Vikan


Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 40

Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 40
INNOXA ALLT TIL AÐ AUKA FEGURÐ AUGNANNA INNOXA snyrtivörurnar fást í: REGNBOGINN, STELLA, SÁPUHÚSIÐ, OCULUS EDDA, Keflavík, SILFURBÚÐIN, Vestmannaeyjum, STRAUMUR, ísafirði, APÓTEK Neskaupstaðar. TMMHY A HEIMUR FEGURÐAR ÍIMIM UAA- i einu orði. það langar ritgerðir og jafnvel bæk- ur. En því er svo mikill áhugi vakn- aður á þessu kastvopni nú, að þekk- ingin á gerð þess reynist hin mikil- vægasta í sambandi við smíði og útbúnað flugvéla og flugskeyta. Þannig hafa áströlsku villimenn- irnir „gert af sjálfu sér það, sem lögmálinu er samkvæmt", og ef ein- hvern, einkum meðal hinna yngri lesenda þáttarins, skyldi langa til að gera slíkt hið sama, birtum við hér myndir af þessu „vísindalega" kastvopni þeirra, eða öllum þrem al- gengustu gerðum þess. Það er um 75 cm upp í 90 cm að lengd, gert úr léttum viði, bungumyndað að ofan en flatt að neðan, og er merki- lega fljótt að fara hringinn, sé það rétt smíðað og því rétt kastað. ★ JÓI-AMATSEÐILLINN. Framhald af bls. 12. Plumbúðing'ur. Vi bolli hveiti, 1 tsk. lyftiduft, Vi tsk. salt, V-i tsk. kanill, % tsk. múskat, V2 tsk. negull (má sleppa honum), V2 bolli kúrennur, V2 bolli steinlausar rúsínur, Vi bolli söxuð epli, 1 bolli alls konar sykraðir ávextir og sykraður ávaxtabörkur t. d. súkkat, appelsínubörkur og sítrónubörkur (fæst oft blandað í pökkum sérstaklega í plumbúðing), 3 egg, Vt bolli dökkur púðursykur, V2 bolli mjólk, 1 bolli nautamör, IV bolli rasp, 2 matsk. konjak eða romm. Þeytið eggin vel og bætið sykr- inum og mjólkinni í, síðan hökkuð- um mörnum og brauðmylsnunni, og öllu blandað vel saman. í hveitið er blandað lyftiduftinu, saltinu, kryddinu og öllum ávöxtunum og eggjablöndunni hellt í það með konjakinu og hrært vel saman. Búð- ingurinn settur í vel smurt form, sem er lokað vel með málmpapp- ír, helzt tveimur lögum. í potti með þéttu loki eru 3 bollar af vatni soðnir og formið sett þar í á grind á botninum og búðingurinn gufu- soðinn þannig í a. m. k. 2Vi klst., en ef uppskriftin er stækkuð, verður að sjóða hann lengur, t. d. ef notað er 5% bolli rasp, verður að sjóða hann í allt að 6 tímum. Losað úr mót- inu eftir að það hefur kólnað í 10 mín. Búðingurinn kældur og geymd- ur í lokuðu íláti á köldum stað. Það má bera hann fram bæði heitan og kaldan, en bezt er að búa hann til töluvert löngu áður en hann á að borðast. Það má hita hann upp með því að setja hann aftur í form- ið og sjóða á sama hátt og áður í 45 mín. Ávaxta- eða kremsósa er borin með, eða þá að búðingurinn er borinn logandi inn, og er það gert þannig: Ofan í hann er gerð dálítil hola og hún fyllt af sykur- molum, en ofan á þá er hellt konjaki eða rommi, eins á hliðar búðingsins og um leið og hann er borinn á borð, er kveikt í víninu. Sítrónuísbúðingur. 2 bollar rjómi, 2 egg, % bolli sítrónusafi, 1 matsk. rifinn sítrónu- börkur, Vi bolli sykur, krydduð brauðmylsna, en hún er þannig gerð: % bolli brúnaður raspur, V> bolli púðursykur, % tsk. rpúskat, % tsk. allrahanda, 1 tsk. kanill, Vi tsk. negull, % tsk. engifer, 3 matsk. brætt smjörl. Öllu blandað vel saman. Eggjahvítur og rauður þeyttar sitt í hvoru lagi, rauðunum blandað í þeyttan rjómann, sítrónusafann og rifinn börkinn. Síðast eru eggja- hvíturnar látnar varlega saman við og fryst í ísskápnum í formum, sem hafa verið þakin með krydduðu brauðmylsnunni. Ofan á eru lagð- ar sítrónusneiðar til skrauts. Á eyðihjarni. Framhald af bls. 10. inu. Fyrst í stað bar straumurinn flekann í suður, en brátt sveigði áin af leið og féll i suðaustur, svo að straumurinn bar þau af þeirri leið, sem þau