Vikan - 20.12.1962, Síða 5
iólagjaíir
bál hingað og þangað og er það
vel. Skipin á höfninni flauta til að
heilsa nýja árinu o. s. frv. En mér
finnst eitt vanta tilfinnanlega.
Reyk j avíkurbær ætti að verja
einhverri fjárhæð á hverju gamla-
árskvöldi til þess að hafa skraut-
lega og skipulagða flugeldasýningu
fyrir bæjarbúa á einhverju opnu
svæði innan bæjarlandsins þar sem
allir geta komið saman stutta stund,
hlustað á músík i hátölurum, horft
á brennu, skotið sínum vasarakett-
um sjálfir, vætt tunguna með vasa-
pela ef þeir vilja og skemmt sér
og fjölskyldunni konunglega í smá-
stund einu sinni á ári — á kostn-
að bæjarins.
Varla trúi ég að þetta þyrfti að
kosta gífurlega peninga, kannski
eins og 50 þúsund krónur í mesta
lagi, og vafalaust mætti fá hluta
af því aftur með því að selja að-
gangseyri vægu verði. Þá yrði að
hugsa um þetta í tíma, og fá hing-
að erlendan sérfræðing, sem vanur
er að setja slíkar sýningar á svið,
og hafa þetta með glæsibrag. Þetta
yrði líka til þess að draga fólkið
úr bænum á þessu kvöldi, og hópa
því saman þar sem hægt er að hafa
eftirlit með því og skemmta öllum.
Þessari tillögu vil ég endilega
koma á framfæri hið fyrsta.
Publicus.
TILLITSLEYSI.
Ég var inni í búð um daginn og
beið eftir afgreiðslu, þegar maður
kom og sagðist bara ætla að fá
einn pakka af sígarettum. Hann
fékk afgreiðslu strax. Svo kom kona
og sagðist ætla að fá smjörstykki.
Hún var líka afgreidd. Ég beið á
meðan og fannst í sjálfu sér allt í
lagi með þetta, en svo komu fleiri
og fleiri og alltaf beið ég á meðan
þeir voru afgreiddir, þangað til ég
tók loks í mig kjark eftir um hálf-
tíma og sagði að ég væri næst. Þá
litu allir á mig eins og ég væri ein-
hver frekjudós, en samt fékk ég af-
greiðslu.
Hvernig stendur nú á því Póstur
minn, að það er gengið svona fram-
hjá manni þótt maður sé ekki nema
12 ára gömul? Lóa.
það hefur svo fáa, sem það getur
níðzt á, svo fáa, sem því eru
minnimáttar — þess vegna liggur
beinast við að níðast á börnum
og óframfærnum unglingum. Við
skulum þess vegna ekkert vera
að vonzkast út í þetta veslings
fólk — það á svo bágt; það er svo
skelfing, skelfing lítið og ómerki-
legt. Við skulum bara vorkenna
þessu fólki.
Þú mátt samt ekki hætta að
halda fast við þinn rétt. Þú átt
fullkominn rétt á þinni af-
greiðslu, þegar röðin kemur að
þér, og þú skalt bara láta þá
heyura það, sem reyna að troð-
ast á undan þér — og láttu þig
nú ekki!
DÓNASKAPUR...
Kæri Póstur!
Ég á heima fyrir austan fjall, og
ég og maðurinn minn eru í sæmi-
legum efnum, og þó ég vilji ekki
spandera allt of miklu á sjálfa mig
fæ ég mér alltaf dálítið af nýjum
fötum á svona 2ja 3ja ára fresti og
held alltaf fötunum mínum hrein-
um og þokkalegum. En um daginn
ætlaði ég að fá svolítið af nýjum
fötum og nýjan hatt fyrir sunnan,
ég fór inn í hattabúð en afgreiðslu-
stúlkan mátti helzt ekki vera að því
að afgreiða mig, svo ég tók þann
sem mér leizt vel á og lá á borð-
inu og fór að máta hann, en þá
sagði stúlkan. ,,Ég hugsa að þetta
sé of dýrt fyrir yður.“ Ég varð svo
vond að ég fleygði hattinum á gólfið
og strunzaði út, en síðan hef ég
verið að hugsa um, hvort ég hafi
kannski verið of dónaleg að fleygja
hattinum í gólfið, en viltu segja
mér: var það ekki allt í lagi, af
því hún var dónaleg fyrst?
3ja barna móðir.
-------Jú, vissulega varst þú í
þínum fulla rétti. Þetta er fá-
heyrð og svívirðileg framkoma
hjá afgreiðslustúlkunni. Verst
að þetta var bara óbrothættur
hattur, sem þú hentir í gólfið.
Ég skil ekki annað en þú hefðir
verið í þínum rétti, þótt þetta
hefði verið dýrmæt postulíns-
skál, eftir svona framkomu.
SALEM...
Póstur minn.
Ég kom um daginn inn í búð og
bað um einn pakka af Salem. „Þér
meinið Seilem“, sagði stúlkan. „Nei,
Salem.“ Hún varð foxvond og fleygði
í mig pakkanum og hrifsaði tuttugu-
ogfimmkallinn. Ég veit að Salem
er borið fram Seilem á ensku, en
er nokkuð vitlaust fyrir fslending
á íslandi að biðja um Salem?
Nikotinus.
--------Það er nú svona, Lóa
mín, að sumt fólk getur aðeins
svalað mikilmennskuþorsta sín-
um með því að lítilsvirða náung-
ann — með því eina móti fær
þetta veslings fólk einhvern
snefil af sjálfstrausti. Og það er
nú líka svona með þetta fólk, að
— — — Það er kannski ekki
beint vitlaust, en þetta er nú
einu sinni útlenzka og því sjálf-
sagt að bera það fram á útlenzku.
Hvað myndirðu t. d. segja, ef
þú ætlaðir að biðja um einn
pakka af Raleigh sígarettum?
Mikið
úrval
★ SKYRTUR V: SNYRTIYORUR
★ BINDI V FRAKKAR
★ NÁTTFÖT -A TREFLAR
★ SOKKAR ★ HANZKAR
★ INNISLOPPAR ir HATTAR
* INNIJAKKAR ★ PEYSUR
★ RÚSKINNSJAKKAR ★ FÖT
Sími l-S-3-4-5