Vikan


Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 10

Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 10
Svarið var þó öllu fremur ætlað Ali- son en honum. „Maður getur ekki hatað neinn, sem orðið hefur til þess að aflétta margra ára martröð," sagði hann. Og hann fann hönd Alison snerta öxl sína rétt sem snöggvast, en þó nógu lengi og innilega til Þess, að hann þurfti ekki að fara í neinar grafgötur um það, að hún skiidi svar hans. Prowse starði hins vegar spyrjandi á hann og hafði bersýni- lega ekki hugmynd um hvaða skiln- ing hann ætti að leggja í orð hans. Flekinn tók niðri við ströndina. Dahl stökk fyrir borð, og dró hann að, svo að þau hin gætu gengið á land þurrum fótum. „Það er bezt að við tökum okkur náttstað hérna," sagði hann. „Ég þarf að svipast hér um.“ Hvorug ánna var eins vatnsmikil og sú, sem í vatnið féll. Það kom dálítið óþægilega við Dahl, þvi að hann hafði gert sér vonir ,um að vatnsfallið færðist stöðugt í aukana, unz það væri orðið að svo miklu fljóti, að lekki væri neinum vafa bundið að það félli til sjávar. Áin, sem féll á hægri hönd, var þó öllu meiri en hin, sem rann til vinstri. Alison stóð við hlið honum og blés eirrauðum lokk frá augum sér. „Hvor er líklegri?" spurði hún. „Það er vandi að vita,“ viðurkenndi hann. „Þessi fellur í suður,“ sagði hún. „Og hafið er í suður,“ bætti hann við og fylgdi hugsanagangi hennar. „Svo að hún er þá líklegri." Hún hafði þvegið hár sitt úr vatn- inu um morguninn. Það hafði þornað í sólskini og blæ, og var nú óvenju- lega litskært og liðað, og lokkarnir brugðu á leik í aftangolunni. Dahl hristi höfuðið. öll ábyrgðin hvíldi á honum, og sá á jafnan kvöl- ina, sem á völina. „Ég varð að athuga þetta nánar," sagði hann. „Já, það er þitt að taka ákvörðun," sagði hún og röddin var þrungin trausli og trú á stjórn hans. Hún strauk lokkana frá andlitinu, hikaði við nokkur andartök áður en hún skipti um umræðuefni. „Þú minntist á martröðina, Lincoln. Finnirðu alls ekki til hennar framar?" sþurði hún lágt og opnum vörum. Dahl heyrði högg spölkorn frá. Þar var Surrey að verki. Engin sá þau, þar sem þau stóðu inni i lundinum. Dahl virti Alison fyrir sér. Augu hennar hvíldu á honum, þrungin djúpri alvöru og einlægni. Hann svar- aði henni lágum rómi, eins og hún hafði spurt. „Það er orðið langt síðan, að ég hef orðið hennar var. Ég geri ráð fyrir, að hún hafi yfirgefið mig fyrir fullt pg allt." „Og það er Carl að þakka," sagði hún. Hann tók báðum höndum um vanga henni. „Fyrst og fremst Þér,“ sagði hann. „Mér?" endurtók hún undrandi. „Já,“ svaraði hann í fuliri alvöru. „Ég skriftaði fyrir þér, og það létti af mér þyngsta farginu. Og svo voru það átökin við Prowse. Að bjarga mannslífi í stað þess að eyða Því — ef til viil hefur það skorið úr um lækninguna, en hvað um það ...“ Hann strauk lokkana frá andliti hennar og hún tók blíðlega um hönd honum. Og hann þrýsti henni að sér. Stundarkorni siðar gengu þau út úr lundinúm, niður á ströndina, þar sem Surrey hafði kynt bál. 10 VIKAN FRAMHALDSSAGAN EFTIR LAWRENCE EARL 17. HLUTI ALISON steikti gæsina yfir bái- inu. Ilmurinn barst með golunni langar leiðir, og þótti þeim félögum, sem sú klukkustund ætlaði að verða eilífð löng, sem Alison hafði sagt þeim að þeir yrðu að biða þess að gæsin yrði fullsteikt. Það var farið að skyggja, en Dahl reis á fætur og kvaðst ætla að ganga spottakorn. Hann hélt niður með þeirri ánni, sem meiri var og athugaði allar að- stæður. Þegar hún hafði runnið tiltölulega straumhæg nokkurn spöl, féll hún á hávöðum um þröngt gljúfur, en þegar því lauk tók við lygn hylur. Dahl laut niður, tók nokkrar malar- völur í lófa sinn, og varpaði þeim, hverri af annarri, ofan i gljúfrið til að kanna dýpið í strengjunum. E'nda þótt áin félli í suður og það væri áttin til sjávar, eins og Alison hafði bent á, var Dahl í óvissu um hvort hún rynni alla leið þangað, eða félli i lokað vatn i einhverju dalverpinu. Og það gat alveg eins verið, að hin áin breytti um stefnu ekki iangt und- an og félli til suðurs; meira að segja að það væri hún, sem félli til sjávar. Það eina, sem benti til þess að það væri hin kvíslin, var það að hún var mun vatnsmeiri. En það út af fyrir sig var engin sönnun. Hann gat ekki komizt að neinni niðurstöðu, og hlaut því að velja í blindni. Það var mjög tekið að rökkva þegar hann hélt til baka. Það sveif lómur yfir gljúfrinu og hló hæðnislega að vafa hans og vanda. Hann gat leyft sér það — hann vissi hvert vötn féllu. Steikarilmurinn barst að vitum Dahls, og hann hraðaði sér að bál- inu. Hann sá skuggann af Alison, þar sem hún sat við bálið og sneri baki að honum. Um leið og hún heyrði fótatak hans á mölinni, leit hún spyrjandi á hann. Sama máli gegndi um þá Greatorex gamla og Surrey. En Dahl lét sem hann veitti þvi ekki athygli. Hann laut að gæsinni yfir bálinu og þefaði með velþóknun. Alison brosti. „Hún er ekki full- steikt enn,“ sagði hún, „en þess verð- ur nú ekki langt að bíða.“ Og hún bætti við og brosti um leið: „Þú getur ekki imyndað þér hve svöng ég er orðin.“ „Ætli ég geti ekki farið nærri um það," svaraði Dahl. Það var orðið myrkt af nótt. Alison tók sér gaffal í hönd, stakk í gæsina og feitin vall út um stungurnar. Þeir störðu ilöngunaraugum á steikina, og það kom vonbrigðasvipur á and- lit þeim, þegar Alison hristi höfuðið. „Nei, hún er ekki fullsteikt," sagði hún. Tíu mínútum síðar stakk hún gaffl- inum enn í gæsina, og að þessu gengu tindarnir á kaf, en feitin spýttist út með þeim. „Þá er hún fullsteikt," sagði Ali- son, sigri hrósandi. „Loksins," sagði Surrey. „Já, loksins," sagði Alison. „Viltu taka að þér að skera steikina, Des?“ „Það er mér heiður og ánægja," svaraði Surrey og brosti. MORGUNINN eftir snæddu þau silung, steiktan í gæsafeiti. Dahl hafði tekið ákvörðun sína. Þau gengu aftur frá búlkanum á flekanum. Surrey og Dahl stjökuðu frá landi og reru síðan þangað, sem sú áin, er vatnsmeiri var, féll úr stöðuvatn- Framhald á bls. 40.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.