Vikan


Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 6

Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 6
 Á Galatabrúnni er stöðugt mannhaf. Við brúarsporðinn handan Gull- hornsins er Lækjartorg í Miklagarði. í baksýn: Ein af 500 moskum borg- arinnar. Flugtíminn frá Vínarborg til Istanbul lengd- ist fyrir þá sök, að ekki mátti fljuga yfir Búlg- aríu. Aftur á móti voru bífalingsmenn Títós vinsamlegri og Gullfaxi hossaðist létt undan uppstreyminu af fjalllendi Júgóslaviu. Siðan dró fyrir aila sýn til jarðar og við misstum af því að sjá fjallið Olympos í norðurhluta Grikklands, bústað hinna hellensku guða, sem annars hefði átt að blasa við. Við vorum öll full eftirvænt- ingar, því brátt mundu opnast framandi sýnir í forgarði hins austræna heims, Istanbul. Það var rigning og drungalegt um að litast, þegar við stigum á tyrkneska jörð. Og í næsta nágrenni flugstöðvarinnar var ekkert óvenju- legt eða æsíspennandi að sjá. Borðalagðir Tyrk- ir kíktu í vegabréfin og síðan var okkur ekið í stórum vagni þessa 17 km inn í borgina. Ég hafði ímyndað mér, að þarna austur við Bos- borus væri einn aldingarður, en því fer víðs f.jarri. Berangurinn minnir jafnvel ofurlítið á ísland og það er í fyrsta sinn, sem ég verð var við það á meginlandi Evrópu. Rigningin hjálpar líka til að undirstrika það. Vegurinn liggur yfir nakin holt og gróðursnauð, sem virðast skræld af þurrki, enda þótt skaparan- um hafi fundizt tilhlýðilegt að vökva jörðina, þegar við, börn rigningarinnar, áttum þar leið um. Húsin meðfram veginum hefðu yfirleitt getað verið úr Kópavoginum, en handan föl- brúnna móa, þar sem halasíðar kindur stóðu á beit, reis hverfi fjölbýlishúsa og háhýsa, sem kom okkur mjög kunnuglega fyrir sjónir. lin hrátt liggur vegurinn inn i hinn eldri hluta Miklagarðs og þá sér maður ekki lengur g VIKAN neitt, sem á sér liliðstæðu á ísa köldu landi. Tvibreið akbrautin rýfur skarð í hina gifurlegu borgarmúra Miklagarðs, sem raunar eru þrír, hver utan yfir öðrum og viðlíka háir og fjögurra hæða hús. Turnar og útskot eru nteð stultu millibili, en allt er þetta meira og minna grotn- að niður og vaxið vafningsviði. Þessir múrar voru upphaflega 20 km langir og hefur ein- hverjum þrælnum hitnað undir uggum, áður en sú bygging hafði endanlegt útlit. Þess ber að minnast, að hér erum við stödd á íslenzkum söguslóðum. Þegar Væringjar voru á ferð í Miklagarði og gengu í þjónustu Mikla- garðskeisara, nefndu þeir hlið eitt mikið á' virkismúr þessum Gullvörtu. En við ökum ekki gegnum það; Gullvarta er neðar, nær sundinu og sér þar háa turna á múrnum. Þarna innan við hliðið taka við fátækra- hverfi, sem gefa annað en glæsilega hugmynd um Miklagarð vorra daga. Göturnar eru svo þröngar, að vagninn sýnist taka útí báðum megin, en húsin úr steinsteypu, múrsteini eða limbri og hefur varla verið sýndur mikill sómi síðasta mannsaldur eða svo. Sums staðar eru þau alveg grotnuð i gegn og þar er reft fyrir áf augljósum vanefnum eða tjaldað með tusk- um. Viða eru járnrimlar fyrir gluggum og minna þeir á þá staðrevnd, að Istanbul er orðlagt þjófa og ræningjabæli. Hér gengur maður ógjarna mcð mikil verðmæti í vösum sínum og í sumum þessara hvcrfa er ekki talið ráðlegt, að Vesturlandabúar séu mikið einir á ferð. Hér er gatan nánast híbýli eða liluti af þeim. Verkstæði standa opin upp á gátt og maður horfir á smiði hamra járn, leðuriðjumenn með verkfæri sín og dýnusaumarar sitja úti ó stétt eða í glugga og handleilta stórar nálar. Allt er nýtt og framandi í augum þess, sem kemur í fyrsta sinn til Istanbul; mannlífið óendan- lega litríkt og fjölbreytt. Hér við Bosborus á mörkum austurs og vesturs, hefur maður for- smekkinn af þeirri veröld, sein við tekur handan sundsins og við áttum eftir að kynnast betur. Við ökum undir vatnsleiðslumúr frá fjórðu öld eins og þeir voru byggðir á dögum Róm- verja og síðan blasir Gullna Ilornið við; löng og mjó vík inn úr Bosborus. Fremst við Gullna Hornið er elzti hluti þessarar frægu borgar, sem raunar er ein af elztu borgum heims. Á niundu öld fyrir Krist eru sagnir um litinn bæ þarna á nesinu við sundið, sem varð þjóðleið milli Evrópu og Asiu og sjóleiðina milli Mið- jarðarhafs og Svartahafs. Og þarna var borgin Byzantium byggð árið 658 f. Kr. Hún var þannig í sveit sctt, að allir meiri háttar ófriðarseggir og striðsjöfrar áttu þar leið um og létu borg- ina vitaskuld gjalda þess fremur en njóta. Svo eitlhvað af þeim ósköpum sé rifjað upp i fá- um orðum og fljótu liasti, má nefna stjórn- vitringinn Dareios, Persakonung.sem lagði borg- ina við veldi sitt árið 513 f. Kr. Seinna kom hún í hlut Alesanders mikla, cn eftir dauða hans varð Mikligarður sjálfstætt borgríki undir rómverskri yfirstjórn. Þrein öldum eftir fæðingu Krists gerði Konstantin mikli borgina að höf- uðsetri rómverska heimsveldisins og staðurinn

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.