Vikan


Vikan - 29.11.1962, Qupperneq 32

Vikan - 29.11.1962, Qupperneq 32
1 NATURANA BRJÓSTAHÖLD OG MAGABELTI HEIMSFRÆGT VÖRUMERKI VÖNDUÐ IJRVALS EFNI 1. fl. SWISSNESK-ÞÝZK FRAMLEIÐSLA. SÖLUBÚÐIR í REYKJAVÍK: OCULUS, Austurstræti LONDON, dömudeilcl, Austurstræti TÍBRÁ, Laugavegi SÓLEY, Laugavegi SISl, Laugavegi EINKAUMBOÐ A ISLANDI: G. BERCNAHN Iflufdsveð I( umboðs- og heildverzlun. Svarti Li og hvíti Li. Framhald af bls. 18. en hneigja sig þeim mun minna.“ Hann stóð upp, hugsaði sig um og sagði síðan: „Beztu þakkir.“ Ég fann glöggt að síðasta setningin var sögð í ákveðnum tilgangi, var skylda, sem honum var engan veg- inn ljúft að gangast undir. Ég fór daglega að heimsækja Svarta-Li og færði honum alltaf „lienhvabæ“ að drekka. Við luk- um drykkjunni, hættum samræðum og skildum, en án alls árangurs. Þannig leið að minnsta kosti heill mánuður. Ég útskýrði allt fyrir honum, hann skildi það og féllst meira að segja á að bróðir hans hyggi á böndin. En þegar við vorum í þann veginn að skilja, bætti hann ávallt sömu setningunni við: „En mér er um megn að skilja við bróð- ur minn.“ „Hvaða áform hefur hann, hvaða áform?“ Hann æddi fram og aftur, fæðingarbletturinn skrapp saman, 32 VIKAN þegar hann hrukkaði ennið: Hvaða áform? Um það verðurðu að spyrja hann, annars verður mér aldrei rótt.“ „Hann gefur það aldrei upp.“ Þannig hafði ég svarað honum í meira en fimmtíu skipti. „Þýðir það ekki að hætta sé á ferðum? Ég á engan annan bróður en hann. Láttu hann deila við mig. Hvað skaðar það? Áður var allt í sátt og samlyndi, fyrst nýlega að við erum farnir að rífast. Skyldi það ekki vera út af stúlkunni, þegar öllu er á botninn hvolft? Ræður mér að kvænast? Enn ókvongaður, og samt allur þessi úlfaþytur. Hvað yrði, ef ég myndi kvænast? Hvaða óform? Ekki nema það þó. Skipta búi? Bezt að láta hann haga því eins og honum sýnist. Sennilega hefi ég móðgað hann. Ég hefi mínar skoðanir, þótt ég deili ekki um þær við aðra. Hvaða áform? Bezt hann hagi því eins og honum sýnist. En hvers vegna þurfum við nauðsyn- lega að skipta búi? ...“ Þannig lét hann dæluna ganga hvert skipti við fundumst. En ekkert gaf honum vísbendingu um áform bróður hans. Skelfing hans bara jókst eftir því sem á leið. Ekki svo að skilja það væri fum á honum. Þvert á móti, hann fór sér hægt og silalega eins og honum var títt. Eins og hreyfingar hans gætu ekki fylgt tilfinningum hans eftir. Hversu órótt sem honum var innanbrjósts, voru hreyfingarnar jafn varfærnislegar og seinlegar, eins og hann héldi á lífinu á milli handanna. Ég sagði honum að áform bróður hans vörðuðu alla framtíð, .ekki að hann væri í þann veginn að gera neitt sérstakt. Hann hristi höfuðið. Næstum heill mánuður var liðinn. Ég notfærði mér þetta í rök- semdafærslu minni: „Nú geturðu sjálfur séð, hann rekur ekkert á eftir þér. Augljóst að hann miðar við langa framtíð, en ekki við líð- andi stundu.“ Hann hristi enn höf- uðið. Því lengri tími sem leið, því fleiri urðu sögur hans. Sunnudags- morgun einn sá ég hann halda inn í kirkjuna. Máski fór hann þangað að finna kunningjana. Ég beið fyrir utan um hríð. Hann kom ekki út, en ég hélt áfram að bíða þolinmóð- ur. Ég fór að ganga um hugsandi: Li hlaut að hafa orðið fyrir mikilli hugaræsingu — ástarsorgum, ósam- komulagi bræðranna eða einhverju öðru. Hann virtist ekki geta risið undir þessu lengur. Hann gerði sér áhyggjur út af minnstu smámunum, þess vegna var eins og hann gengi á glóðum. Þótt ekki nema að formin á teskálunum væru skökk, olli það honum áhyggna. Nú varð hann að velta þessu vandamáli fyrir sér, skoða það frá öllum sjónarhornum, unz hann fyndi lausn þess. Lausn sem gæfi honum frið fyrir samvizk- unni. Fara í kirkju að biðjast fyrir var gert til að grundvalla flekklausa samvizku. Þótt hann gæti móttekið hana sem fordæmi helgra manna og dýrlinga, fullnægði honum það ekki að leysa öll ný vandamál, svara ferskum tilfinningum, á svo ódýran háft. Niðurstaðan varð samt ávallt sú að honum fannst engin lausn gæti jafnast á við „fordæmið". Hann komst því aldrei til botns