höfðu haldið frá því er þau lögðu af stað. I þrjá daga bar straumurinn þau stöðugt i suðaustur. En á fjórða degi breytti áin enn um stefnu, nær suðri, og tóku þau um borð þá aftur gleði sína. Það dró nokkuð úr gleði þeirra, að mjög kólnaði þegar leið á daginn og síðan tók að rigna, og loks féll vatnið í striðum straumum um hall- fleytt þilfarið. Dahl varð brátt gegn- drepa, og það gerði honum örðugri allar hreyfingar við róðurinn. Prowse lá í svefnpoka sínum og dró segldúk yfir höfuð sér, en þau Greatorex gamli og Alison breiddu yfir sig nælontjaldið til að verjast regninu. Surrey var að því leyti verr kom- inn en Dahl, að ákafan hroll setti að honum, svo tennurnar glömruðu í munni hans, enda þótt hann biti sem fastast á jaxlinn til að iáta ekki á því bera. Og þó það væri honum fjarri skapi, fór svo að hann kallaði til Dahls. GLEÐILEG JÓL, gæfuríkt komandi ár. - Þökkum viðskiptin á liðna árinu. NAUST 40 VIKAN „Heyrðu, Lincoln," sagði hann. Dahl tautaði eitthvað í barm sér og virtist ekki i sem beztu skapi. „Hvernig lízt þér á að við skrepp- um í land, kveikjum bál og leitum afdreps fyrir regninu, þangað til upp styttir?" Og Surrey skalf, svo að tennurnar glömruðu í munni hans. En Dahl virtist ekki veita þvi neina athygii. 1 stað þess að svara Surrey beint, leit hann spyrjandi á Alison. „Hvað segir þú um þetta?“ spurði hann. „Eru nokkrar líkur til að upp stytti í bráð?“ Alison hafði breitt nælontjaldið upp yfir höfuð. Nú leit hún út undan jaðri þess, og regnið buldi á andliti hennar. „Ég efast um það,“ svaraði hún. „Um þetta leyti getur rignt hérna svo sólarhringum skiptir." Að svo mæltu breiddi hún tjaldið aftur upp yfir höfuð sér og þagði. Dahl reri sem ákafast. „Já, hvernig litist þér á að við leituðum afdreps, þangað til upp stytt- ir?" spurði hann Surrey heldur ó- notalega. „Heldurðu ekki að það gæti seinkað ferðinni?" Surrey beit á jaxlinn. „Allt í lagi, aðmíráll. Við skulum láta sem ég hafi ekki á það minnzt." Þau fóru í land um fimmleytið. Allt var blautt, grasið var blautt og regn- ið draup af limi trjánna og það tók þau langan tíma að kveikja bál. ÞAÐ rigndi uppstyttulaust dag eftir dag, sólarhring eftir sólarhring og gerði hverja stund leiða og langa — og þó sér í lagi kalda. Dahl varð að reka þau á fætur úr notalegu skjóli svefnpokans og tjaldsins á hverjum morgni, skór þeirra voru blautir, föt- in blaut, öll áhöld rök. Það fór ó- notahrollur um þau þegar þau vökn- uðu og þau skulfu á meðan þau voru að ganga frá farangri sínum á flek- anum og búa þar um sig, svo þau gætu varizt regninu eftir föngum, daglangt. Og það var í rauninni þrekvirki, að endurtaka þetta á hverj- um morgni. Dahl vænti þess á hverjum morgni að áin tæki beinustu stefnu til sjáv- ar, og á hverju kvöldi hafði hann orðið fyrir sömu vonbrigðunum. Hann reyndi eftir megni að láta ekki bera á kviða sínum, en það var eins og þau hin yrðu herfang hans, engu að síður. Þegar áttin gekk í vestur, þann 18. júní, gerði Alison sér ekki strax grein fyrir þvi. Hún var farin að sætta sig við þessa linnulausu rign- ingu og kulda; liggja undir nælon- tjaldinu við hlið Greatorex gamla og reyna að kæra sig kollótta um líð- an þeirra, Dahls og Surreys, sem ekki gátu notið skjóls. Þennan morgun sá hún vitt stöðuvatn blasa við aug- um, sá ekki einu sinni takmörk þess vegna rigningarsortans. 1 norðurátt gengu snarbrattar fjallshlíðar beint niður í vatnið, en í suðri var strönd- in hulin mörgum, skógivöxnum eyj- um. Það rigndi enn, jafnt og þétt um morguninn, þegar Alison hreiðr- aði um sig undir tjaldinu og flek- anum var róið út á vatnið. Undan skörinni sá hún hvernig

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.