Vikan


Vikan - 29.11.1962, Page 18

Vikan - 29.11.1962, Page 18
SVARTI-LI OG HVÍTI-LI • © Hann brosti. Tíu dögum seinna kom Svarti-Li að finna mig. Ég gat séð hvað honum bjó í brjósti; alltaf þegar honum lá eitthvað þungt á hjarta, var eins og skuggi félli á ennið. Þá varð ekki hjá komizt að hvo’fa í sig hálfum lítra af lienlivabæ. Ég flýtti mér að framreiða vínið, af því ég sá að það var ekki bjart yfir enni hans. Eftir tvö staup voru hend- ur hans farnar að skjálfa ei- lítið. Hann kunni ekki að dylja nokiurn neins; um leið og eitthvað kom fyrir liann, var hægt að iesa það á andliti hans, jafnvel þótt hann legði sig fram að leyna þvi. „Ég er rétt að koma frá henni.“ Hann hló, hló vand- ræðalega og af engri uppgerð, heldur vegna hins að hann langaði til að trúa vini fyrir ti'finningum sínum. Vinarlaus gat þessi maður ekki lifað eina dagstund. Ég rak ekki á eftir honum. Við þurftum ekki að flýta okk- ur, er við vorum tveir einir: Tilfinningarnar bjuggu ein- hvers staðar að baki þess sem sagt var. Litum hvor á annan og brostum samtimis; viðmát- ið og þögull skilningurinn náði dýpra til sálarinnar, en orð geta gert. Það var ein- mitt þess vegna, að Hvíti-Li kallaði okkur „tvö fúlegg“, þegar bann sá okkur neyta víns. „Litli bróðir er svo gefinn fyrir að þrátta við mig,“ sagði hann. Mér var vel Ijóst, hvers vegna hann sagði „er svo gefinn fyrir“ — í einn stað vildi hann ekki segja að þeir bræðurnir befðu rifizt, í annan stað vildi hann ekki heldur segja, að litli bróðir hefði á röngu að standa, jafn- vel þó svo væri í raun og veru. Þetta orðálag gaf til kynna að hann vildi forðast að segja það sem ekici varð umflúið að segja. „Út af henni. Ég er k'aufskur, skil ekki til- finningar ungra stúlkna. Sagði ég þér ekki um daginn að ég hefði vægt. Það er ekkert sem ég fyrirverð mig fyrir, en hún tortryggir mig. Hún hélt ég væri vísvitandi að svivirða sig. Þú hafðir rétt fyrir þér, ég er ekki nútimamaður. Ég lit á ástamálin sem réttlætis- mál, vissulega vilja djarfar stúikur helzt að karlmenn- irnir séu á hjólunum eftir þeim. Hún hatar mig. Ég endurtek — ég sleppti henni, en þá vildi hún heldur ekki Jíta við litia bróður. Auðvitað skammaðist hann við mig. Svo að ég fór aftur í dag að finna hana, til að biðja fyrir- gefningar. Kannski hellir hún úr skálum reiði sinnar yfir mér, svaiar reiði sinni, ef til vill tekur hún bróður aftur i sátt. Það var þetta sem ég vonaði. Tja, hún skammaði mig ekki. Hún bað okkur báða að vera vini sína. En það get ég ekki gert, þótt ég segði henni það ekki skorinort, ég segi þér það núna. Ef ég byrja ekki aftur að vera með henni, vill hún he’dur ekki líta við litla bróður. Og þá hlýtur hann að kýta við mig.“ „Engin ráð,“ bætti ég við í hans orðastað. Eftir langa þögn sagði ég: „Ég fer og finn bróður þinn og ræð framúr vandanum." „Það væri gott,“ hann liag- ræddi staupinu utan við sþg. „Ef til vill er það gagnslaust. í öllu falli er ég hættur að vera með henni. Ef 'litli bróð- ir skykli aftur fara að þrátta, æt'a ég að sitja steinþögull.“ Við fórum að tala um eitt- hvað annað. Hann sagðist hafa verið að rannsaka trúar- brögð þess dagana. Ég vissi að hann las engar aðrar bæk- ur, ekki vegna þess að hann væri leiður á lífinu eða reik- ull í andanum, að liann fór að minnast á trúarbrögð. Þegar eldri bróðirinn var farinn, kom sá yngri. Hvíti-Li var alls ekki vanur að koma í heimsókn til mín, hann hlaut að eiga eittlivert brýnt erindi. Hann var enn ekki útskrifað- ur úr háskóla, en virtist miklu gáfaðri en bróðir hans. Þetta var maður sem sópaði að, maður finnur hann er sjálf- kjörinn leiðtogi um leið og litið er á hann. Hver setning af munni hans er fu'l sann- færingarkrafti, heldur við- mælanda föstum. Hann sleppti allri kurteisi, þveröfugt við það sem bróðir hans gerði. Sjálfur var ég heldur ekk- ert sérloga kurteis við hann, annars átti maður von á að verða kallaður „fúlegg“. „Stóri bróðir hefur auðvit- að verið hérna?“ spurði hann, „og hefur auðvitað talað um okkar málefni?“ Ég flýtti mér ekkert að svara vegna þessara tveggjá „auðvitað“. Hann beið heldur ekki eftir að ég svaraði, en hélt áfram: „Þú vcizt, þetta var bara átyl'a af minni hálfu.