Vikan - 29.11.1962, Page 14
HVERNIG ER AF-
C(- 3 nt j! >* t! «a u n* ' f g.©, 8®f »5*3»)'1»|i©4»«<l
■> i 3 > v ; ici s < 8 ð j*D 8 i: 1» Iwl'
KOMA ÞEIRRA? - 3.
f þetta sinn kynnumst við lítils-
háttar kjörum verkmanns í Bret-
landi. Hann býr í leiguíbúð og
sjónvarpstækið er dýrasti hlutur-
inn, sem hann á.
Eftir marga alda einangrun hand-
an Ermarsunds fór loks Stóra-Bret-
land eftir heimsstyrjöldina að láta
til sín taka í vestrænni samvinnu,
og nú er svo komið, að um vest-
ræna sámvinnu er naumast hægt
að ræða, nema Stóra-Bretland sé
þar talið með. Það var Stóra-Bret-
land, sem átti mestan þátt í Frí-
verzlunarsvæðinu, sem hins vegar
var afleiðingin af Efnahagsbanda-
laginu og sem svo að méstu fór út
um þúfur, þegar Stóra-Bretland
sótti um upptöku í Efnahagsbanda-
lagið.
Walter Wheelhouse er málari, 45
ára gamall, og býr í úthverfi Lon-
don, Leyton. Hann trúir því statt
og stöðugt, að það sé landi hans
fyrir beztu að ganga í Efnahags-
bandalagið. Hann vinnur við stærsta
iðnað Stóra-Bretlands í dag —
byggingariðnaðinn. Wheelhouse er
frá Leeds, þar sem faðir hans var
verkamaður. f Leeds kynntist hann
konu sinni, Peggy.
Hvarvetna þar sem ný hús skjóta
upp kollinum eins og gorkúlur í
London og nágrenni, sveiflar
Wheelhouse penslinum sínum á-
samt samstarfsmanni sínum, Dick,
í 42 stundir á viku og auk þess yf-
irleitt um 8 tíma í eftirvinnu. Hann
fær tæpar 37 krónur á tímann, en
við það bætast svo 25 prósent fyrir
eftirvinnu. Á viku vinnur hann sér
inn um 2040 krónur, sem er held-
ur meira en gerist og gengur meðal
samverkamanna hans.
Bretland er land öryggis og
trygginga, enda skipta tryggingar
fjölskyldu Wheelhouse afar miklu.
Sérstök trygging nær samtímis
yfir sjúkdóma, slys, atvinnuleysi og
eftirlaun. Tillagið er tæpar 85
krónur á viku, og atvinnuveitandi
hans borgar sömu upphæð.
Tryggingin borgar honum, ef
haim veikist, 540 krónur á viku, og
ef hann skyldi verða atvinnulaus,
fær hann um 715 krónur á viku.
Frá 65 ára aldri fær hann í eftir-
laun um 523 krónur á viku.
Auk þess borgar Wheelhouse,
eins og um fjórðungur brezkra
verkamanna, enn eina tryggingu,
svokallaða „Super annuation", og
borgar Wheelhouse til þeirrar
tryggingar 78 krónur á viku. Fyrir
þessa peninga fær hann, ef hann
skyldi veikjast, næstum 1200 krón-
ur á viku og um 96,000 falla í hlut
ekkju hans, er hann deyr.
Flestir samstarfsmenn hans borga
í þessa tryggingu aðeins helming-
inn og fá þá í eftirlaun sem svarar
6 krónum á viku fyrir hvert ár,
sem þeir hafa borgað.
Loks borgar hann foreldrum konu
sinnar um 36 krónur á viku í þessu
landi, þar sem það er til siðs, að
börn tryggi foreldrana.
í skatt borgar hann um 45 krón-
ur á viku. Hins vegar eru óbeinu
skattarnir miklir, t. d. 50 prósent
á bílum, grammofónplötum, út-
varpstækjum, sjónvarpstækjum o.
s. frv. í húsaleigu borgar hann um
1236 krónur á mánuði. Wheelhouse-
fjölskyldan býr í svokölluðu
County flat, sambýlishúsi, þar sem
hið opinbera sér um hluta af gjöld-
unum.
Brezkir verkamenn búa yfirleitt
í slíkum húsum, og þá yfirleitt tvær
fjölskyldur í hverju húsi. Einnig
er hægt að kaupa slík hús, en verð-
ið er gífurlegt.
Hvorki Wheelhouse né kona hans,
Peggy, hafa noklrurn tíma komið
til meginlandsins. f sumarleyfunum
fara þau yfirleitt niður að strönd-
inni og hafast þar við í sumarleyfis-
búðum og borga til þeirra um 1500
krónur, og eru öll þægindi og alls
WALTER WHEELHOUSE ER HÚSAMÁLARl í
ENGLANDI, LANDl ALMANNATRYGGINGA
i OG fageElaga. kann er ánægður með
■ ú
f LÍFIÐ, — EN VILDI SAMT GJARNAN EIGA
I.-íK' ■■■ : ■"
SINN EIGIN BÍL OG EITTHVAÐ AF PENING-
, : ;; ■■,. ' .
UM TIL AÐ KAÚPA BENZÍN Á HANN!