Vikan


Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 21

Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 21
af dimmri karlmannsrödd heyrðist fyrir utan baðstofudyrnax og óðara varð öllum litið þangað. í sömu svifum var hurðinni hrundið upp. Sigurbjörg húsfreyja steig inn fyrir þröskuldinn og lýsti með kolunni niður í þrepin upp úr göngunum. Kliðdul síbylja framandi tungu fyllti þagnartóm ofvænisins inni í baðstofunni, og fannbarið hrúgald mjakaðist upp á pallinn, stutt af Jóni bónda og Torfa vinnumanni. Mundi einhverjum inni eflaust hafa brugðið ónotalega, hefði hrúgald það ekki mælt, því að í fljótu bragði mátti vart kenna, að þar væri á ferðinni mennskur maður og bæri annan á baki sér“. „Þegar meiri birtu bar á, mátti sjá að þetta var lágvaxinn maður en afar gildur, sér í lagi um herðar og barm. Andlitið var hulið klaka- grímu að mestu, en þó unnt að greina svart alskegg og svört, sting- andi augu undir klökugum brúnum, og að gestur sá mundi kominn fast að sextugu. Skólaus var hann, húfu- laus og berhentur; hafði vafið ein- hverri dulu um höfuð sér en drusl- um um fætur, en peysan og loku- brókin einn samfreðinn klakastokk- ur. Það virtist unglingspiltur, sem hann bar, en ekki varð séð hvort hann var lífs eða liðinn, enda al- snjóugur úr hríðinni. Sjálfur var karl með ólíkindum hress og lítt þrekaður að sjá eftir þá raun, sem gangan ein um sandinn mátti vera hverjum manni í slíku veðri, þótt yngri væri, betur búinn og byrðar- laus, auk þess sem gera mátti ráð fyrir að nokkra þraut og hrakn- inga hefði hann orðið að þola áð- ur en hann komst á land. Fór Jóni bó.nda að minnsta kosti líka fljótt að gruna, að varla mundi allt sem sýndist, er hann bar sig svo garps- lega, enda þótt ekki leyndi sér að hann væri hraustmenni. Það var varla einleikið, er hann talaði þann- ig án afláts og lét sig einu gilda þótt bersýnilegt væri að enginn skildi stakt orð, eða hann veitti því ekki athygli. Öllu undarlegra var þó, hve hann brást styggur við þegar þau hjónin vildu létta af honum byrðinni, og hve seinn hann var eða tregur til að átta sig á því, þegar honum var bent á rekkju, þar sem hann skyldi leggja piltinn." „Loks fékkst hann þó til þess; lagði piltinn ofan á brekánið af nærgætni og varúð, eins og móðir hagræddi sofandi hvítvoðungi í vöggu, en ekki reyndist við það komandi að hann þægi neina að- stoð. Að því búnu rétti hann úr sér, hægt og seinlega; starði þögull í súðina yfir rekkjunni eins og sæi hann sínum svörtu, stingandi aug- um út um gaddfreðna þekjuna óra- vegu, og þegar Sigurbjörg hús- freyja lagði höndina á öxl honum, benti honum að setjast á rekkju- stokkinn varð ekki merkt að hann tæki eftir því.“ „Og þá gerðist það, sem Sigur- björgu húsfreyju leið aldrei úr minni, þótt ékki segði hún frá því fyrr en löngu síðar, og þá í trún- aði. Það var sem hrollur færi um hana og úr henni drægi allan mátt, svo að hún gat hvorki hreyft legg né lið, en athygli hennar og hugs- un öll sljóvgaðist eins og hún væri í þann veginn að festa svefn. Þótti henni um leið sem hinn gamli garp- ur losnaði úr klakaham sínum og fjarlægðist, unz hann var ekki leng- ur innan veggja, en þá greip hana slík hræðsla, að henni tókst að kippa að sér höndinni og brjótast undan þessum lamandi áhrifum. Vissi hún þá ekki hvort þau höfðu varað lengur eða skemur, en þar sem ekki var að sjá að aðrir hefðu veitt at- hygli neinu óvenjulegu, áleit hún að það hefði varla verið eins lengi og henni sjálfri fannst. Skipti þá og engum togum, að gamli maðurinn brá við hart, eins og hann hrykki upp af dvala, svipaðist um en átt- aði sig bersýnilega ekki á hvar hann var kominn, og varð þá augnaráð hans svo æðisgengið, að felmtri sló á heimilisfólkið.