Vikan


Vikan - 20.12.1962, Page 3

Vikan - 20.12.1962, Page 3
VIKAN BOOMERANGE OG LOFTHREYFILÖGMÁL „Þegar heiðingjarnir, sem ekki hafa lögmál, gera af sjálfu sér það, sem lögmálinu er sam- kvæmt . . stendur einhvers staðar í ritning- unni, og mun þá átt við siðgæðislögmálin —- en það hefur nú komið á daginn, að heiðingjar og villimenn hafa um langan aldur „gert af sjálfu sér“, það, sem ýmsum öðrum lögmálum er samkvæmt, þótt þeir hefðu vitanlega ekki hugmynd um þau, sem ekki er heldur von, þar sem það er fyrst nú, að vísindamenn stór- þjóðanna hafa fengið einhverja nasasjón af þeim. Þar á meðal er lofthreyfilögmálið, „aerodynamic“-in, sem þeir eru nú sem óðast að uppgötva, en sem Ástralíunegrar hafa hag- nýtt sér við smíði furðu fullkominna kastvopna frá því í fyrndinni. Þessi kastvopn, sem yfirleitt eru kölluð „boomerange", hafa þann merkilega eiginleika Framhald á bls. 39. HESTUR — BÍLL — FLUGVÉL Ekki mundi sá spámaður hafa þótt efnilegur hér á landi í kringum 1920, sem full- yrt hefði að þeir tímár kæmu, og væru meira að segja ekki langt undan, þegar það þætti jafn sjálfsagt að eiga bíl og þá þótti að eiga hest. Þannig er þetta þó nú —■ jafn- vel unglingarnir komast yfir bíl um leið og þeir hafa aldur til, og þykir engum mikið. En hvað skyldi þá verða langt þangað til að það þykir jafn sjálfsagt hér á landi að eiga flugvél, sér til upplyftingar og þæginda? Hvenær skyldu eldri og yngri þyrpast Framhald á bls. 39. NÝTT HJÁLPARTÆKI FYRIR HEYRNASLJÓA Enda þótt því sé lialdið fram að kapphlaup stór- veldanna út í geiminn, hafi lítið gagn í för með sér fyrir almenning, hefur sú margháttaða tækni, scm er einn þátturinn í keppninni, þegar orðið að notum ,,hér niðri“. Á grundvelli þeirrar tækni er nú hafin framleiðsla á þessum heyrnartækjum, sem eru furðu- lega fullkomin, að minnsta kosti miðað við stærðina. Þyngd tækisins er aðeins 14,2 grömm — með raf- hlöðum en þó er það gert úr 153 hlutum, marg- faldar hljóðið allt að því 400-fait, en útilokar um leið skyndilegar tónbreytingar og aukahljóð. Fram. Ieiðendurnir eru Sonotone Corporation að Elmsford, New York. ¥1KAI Útgefandi; Ililmir h.f. Kitsíjóri: Gisli Sigurðsson (ábm.). Framkvæmdastjóri: Ililmar A. Kristjánsson. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Simar: 35320, 35321, 35322, 35323. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifíng: Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 36720. Dreífingarstjóri Óskar Karls- son. Verð í lausasölu kr. 20. Áskrift- arverð er 250 kr. ársþriðjungslega, grc-iðist fyrjrfram. Prentun: Hilrhir1 h.f. Myndamót: Rafgraf h.f. Myndin á forsíðunni er tekin inni í Kópavogsltirkju núna skömmu fyrir jólin, þegar sólin skein í hádeg- isstað beint á marglitt glerið í gluggum suðurhliðar- innar. Annars eru hliðarnar fjórar svipaðar að sjá, en litirnir í gluggunum njóta sín að sjálfsögðu bezt, þegar sólin skín á þá. Jólatréð fengum við lánaö hjá Skógrækt ríkisins, og hengdum á það marglit ljós, til að gefa myndinni dálítinn jólasvip. Þetta er vafalaust ein sérstæðasta kirkja hér á landi, og það er álit margra að hún sé sú fallegasta. — Ljósm.: Kristján Magnússon. í naesta blaði verður m.a.: • SKEGGSJÁ VIKUNNAR. — G. K. skrifar gamansama grein um skeggjaða Islendinga og leiðbeiningar um skeggræktun. Fjöldi mynda. • SEGÐU JÁ. — Smásaga eftir Mögnu Lúðvíksdóttur. • FLUG 591. — Dularfull smásaga um nauðlendingu á hafi úti. • PÉTUR GAUTUR, OG ÞRJÚ ANPANS STÓRMENNI. — Grein eftir sr. Sigurð Einarsson í Holti um Ibsen, Grieg og Einar Benediktsson. • ÁRAMÓTAGETRAUN VIKUNNAR. — Skemmtileg getraun í einu hlaöi. • LJÓS OG SKUGGAR UNDIR BERLÍNARMÚRNUM. — Fróð- leg frásögn og lýsing frá Berlín eftir dr. Matthías Jónasson. • DAUÐS MANNS SPEGILL. — Annar hluti stuttrar fram- haldssögu eftir Agöthu Christie. • FUGLARNIR IIENNAR MARlU. — Fjórði liluti og síðasti sögu Lofts Guðmundssonar. • FRAMHALDSSAGAN. — Sögulok. • KROSSGÁTA, SNIÐAÞJÓNUSTA, UNGLINGAÞÁTTUR og margt fleira. VIKAN 3

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.