minnzt, jólakortin. Þú mátt varla draga það öllu lengur, að senda þau kort, sem lengra eiga að fara. Og þá er um tvennt að velja: að kaupa þau í næstu þúð — og þá get- urðu hér um bil reitt þig á, að viðtakandinn fær tvö eða fleiri, eins og þú sendir — eða hitt, að þú gerir kortin heima, en þá má mikið vera ef vinur þinn fær annað, sem er eins. Og þess vegna er fjöldi fólks, sem velur þann kostinn, að senda heimagerð jólakort —- og það ættir þú að gera. Yfir þeim hvílir sérstæður svipur og persónulegt handbragð svo vinur þinn finnur til nálægðar þinnar, er hann handleikur kortið, því nokkuð af sjálfum þér leynist jafn- an í handbragði þínu, þó það sé hvorki list- rænt eða íburðarmikið — ef það er vel gert. Þess vegna áttu ekki að bera því við, að þú kunnir ekki að teikna, eða eitthvað þess háttar. — Grenitré eru alltaf tákn jólanna, en myndir af þeim breytast eftir tíðarandanum. Þess vegna getur þú beitt þínu eigin hugmynda- flugi við gerð jólatrjáa, samanber nokkur sýn- ishorn hérna. Svo er það ánægjulegt viðfangs- efni, út af fyrir sig, að leita að sérkennilegum og skemmtilegum aðferðum. Athugaðu tvöföldu kortin hérna, annað með skráargati og jólatré á bakhliðinni, en hitt með húsaröð að kvöld- lagi, og útklippt jólatré á fremra blaðinu, sem ber við bakgrunninn. — Ef þú ætlar að gera jólatré, með báðum hliðum eins, þá klipptu það úr samanbrotnum pappír — og ef þú úðar yfir með málningarsprautu, getur þú valið um hvítt jólatré eða litað (sjá sýnishornin). En hvernig þú átt að gera málningarsprautu, sérðu annars staðar á síðunni. Hér hefur aðeins verið bent á eina aðferð af mörgum, við gerð jólakorta. En segja mætti mér að þú getir einnig skreytt jólakortin þín með blómum eða klippmyndum, úr pappír eða taui. Og ef þú getur litað og teiknað sjálfstætt, þarf ég ekki að gera annað, en minna þig á, að nú er rétti tíminn til að ganga frá jólapósti til ættingja og vina, sem fjarri eru — og von- ast eftir jólakveðju, frá þér. MÁLNIN G ARSPRAUT A Það er að jafnaði meira gaman að vinna með tæki, sem maður hefur sjálfur gert — og máln- ingarsprautan hérna er sannarlega auðvelt við- fangsefni, og gaman að mála með henni. At- hugaðu teikninguna vel, áður en þú byrjar. Þú þarft ekki annað en góðan korktappa, sem skorinn er eins og mynd B sýnir. Tvö göt eru gerð, annað lárétt, en hitt lóðrétt, fyrir örmjó rör, t. d. fjöðurstafi. Lóðrétta rörið (í glasinu) á að nema við neðri brún á lárétta rörinu. Ef þú leggur útklippt pappírsmynztur á blað og úðar yfir, verður hvítur flötur undir því, en ef þú úðar í gegn um pappír með gatamynztri, verður flöturinn í kring hvítur (sjá sýnishornið af jólatrénu). Þú getur notað blek, eða vatns- liti, hæfilega þynnta með vatni. Aðferðin er svo í því fólgin, að blása í lárétta rörið, en við það sogast liturinn upp um neðra rörið og dreif- ist, sem úði vfir pappírinn. Þó tappinn sé hér sýndur í lausu lofti, er betra að hann sé fast- ur í glasinu, því þá má halla glasinu meðan sprautað er, annars verður þú að festa blaðið á vegg meðan sprautað er. Úðaðu ekki svo mikl- um lit á einn stað, að hann renni til — og mundu að hafa dagblað undir, til hlífðar borð- inu. — Leiknin kemur með æfingunni og málningarsprautan veitir þér margar ánægju- stundir. 24 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.