í hvað væri réttast að gera. Sennilega elskaði hann hana með dýpt sálar sinnar, en hlaut samt að sleppa henni við yngri bróður sinn, var auk þess særður dýpri ástarbenjum en orð hans gátu tjáð. Hann sagði iðuglega við mig: „Við skulum fara saman í flugferð." Síðan brost hann, ekki að það væri bros, heldur að hann neyddi einhverju fram á and- lit sitt sem því átti að líkjast. Eftir hádegið fór ég enn að finna hann. Að venju fór hann samstund- is að tala um bróður sinn. Rúman mánuð hafði þessu haldið fram. En nú var yfirbragðið breytt, augun geisluðu og einstaklega hljóðlátt bros flæddi um andlitið, eins og þegar hann hafði nýlega fest kaup á vel varðveittu eintaki gamallar bókar. „Hvað er nú að sjá þig?“ Ég varð fyrri til að hefja máls. Hann kinkaði kolli, brosti svo: „Fjarska skemmtilegt.“ Hann var alltaf vanur að taka þannig til orða, þegar hann í fyrsta skipti veitti athygli einhverju gömlu fyrirbæri. Segði maður honum bjálfalega draugasögu, fannst hon- um hún líka „fjarska skemmtileg“. Hann deildi ekki við neinn um til- vist anda, en hann lagði trúnað á þessar sögur. „Hver veit nema enn furðulegra fyrirbæri eigi sér stað?“ Að hans dómi var ekkert óhugsandi með öllu. Þess vegna gleypti hann svo auðveldlega við öllu nýju, en skorti ákveðnar kerfisbundnar skoð- anir. Ekki vegna þess hann hugs- aði ekki margt og skildi ekki ýmis- legt, en í hvert skipti hann þurfti að beita gáfunum, lét hann tilfinn- ingarnar ráða gerðum sínum. „Öll rök hníga að því sama, mað- ur á ævinlega að fórna sér fyrir náungann," sagði hann. „Ertu ekki þegar búinn að fóma kærustunni? “Ég vildi halda mig við staðreyndir. „Það telst ekki fórn. Það er að- eins að láta tækifæri sér úr greip- um ganga með aðgerðarleysi, ekki að taka neitt frá sjálfum sér og bjóða það sem fórn. Síðustu tíu dag- ana hefi ég lokið við að lesa guð- spjöllin. Ég er búinn að taka á- kvörðun, mér ber að taka byrðar bróður míns á mínar herðar, ekki bara að fallast ekki á að hann skilji við mig. Mér virðist hann ætti að koma og tala við mig sjálfur, ef það væri bara til að skipta búi.“ „Hann óttast þú sért ófáanlegur til þess,“ svaraði ég. „Ekki bara það. Síðustu dagana hef ég gert mér ljóst að hann hlýt- ur að búa yfir einhverjum raun- verulegum áformum, auk þess hættulegum áformum. Þess vegna vill hann rjúfa öll tengsl milli okk- ar, til að forða mér undan afleið- ingum gerða sinna. Þú heldur hann sé ungur og ófyrirleitinn? Það not- færir hann sér einmitt. f reyndinni ber hann hag minn fyrir brjósti, vill ekki ég líði vegna ranginda. Þegar hann veit mig á öruggum stað, finnur hann sjálfan sig óháð- an að gera hvað hann vill. Þannig hlýtur að vera í pottinn búið. Ég get ekki sleppt af honum höndunum, ég verð að fórna mér hans vegna. Mamma sagði fyrir andlátið ...“ Hann hélt ekki áfram, því hann vissi mig kunna framhaldið. Þessi skýring hafði aldrei komið mér til hugar. Ég hafði heldur ekki mikla trú á sannleiksgildi hennar. Hver vissi nema hann hefði orðið fyrir of sterkri trúarlegri æsingu, og þyrfti þess vegna að fá óhindraða útrás tilfinninga sinna? Ég ákvað að fara og finna Hvíta- Li, ef ályktun bróður hans kynni þrátt fyrir allt að reynast rétt. Að vísu vefengdi ég hana, en þorði samt ekki að eiga neitt á hættu. Ég gat ekki fundið Hvíta-Li, hvernig sem ég leitaði hans: í skól- anum, íbúðunum, bókasafninu, blak- vellinum, jitlu matvælabúðinni, hvergi var hann að finna. Ég spurð- ist fyrir, enginn kvaðst hafa séð hann nokkra síðustu dagana. Þetta var einmitt líkt honum, færi Svarti- Li að heiman nokkra daga, hlyti hann að segja nánustu vinum sín- um frá því fyrirfram. Hvíti-Li var nú einu sinni fæddur með þessum, ósköpum, eins og þjófur á nóttu, gat hann horfið fyrirvaralaust. Ég tók skyndiákvörðun — fara til „hennar“ að spyrjast fyrir. Hún þekkti mig, vegna þess hve oft við Svarti-Li vorum saman. Hún sagðist ekki hafa séð hann marga daga. Hún var afar gröm við þá báða, sér í lagi Svarta-Li. Ég var kominn til að spyrjast fyrir um

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.