Vikan


Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 42

Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 42
kennisbúningi gekk til Poirot. „Herra Poirot? Til Hamborough Close?“ Hann tók snotra ferðatösku leyni- lögreglumannsins og gekk á undan út af stöðinni. Þar beið stór Rolls Roys-bíll. Bílstjórinn opnaði bíl- hurðina fyrir Poirot, breiddi skraut- legt ferðateppi úr loðskinni yfir fætur hans og ók af stað. Eftir um það bil tíu mínútna akst- ur yfir akra og engi, með kröppum beygjum og trjágöngum, ók vagn- inn inn um vítt hlið með gríðar- stórum steinhundum til beggja hliða. Þeir óku gegnum trjágarð heim að húsinu. Dyrnar opnuðust um leið og þeir óku að dyrunum og geysilega umfangsmikill bryti kom í ljós á dyraþrepinu. „Hr. Poirot? Gerið svo vel, herra.“ Hann gekk á undan inn forsal- inn og opnaði dyr til hægri á miðj- um forsalnum. „Hr. Hercule Poirot,“ tilkynnti hann. í stofunni var hópur af fólki í kvöldbúningi, og um leið og Poirot gekk inn, sáu hin skarpskyggnu augu hans þegar í stað, að enginn hafði átt hans von. Allra augu hvíldu á honum með óblandinni furðu. Framhald í næsta blaði. Gervase lendi hjá honum að lokum. Myndarpiltur, hann er í konung- lega riddaraliðinu.“ Poirot kinkaði kolli íhugull á svip. Því næst spurði hann: „Það er náttúrlega þungbært fyr- ir hr. Gervase, að eiga engan son til þess að erfa nafn hans?“ „Mér þykir trúlegt, að hann taki það sárt.“ „Hann hefur mikið dálæti á fjöl- sky ldunafninu? “ Hr. Satterthwaite þagði örlitla stund. Hann var orðinn mjög for- vitinn. Loks áræddi hann að varpa fram þessari spurningu: ,,Þér teljið brýna ástæðu til að fara til Hamborough Close?“ Poirot hristi höfuðið hægt og lengi. „Nei,“ sagði hann. Eftir því, sem 42 VIKAN ég bezt fæ séð, er alls engin ástæða til þess. En, hvað sem því líður, þá hugsa ég helzt að ég fari þangað.“ ANNAR KAFLI. Hercule Poirot sat úti í horni á fyrsta farrýmis járnbrautarklefa á fullri ferð eftir strönd Englands. Hugsandi tók hann upp úr vasa sínum vandlega samanbrotið sím- skeyti, sem hann opnaði og las að nýju: „Takið lestina hálffimm frá St. Pancras tilkynnið lestarstjóra stöðva lestina í Whimperley. Chevenix-Gore.“ Hann braut skeytið saman og stakk því aftur í vasann. Lestarstjórinn hafði bugtað sig og beygt. Svo herrann var á leið til Hamborough Close? Já, já, gestir hr. Gervase Chevenix-Gore létu ávallt stöðva lestina í Whimperley. „Það eru sérstök forréttindi, býst ég við, herra minn.“ Tvisvar eftir það hafði lestar- stjórinn komið inn í klefann — í fyrra sinnið til þess að fullvissa ferðamanninn um, að það yrði gert allt, sem hægt væri til þess að hann fengi að vera einn í klefanum, í seinna skiptið til þess að tilkynna að hraðlestin væri tíu mínútur á eftir áætlun. Lestin átti að vera í Whimperley klukkan 7.50, en hún var nákvæm- lega tvær mínútur yfir átta, þegar Hercule Poirot steig niður á braut- arpallinn í þessum litla bæ og þrýsti hinu eftirvænta þjórfé í lófa hins hugulsama lestarstjóra. Lestin blés og því næst mjakaðist Norður-hraðlestin af stað aftur. Bílstjóri, hár vexti, í grænum ein- Síðast þegar dregið var hlaut verðlaunin: KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Bergstaðastræti 34B, Rvík. Nú er það örkin hans N.qa, sem ungfrú Yndisfríð hefur falið í blaðinu. Kannski í einhverri myndinni. Það á ekki að vera mjög erfitt að finna hana og ung- frú Yndisfríð heitir góðum verð- launum: Stórum konfektkassa, sem auðvitað er frá Sælgætis- gerðinni Nói. Nafn Heimilisfang Örkin er á bls. Sími ÞEGAR RIGNIR ÚTI GETIÐ ÞÉR NOTIÐ SÓLAR OG SUMARAUKA MEÐ OSRAM Ultra Vitalux háfjallasól á yðar eigin heimili. Einnig getið þér fengið heita bakstra með infra rauðum geislum OSRAM Theratherm lampans. Leitið nánari upplýsinga í raffangaverzlunum, sem verzla með O S R A M - vörur. OSRAM ULTRA-VITALUX Hvar er örkin hans Nóa? Ungírú Yndislríð býður yður hið landsþekkta konfekt frá N Ó A .

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.