“ „En jafnskjótt og hann leit pilt- inn í rekkjunni skipti um, og gegndi furðu, hve þessi svörtu, stingandi augu gátu orðið hlý og ástúðleg. Nokkurt andartak horfði hann þannig á hann, varðist ásókn ör- mögnunarinnar, áður en hún yfir- ynni hann. Og allt í einu var því lík- ast að hann fengi yfirnáttúrlegan kraft, sem gerði honum kleift að virða að vettugi takmörk manniegr- ar þrautseigju og viljastyrks. Hann sneri sér að Jóni bónda Sigfússyni, festi á hann augun og færðist allur í aukana; sterk og hreimdimm röddin reis og hneig í hröðum orðaflaumi, en hendurnar, armarnir og allur hinn gildvaxni líkami, jafnvel and- litið undir klakagrímunni, lék undir við sífelld blæbrigði hennar, og svo máttk og sefjandi var tjáning hans, að enginn gerði sér grein fyrir að hann mælti á framandi tungu, er sagði til þeirra, félaga sinna þriggja, er látið höfðu fyrirberast, þreki þrotnir, í snjóskafli skammt frá bænum. Og svo var hin þróttmikla rödd hljóðnuð fyrr en nokkurn varði, hendurnar aflvana, andlitið jafn sviplaust og klakagríman, leift- ur augnanna hulið bláum og bólgn- um hvörmum. Það var eins og freð- inn og fannbarinn klettadrangur í mannsmynd stæði upp úr baðstofu- gólfinu hjá rekkjustokknum." „En ekki hneig hann niður, og varð þó ekki annað merkt en að hann væri meðvitundarlaus með öllu, þegar hann var lagður í rekkju. Jón bóndi og Jórunn gamla tóku að stumra yfir piltinum, dreypa á hann víni og reyna að vekja hann af öngviti sínu, því að með lífi var hann, en Sigurbjörg húsfreyja kvaddi þá, Torfa og fjósamann, til fylgdar við sig út í hríðina og nótt- ina, að leita þeirra, skipbrotsmann- anna þriggja í skaflinum, og snakaði hún sér í karlmannsbrækur á með- an hún sagði vinnukonum fyrir verkum. Stundarkorni síðar opnaði hinn gamli garpur augun rétt sem snöggvast. Stóð þá vinnukona, nokkuð við aldur, hjá rekkjunni og rakti druslurnar. af fótum hans, en María laut að honum og reyndi með varúð að leysa duluna, sem hann hafði bundið um höfuð sér. Þegar hann leit Maríu, var sem fyrir hann bæri guðlega sýn, svipur hans fyllt- ist óttablandinni lotningu, og þegar augu þeirra mættust, lyfti hann hægri hönd sinni, hægt og með erf- iðismunum og gerði krossmark fyr- ir sér. Síðan seig á hann þungur höfgi, en þó virtist hann vita af sér öðru hvoru.“ „Félagar hans þrír fundust liggj- andi í skafli undir túngarðinum, og voru allir látnir, en Sigurbjörg og Torfi báru heim lík þeirra og lögðu á fjalir úti í skemmu. Strax í birtingu var boðum komið á næstu bæi, og var veðrinu þá mjög tekið að slota, svo að fært var á sandinn. Ekki fundust þar fleiri lík, og ekki sást neitt lífs úti í duggunni, sem stóð í brimgarðinum, öll brotin og löskuð ofan þilja og gengu ólögin yfir hana án afláts. Sandur var þeg- ar nokkuð farinn að hlaðast að henni, en þó ekki svo að fært væri út í hana, enda foráttubrim, og héldu leitarmenn því heim aftur við svo búið. Sendimaður var gerð- ur á fund sýslumanns að tilkynna strandið, en varð að snúa frá Kvísl- inni og kvað hana ekki neinum færa.“ KLERKUR dró enn upp silfur- dósirnar góðu og tók í nefið, að þessu sinni formálalaust og all- hressilega, og nokkuð á kostnað virðuleikans. „Við getum ekki gert okkur það í hugarlund nú,“ sagði hann um leið og hann smellti lok- inu aftur, „hvílíkur atburður það var í afskekktri og einangraðri byggð í þann tíð, þegar strandmenn bar að garði. Þá kunni alþýða manna ekki nöfn á fjarlægum lönd- um og stöðum nema úr rímum og riddarasögum, og vissi jafnvel fátt með sannindum um nálægustu þjóð- ir. Einungis presturinn og sýslu- maðurinn voru „sigldir menn“ og Framhald á bls. 32. í fulla þrjá sólarhringa stóð þetta hatrammlega einvígi þeirra, Svartskeggs gamla og sláttumannsins, linnu- laust nótt og dag. Það er sagt um feigðarveður, að því Ijúki með svikalogni og síðan þeim sviptibyl, sem mestur sé og strangastur; það sé lokaatrennan, þegar sá, sem ævinlega fer með sigur af hólmi, vegur svo hart að þeim, sem hann hefur merkta sér, að alla vörn þrýtur. vikan 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.