Vikan


Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 48

Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 48
Þýzkur blaðamaður, Ludwig Weitz, heimsótti nýlega dr. Sukhak- arn og segir svo frá: — Eg fór þangað fullur efasemda, viss um að þetta væri aðeins til þess að hlæja að. Eftir að ég hafði séð nokkrar tilraunir sannfærðist ég um, að þetta er staðreynd. Ég sá, þegar 12 ára gamall dreng- ur var dáleiddur. Hann var með rækilega bundið fyrir augun. Hann lagði kinnina að sjónglerinu á smá- sjá. Síðan tók hann pappírsörk og teiknaði það, sem hann sá í smá- sjánni. Ég er viss um að hér voru engin brögð í tafli. Getur uppgötvun hins aldna búddha-munks orðið til þess, að blind börn um allan heim fái sjón- ina, evrópsk sem önnur.? Fréttin um, að „hægt sé að sjá gegnum kinnarnar“ og hinn góði árangur, sem náðst hefur, hefur komið þekktum augnlæknum al- gjörlega á óvart. — Eg verð að viðurkenna, að það 48 VIKAN þarf mikið til, til þess að ég láti sannfærast, sagði einn þeirra. — En ég vil gjarna fá að vita meira. En dr. Sukhakarn og félagar hans halda tilraununum áfram að fullum krafti, án tillits til allra hinna tor- tryggnu og efagjörnu ... ★ Á eyðihjarni. Framhald af bls. 23. ið úr því og notað við byggingu kof- ans, eða I stað húsgagna inni í kof- anum. Eiðið var nú snjólaust með öllu, en mölin ekki þiðnuð nema efst og víða holklaki. „Ég veit að þú hefur mikið til þíns máls,“ sagði Surrey. „Ég veit að það er hægt að gera eins konar bát úr því flotholti vélarinnar, sem ekki laskaðist í lendingunni. Gallinn er bara sá að slíkur bátur mundi velta eins og skel. Flotholtin eru stöðug tvö samtengd, en hvort þeirra fyrir sig er ónothæft án hins.“ „Það veit ég lika,“ svaraði Dahl. „Én er það nokkur frágangssök að setja á hann utanborðskili, eins og eyjaskeggjar í Suðurhöfum hafa á eintrjáningum sínum — hvað segirðu um það?“ Surrey hnykkti til höfðinu. „Þar komstu með það ..svaraði hann. Svo hugsaði hann málið um hríð og smám saman færðist bros á andlit hans. „Það er einmitt ráðið,“ mælti hann. Svo sneri hann sér að Alison og brosti breitt. „Alison ... hvað yrði um okkur öll, ef við hefðum ekki þennan mann?" Það var eins og jafnvel rödd Surr- eys hefði gerbreytzt á einu andar- taki. Eins og von og traust hefði aftur vaknað með honum. Og loks þorði Alison líka að vona, enda þótt henni þætti þetta um of bjart útlits til þess að geta verið satt. Dahl brosti að óðagoti hans. „Jæja, fyrst verðum við að athuga hvernig við getum fest utanborðskjölunum,‘“ sagði hann. „Þetta ætti ekki að verða svo erfitt viðfangs," sagði Surrey. „Við hljót- um að geta lyft flakinu með því að renna undir það lurkum, og síðan sagað flotholtin af stoðunum og ...“ Hann hnyklaði brúnirnar nokkur andartök. „Bíddu nú við, Lincoln Dahl,“ sagði hann allt í einu. Hann starði um hríð á flakið og flotholtin. „Það er nú það,“ tautaði hann. „Það er einmitt það ...“ Hann lagðist á hnén við flotholtin, fór höndum um Þau, þar sem þau höfðu eitthvað skrámazt í lending- unni, og hafði allan hugann við þess- ar athuganir, svo að hann var farinn að blístra glaðlega, án þess að hafa hugmynd um það, að því er virtist. Loks reis hann á fætur, blautur og leirugur á hnjánum. „Jæja?“ spurði Dahl. Alison þóttist sjá að Dahl skildi ekkert í hvers vegna Surrey hafði allt í einu farið að athuga svo ná- kvæmlega laskaða flotholtið, og: þætti það miður. „Flotholtið hefur orðið fyrir dá- litlu höggi að framan," sagði Surrey, „en ég held að það sé ólekt.“ „En það er hitt flotholtið, sem kem- ur til greina," sagði Alison, eins og hún vildi koma til liðs við Dahl. „Það er ekki það,“ svaraði Surrey. „Hlustið þið nú á mig. Flotholtin eru gerð úr alúmínþynnum, mjög þunnum, sem styrktar eru með stíf- um og rám úr málmi að innan. Satt bezt að segja veit ég ekki hver áhrif það hefði, ef þekjunni væri flett ofan af flotholti til að gera úr því bát. Það getur vel verið að það mætti takast, en aftur á móti er ég hrædd- ur um að það mundi veikja hylkið' um of til þess að á það væri treyst- andi." „Við verðum að hætta á það,“ svar- aði Dahl þrákelknislega. „Bíddu nú við,“ sagði Surrey. „Hug- mynd þín er ágæt, og þú mátt ekki halda að ég vilji gera hana að engu. Ég vil þvert á móti gera hana enn. betri og fullkomnari." Og þetta nægði til þess að áhugi Dahls var vakinn. Og Alison var því. fegnust, að Surrey skyldi ekki dæma. hugmyndina ónothæfa. „Jæja?“ spurði Dahl enn. „Hvernig væri að við söguðum flot- holtin neðan af stoðunum, en létumi þverbitana á milli þeirra halda sér,. og gerðum síðan fleka á milli flot- holtanna, ofan á bitunum. Eins konar' pall, þar sem rúmgott yrði um okk- ur öll. Og burðarmagn flotholtanna: beggja er svo mikið, að þau geta; haldið uppi mörgum smálestum — að minnsta kosti héldu þau uppi flug- vélinni." Dahl starði sem steini lostinn á: Surrey nokkur andartök, en brosti svo breitt. Síðan leit hann á Alison og brosti sigri hrósandi. „Eftir hverju erum við að bíða?“ spurði hann. „Þá geta þeir Greatorex og Prowse legið á flekanum á leiðinni," sagði Alison hrifin. „Já, ef þetta gengur," svaraði Surrey. „Ég vona að það gangi." ÞAÐ tók þá fulla tvo daga að fella tré og höggva þau til, svo að þau veittu flugvélarflakinu þann stuðn- ing, sem Surrey var ánægður með. Og það tók aðra tvo daga að saga sundur stoðirnar með ryðgaðri járn- sög úr áhaldakassa flugvélarinnar. Þegar því var lokið, reyndist það þeim þrem auðvelt verk að draga

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.