Vikan


Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 25

Vikan - 20.12.1962, Blaðsíða 25
II * 4 'hUPftar Stjörnuspáin gildir frá firamtudegi til fimmtudags. ©HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Allt bendir til þess, að allt snúist í kringum einhvern at- burð, sem er að gerast í fjölskyldunni, enda til- efnið ekki svo lítið. Þetta verður hin ánægjuleg- ast vika í alla sfaði, en líkur eru samt á því, að það dragist nokkuð að sinna aðkallandi verkefnum. Heillatala 14. ONautsmerkið (21. apr.—21. maí); Þú virðist vor- kenna sjálfum þér allt of mikið þessa dagana, en þér er vissulega ekki meiri vorkunn en hverjum öðrum. Þú verður að læra að gera þér mat úr smámunum — og þú getur ekki ætlazt til, að stórviðburðir séu ávallt að gerast í kringum þig. Gift fólk lifir nú mjög ánægjulega viku. TvíburamerkiÖ (22. mai—-21. júni): Þetta verður mikil hamingjuvika, einkum þö ef þú ert ást- fanginn. Það er eins og lánið leiki við þér í einu og öllu. Þó skaltu ekki láta þetta mikla lán verða til þess að þú farir að tefla á tvær hættur. Sunnu- dagurinn er bezti dagur vikunnar. Þá berast þér mikilvægar fréttir. Heillatala 3. KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Þér hættir dálítið til þess þessa dagana að predika ýmislegt, sem þú ferð svo ekki eftir sjálfur. Þú verður að gera þér Ijóst, að ef þú skapar ekki gott fordæmi sjálfur, þá fá predikanir þínar engan hljómgrunn. Stúlka, sem þú þekkir litilsháttar, kemur nú allmikið við sögu. LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ág.): Þú efnir ekki það, sem þú lofaðir einum bezta vini þínum fyrir ™ skemmstu, og verður það til þess að hann f jarlæg- * ist þig um stundarsakir. Þú verður strax að gera yfirbót, þvi að það væri leiðinlegt ef þetta yrði til þess að stía ykkur sundur. Um helgina berast þér góð- ar fréttir. MeyjarmerkiÖ (24. ág,—23. sept.): Þú virðist láta hverjum degi nægja sína Þjáningu þessar K vikurnar, og er leiðinlegt til þess að vita, að þú TK skulir ekki hyggja svolítið að framtíð þinni. Þú lifir mest í hópi kunningja þinna í þessari viku og líður þar vel, en þú færð samt enga sanna fullnægingu útú úr lifinu með þessu. Vogarmerkiö (24. sept,—23. okt.): Vinur þinn, sem hefur vérið erlendis lengi, kemur nú ein- hvern veginn við sögu, þótt ekki sé alveg víst, að hann komi heim. Laugardagurinn er dálítið vara- samur, því að þá verður lögð fyrir þig gildra, sem þú liklega fellur í, ef þú ferð ekki að öllu með gát. Heilla- tala 5. DrekarnerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Það virðist bera alltof mikið á óþolinmæði í fari þínu þessa dagana, enda þótt ástæða til sliks sé ákaflega litil. 1 sambandi við merkan viðburð í fjölskyld- unni kemur dálitið óvænt fyrir, sem í fyrstu virðist heldur leiðinlegt, en brátt kemur i ljós, að svo er alls ekki. Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Það gerist ýmislegt í vikunni, sem þú hefur beðið eftir lengi, bæði gott og illt. Á kvöldin munt þú sinna kær- asta áhugamáli þínu, og er go.tt til þess að vita, því að þetta. er mjög þroskandi áhugamál. Sak- laus skreytni gæti orðið til þess að koma þér í klandur. Heiliatala 9. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): 1 vikunni ger- ist eitthvað, sem þú hefur kviðið lengi, en þegar wKíf ] á hólminn er komið, munt þú komast að því, að Tl/ þetta er alls ekki svo bölvað — þú gætir gert það með hægu móti aftur i næstu viku. Jafnaldri þinn, sem þú þekktir lítilsháttar í æsku, kemur nú allmikið við sögu þina. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú færð skemmtilegt verkefni að glíma við í vikunni, og bendir allt til þess, að þú Ijúkir þessu verki miklu fyrr en ráðgert er. Eitt kvöldið kemur einkenni- legur gestur í heimsókn. Þú skilur ekki í fyrstu, hvers vegna hann er að heimsækja þig, en það skýrist von bráðar. FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þú heíur dreg- ©ið það allt of lengi að gera þetta fyrir vin þinn, sem þú lofaðir honum fyrir löngu, og skaltu nota þær mörgu frístundir, sem þér gefast í vik- unni, til að Ijúka þessu af. Þú ert ekki fyllilega sanngjarn í garð eins félaga þins, baktalar hann jafnvel, sem er óafsakanlegt. m Gerið þvottadaginn að hvíldardegi Veljið W&sti ngHouse SlS VÉLADEILD Sænsk úrvalsframleiðsla. LEVIN-FRYSTIKISTUR 5, 8, 14, 17 cubicfet. Söluumboð: Kaupfélögin um land allt og Dráttarvélar h.f. S í S, véladeild.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.