Vikan


Vikan - 29.11.1962, Page 51

Vikan - 29.11.1962, Page 51
Að kunna ekki fótum ... Framhald af bls. 28. það eigi að ganga, og láta síðan allt afskiptalaust. í Bandaríkjunum er „jaywalking“ —■ eða götudans — alvarlegt brot, og fylgja því háar sektir, ekki síð- ur en við akstursbrot. Fleiri lönd hafa þennan góða sið, eins og t. d. Danmörk. Því miður er slíkt aðhald nauð- synlegt, og meir að segja lífsnauð- synlegt. Það er óviðunandi ástand að bílstjórar séu látnir bera ábyrgð á dauðadansi fólks í umferðinni, og það er í rauninni ekki heldur rétt að sakast um of við fólkið sjálft, því það kann ekki betur. Það verð- ur að sakast við þá, sem eiga að sjá um framkvæmdir á því að regl- um um gangandi fólk sé hlýtt, hverjir sem það eru og hvað sem þeir heita. Myndirnar, sem við birtum að þessu sinni um þetta ástand, eru teknar fyrir nokkrum vikum síðan og sýna ástandið eins og það venju- lega er. Ekkert sérstakt við þess- ar myndir. Sams konar tilfelli er hægt að sjá svo hundruðum og þús- undum skiptir á hverjum einasta degi, sem guð gefur. Þær sýna bæði börn og gamalmenni, konur og karla dansandi innan um bílaþvög- una eins og þetta sé eðlilegasti hlut- ur í heimi. Sumstaðar stendur lög- reglan og horfir á án þess að að- hafast. Við sjáum líka bílaþvöguna á götunum, og getum vafalaust gert okkur í hugarlund hvernig það er að þurfa að smeygja sínu farartæki áfram eftir ' okkar reykvísku göt- um — og eiga svo þar að auki að bera ábyrgð á öllum þeim fáráð- lingum, sem hefja dauðadans á miðri götu — fyrirvaralaust. G. K. í fullri alvöru. Framhald af bls. 2. að bíða til klukkan níu eftir fyrstu ferð. Það var eftirtektarvert, hve erf- iðir bílarnir voru í gang þennan morgun. Ekki var kuldinn svo mik- ill, að hann gæti verið næg ástæða. Enda stafaði þessi gangtregða mun fremur af því, að rakur snjórinn settist á vélina, kveikjuna og kerta- þræðina og olli útleiðslu, þegar haf- ið var að starta. Merkilegt, því fátt er auðveldara en að hafa bílana vel vætuvarða, og það mega þeir vera allan ársins hring. Sumir voru líka hreinlega rafmagnslausir og störtuðu ekki. Allt þetta öngþveiti var óskiljan- legt og óþarfi. Hver sæmilega skyni borinn maður gat séð, að allra veðra var von, og auk þess spáði veður- stofan snjókomu, sem fyrr segir. Ef almennt er ekki tekið meira mark á tilkynningum Veðurstof- unnar en þetta, væri betra að teggja þá stofnun niður og koma veðurfræðingunum í aðra vinnu. Það væri kannski ráð að láta þá bera ábyrgð á því, að strætisvagn- arnir væru til taks á réttum tíma með keðjur á hjólunum .. . VINSÆLASTA HEIMAPERMANENTIÐ HÉR Á LANDI S&fa- frá Richard Hudnut með hinum frábæra Clean Curl festi Framkallið eðlilega fegurð hárs yðar með Richard Hudnut heima- permanenti. Clean Curl festir, gerir hárliðunina ánægjulegri, auð- veldari og fljótvirkari vegna þess að Clean Curl festirinn hreinsar hár yðar um leið og hann gefur liðuninni endingu. Clean Curl gerir hár yðar lifandi, eðlilegt og ilmandi. — Stúlkur, sem nota Style- permanent vekja athygli fyrir hársnyrtingu sína. Bleikar umbúðir fyrir mikla liðun. Bláar umbúðir fyrir mjúka, látlausa liðun. — Islenzkar notkunarreglur með hverjum pakka. —■ Stór pakki. — Lítill pakki. Framkallið eðlilega fegurð hárs yðar með ^ashion <”p‘ || áA FRÁ RICHARD HUDNUT Einkaumboð: Heildverzlun Péturs Péturssonar, Hafnarstræti 4. — Símar: 11219 og 19062. Naggur. VIKAN 51

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.