Vikan - 29.11.1962, Síða 37
að. En nú er það vitað raál að þess-
arar aðgerðar er iðulega óskað þótt
engin frambærileg heilsufarsleg á-
stæða sé fyrir hendi, og að engir
útúrsnúningar á lögunum geti gert
það að verkum að þau heimili að-
gerðina. í þessum tilfellum eru það
oftast „félagslegar ástæður" aðeins,
sem e. t. v. gætu mælt með fóstur-
eyðingu. En íslenzk lög leyfa ekki
fóstureyðingar af félagslegum á-
stæðum einungis. Hér er átt við
það þegar kona vill ekki undir
nokkrum kringumstæðum eiga
barn, vegna þeirra afleiðinga, sem
það kann að hafa fyrir hana í sam-
skiptum við annað fólk, t. d. vegna
þess að þá mundi komast upp um
óleyfilegt samband hennar við
barnsföðurinn, eða þá að hún álítur
að barnið verði henni fjötur um fót
í framtíðinni af einhverjum ástæð-
um. Fyrir getur líka komið að fað-
irinn tilvonandi óski þess eindregið
að fóstrið verði fjarlægt, og að kon-
an reyni að verða við þeirri ósk, —
og er slíkt oftast einnig af svipuð-
um ástæðum.
Slíkar fóstureyðingar er -—• eins
og áður er sagt — ekki hægt að fá
framkvæmdar á löglegan hátt, og ef
slíkt er gert samt sem áður, þá er
það með vitund konunnar og lækn-
isins líka — lögbrot, og heyrir und-
ir hin almennu hegningarlög.
í þeim tilfellum eru bæði sek,
læknirinn og konan og varðar sak-
felling fangelsisdómi hjá báðum.
Þrátt fyrir hættuna, sem þessu
er samfara, mun það ekki óalgengt
að ólögleg fóstureyðing sé fram-
kvæmd, og leikur grunur á að tölu-
vert meira sé um það en nokkurn
getur órað fyrir. Erlendis hafa slík
brot sannazt á lækna oftsinnis og
OLYMPUS PEN er myndavélin, sem allir
tala um, enda býður hún upp á 50% sparnað
í filmukaupum. Þér fáið 72 myndir í stað 36
eða 40 myndir í stað 20 mynda af venjulegri
35 mm filmu, Iit eða svart-hvítt.
OLYMPUS PEN myndavélarnar eru til still-
anlegar og algerlega sjálfvirkar, með þeim
taka byrjendur 1. flokks myndir, bæði lit-
myndir og svart-hvítar.
OLYMPUS PEN myndavélamar taka lítið
pláss, rúmast í handtösku kvennanna og jafn-
vel í skyrtuvasa herranna.
OLYMPUS PEN myndavélarnar eru útbúnar
Zuiko linsunni, sem er sérlega skörp, og leyfir
ótrúlega mikla stækkun mynda.
Einkaumboð á fslandi:
ÍSALDA S.F.
Pósthólf 1075. — Reykjavík.
Sími 24119.
jafnvel á ófaglærða menn, en hér
á landi er mér ekki kunnugt um
að sök hafi sannazt á lækni. Þrátt
fyrir það er það opinbert leyndar-
mál að slíkar aðgerðir er hægt að
fá framkvæmdar fyrir góð orð —
og_ góðan pening.
í mörgum slíkum tilfellum getur
maður skilið ósk konunnar um fóst-
ureyðingu, og kannski er það líka
í og með vegna þess að viðkomandi
læknir lítur mannlegum augum á
málið, að hann fæst til að aðstoða
konuna. Oft er um ungar og ógiftar
stúlkur að ræða, sem hafa látið
bjartsýni, kæruleysi, ást, vergirni,
trúnaðartraust eða þekkingarleysi
Framhald á bls. 40.
Þótt hinn nýi ZETOR diesel traktor sé
létt byggður þá hentar hann jafnt við
jarðvinnslu og slátt. Dráttaraflið er
feykilegt og eyðslan er í lámarki.
Hinn nýi ZETOR hefur alls 10 gíra, 5
akstursgíra og 5 kraftgíra þar af 2 drátt-
argíra. Vökvalyftan er óháð aflúrtaki.
Hemlarnir eru loftknúnir.
Hinn nýi ZETOR traktor er gjörbreyttur
í útliti og byggingu frá eldri árgöngum.
Verðið á 36 hestafla ZETOR diesel er
kr. 96.000,00. — Hinar nýju ZETOR diesel-
dráttarvélar eru 23, 36, 42 og 50 hestafla.
Leitið fyrirspurna og gerið pantanir í
tíma.
EVEREST TRADING COMPANY GRÓFIN 1 — SlMI 10090 — REYKJAVÍK
vikan 37