“ Ég vissi það ekki. „Heldurðu mig langí eiít- hvað í þennan kvenmann?" Hann brosti, brosti álveg eins og bróðir hans, eini- munurinn að bros Hvíta-Lis bar það með sér að ég væri þess ó- verðugur að brosað væri við. „Eg var með henni eingöngu til að stríða stóra bróður, hvaða tíma hefði ég annars til að sinna henni’? Samband karls og konu er dýrslegt, sé það skoðað niður i kjölinn. í því tilliti kemst ég af án hennar. Stóri bróðir heldur að þetta dýrslega samband sé heilagt, því hneigir hann sig í duftið frammi fyrir henni, fleygir sér fyrir fætur henn- ar, heldur ég geri það líka; en svo langt er ég nú ekki leiddur." Hann skellihló. Ég hló ekki, vildi heldur ekki taka fram í fyrir honum. Ég hlustaði af _ eftirtekt á hann og virti andlit hans fyrir mér af enn meiri áhuga. Hvar sem á það var litið var það eftirmynd bróður hans, en svipbrigðin voru allt önnur. Þess vegna fannst mér ýmist ég væri að tala við gamlan kunningja, eða ég sæti gagn- vart ókunnugum manni. Ég kunni þvf ekki sem bezt, sjá- andi þetta gamalkunna andlit, en finna ekki þau svipbrigði sem voru mér svo vel kunn. „Þú ski'ur að ég hneigi mig ekli niður í gólf fyrir henni, kyssi hana hins vegar þegar ég hef tækifæri til. Hún lætur sér það vel líka, að minnsta kosti fullnægir það henni betur en liöfuðhneigingar. En þessu fylgir engin alvara. Það er sannleikurinn í málinu. Heldurðu ég eigi alltaf að búa með stóra bróður?“ Ég vissi ekki hverju ég ætti að svara. Hann hló aftur — senni- lega fannst honum ég vera „fúlegg“. „Ég hef mínar fram- tíðaráæt'anir, hann sínar, bezt við förum hvor sína leiðina. Er jjað ekki rétt?“ „Jú, hvaða áform hefur þú?“ Til a'lrar hamingju gat ég látið mér detta þessi setn- ing í hug. Full aulalegt að steinþegja. „Hvaða áform? ég sleppi að segja frá þeim núna. Bíddu þar til við höfum skipt búi, þá muntu sjá hvaða áform ég hef.“ „Þú reifst við bróður þinn eingöng vegna þess þú vildir skipta bfn, hafðiir stielpuna bara að átyllu, er ekki svo?“ Mór fannst ég orðinn býsna gáfaður. Hann kinkaði kolli bros- andi, en svaraði engu, rétt eins og hann vissi að ég ætti eitthvað eftir ósagt. Hann gst sér rétt ti': „Hvers vegna segirðu honum það ekki af- dráttarlaust, i stað þess að skattyrðast?" „Hann getur ekki skilið mig. I'ú getur rætt við hann rólega fram og til baka, en ég get það ekki. Hann vatnar músum, cf ég minnist á að skipta búinu. Síðan kemur gamla romsan: Hvað sagði mamma áður en hún dó? Að við ættum alltaf að búa í sátt og sam- lyndi. — Þetta er það sem hann hlýtur að segja, eins og lifendur eigi að láta stjórnast af þeim dauðu. Og annað til, ég get ábyrgzt að um leið og hann heyrir nefnt á nafn að skipta búi, býður hann mér bróðurpartinn af þvf. En ég kæri mig ekki um meira en mér ber. Hann lítur alltaf á mig sem litla bróður, neytir alls ástríkis síns til að kappmella aðra. Læzt .þekkja minn innri mann, i reynd- inni á hann ekki heima í nútímanum. Þessir tímar eru mínir tímar og fullkomlega óþarft að gera sér áhyggjur mín vegna.“ Hann varð skyndilega al- varlegur í framan. Meðan ég virti fyrir mér andlit hans, varð breyting með mér innra. Mér varð Ijóst að hann var meira en drembi- látt ungmenni sem leit niður á okkur Svarta-Li — þessi „fúlegg“ — ef hann myndi reyna að ta'a stilillega um málið við bróður sinn, yrði hann að eyða mörgum há- stemmdum orðum, segja margt fagurt um bróðurkærleikann; og jafnvel þótt hann léti það ógert, hlyti Svarti-Li að gera það. Það var því ’ betra af tvennu illu að skammast ó- þvegið. Það sparaði allar krókaleiðirnar, öll sárindi. Hann ætlaði sér að ganga hreint til verks, höggva á öll bönd sem tengdu þá; freista gæfunnar siðan einn og ó- studdur. Svo ég víki aftur að hinni leiðinni að ræða rólega um hlutina; Svarti-Li mundi ekki fyrir nokkurn mun fást til að gefa afdráttarlaust svar. En ef Hvíti-Li hellti fyrst úr skálum reiði sinnar yfir hann, og ef Svarti-Li þverskallaðist samt við að skipta, færi enginn i grafgöt- ur um að það var hann sem lá á eigum bróður síns. Skyndilega var eins og rynni upp fyrir mér Ijós. „Ertu að biðja mig um að tala við bróður þinn?“ „Laiukrétt, það sparar að rífast við hann,“ hann var enn brosandi. „Mig langar til að honum verði þetta ekki of þungbært, við erum þó alltjent bræður.“ Hann sagði það eins og honum væri óljúft að þurfa að segja síðasta orðið — „bræður". Ég lofaði honum þessu. Því afdráttarlausar því betra, næstu tuttugu árin get- um við alls ekki látið sem við séum bræður.“ Hann þagn- aði, andartak var vottur af brosi í munnvikjunum. „Vegna hans sjálfs finnst mér honum væri langbezt að kvænast og eignast pattaralega hnoðra, á þann máta gróa sárin vegna bróðurmissisins auðveldar. — Að tuttugu árum liðnum verð ég líka kominn afturúr tím- anum. Ef ég verð þá enn í lifenda tölu, kem ég heim aftur sem litli bróðir. En segðu honum að í ástamálum ríði á að kyssa sem fastast, Framhald á bls. 32. 18 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.