Vikan - 29.11.1962, Side 15
Wheelhousefjölskyldan horfir á sjónvarp. Til hægri er kaffitími á vinnustað.
kyns upplyfting innifalin.
Wheelhouse langar mjög til að
geta ekið niður að ströndinni í eig-
in bíl, og ef til vill gæti hann safn-
að sér fyrir ódýrum bíl, en líklega
myndi hann þá ekki ráða við
benzínkostnað og önnur útgjöld,
sem fylgja því að vera bíleigandi.
Enn er of snemmt að segja nokk-
uð um það, hver áhrif Efnahags-
bandalagið kemur til með að hafa
á Bretland og afkomu verkamanna
þar. Vitað er, að þegar ákvæði
bandalagsins hafa komið til fullra
framkvæmda, verða talsverðir flutn-
ingar verkamanna milli landa
bandalagsins. Hvort brezkir verka-
menn verða í svo ýkja mikilli hættu
af yfirfylltum vinnumarkaði, skal
ósagt látið, en búast má við að
verkamannastraumurinn leiti frem-
ur til landa, sem meira hafa af nátt-
úruauðæfum.
Walter Wheelhouse segir um
Efnahagsbandalagið: — Ég get ekki
talað af þekkingu um efnahagsleg-
ar afleiðingar Efnahagsbandalags-
ins, og það getur víst enginn, enn
sem komið er. Hér er teflt á tvær
hættur. Ég er þeirrar skoðunar, að
verkamenn í Bretlandi skiptist í
nokkurn veginn tvo jafnstóra hópa,
annar vill fulla aðild að Efnahags-
bandalaginu, en hinn enga. ★
Wheelhouse þykir gott að koma við á kránni, fá sér einn bjór og rifja
upp skemmtilegar endurminningar.
VIKAN 15